Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1932, Blaðsíða 12
56
TlMARIT V. F. 1. 1932.
2. mynd. Brú á Ólafsfjarðarús.
í Norður-tsafjarðarsýslu:
Langá í SkutulsfirSi; hilabrú úr járnbentri
steypu yfir 12,0 m baf. Brúargerðin liófst 1930, en
vannst ckki tími til að ljúka verkinu þá um hausl-
ið. Brúin var fullgerð 1931, varð allur kostnaður
kr. 9.928.01 (bér af 1930, kr. 5.755.11) og greiðir
sýslusjóður % hluta.
í Strandasýslu:
Prestbakkaá á þjóðveginum út með Hrúlafirði.
Bitabrú úr járnbentri steypu. Langbitarnir livíla á
steyptum stöplum og bafið milli þeirra 15,0 m, en
beggja megin ganga langbitar 4,0 m fram af stöpl-
unum; verður lengd brúargólfs þannig 23 m. Kostn-
aður við brúna varð kr. 11.926.07.
Á Bæjarái skammt fyrir utan Borðeyri var sett
ný brú úr járnbentri, 4 m löng, í stað gamallar
timburbrúar. Brú þessi kostaði kr. 1.610.15.
/ Hiinavatnssýslu:
Svartá á sýsluveginum fram Blöndudal. Bitabrú
úr járnbentri steypu; langbitarnir bvíla á tveimur
stöplum, og er liafið milli þeirra 22,0 m. Beggja
megin ganga langbitar 8,0 m. fram af stöplum, og
verður lengd brúarinnar þannig 38,0 m. Taka þá
við endastöplar og standa þeir við bitaendana, en
bera þó ekki bitana. Stöplar, sem bitinn hvílir á,
eru járnbentir og 80 cm þykkir ofan vatnsborðs, en
1,35 m neðan vatnsborðs; lengd stöpuls er 5 m
neðan vatnsliorðs, en ofan vatnsborðs er frambrún
stöpuls járnvarin og skáhöll, svo að stöplarnir geti
betur varist ísruðningi. Stöplar eru grafnir 1,5 m
niður fyrir lægsta vatnsborð. Utan um livorn stöp-
ul er rekinn niður skjólveggur úr járni 3,5 m nið-
ur fyrir vatnsborð. Var hann ætlaður til þess að
veita skjól gegn straumnum meðan stöpullinn var
steyptur, en á framvegis að verja stöpulinn gegn
þvi, að áin grafi undan honum.
Brúin er hvelfd að ofan, svo að regnvatn renni
betur af brúargólfinu, hallar þvi um 1: 50 frá brú-
armiðju að brúarsporðum.
Allur kostnaður við brúna, að meðtöldum vegi
yfir eyrarnar að vestan, varð kr. 32.459.36, og greið-
ir sýslan tæplega % hluta.
/ Skagafjarðarsýslu:
Mælifellsá á sýsluvegi í Lýtingsstaðahreppi. Bita-
brú úr járnbentri steypu yfir 16,0 m baf. Kostnað-
ur varð kr. 9.203.92, og greiðir sýslusjóður % hluta.
/ Eyjafjarðarsýslu:
Öxnadalsá hjá Bægisá á sýsluveginum fram
Iiörgárdal. Bitabrú úr járnbentri steypu; hvor
langbiti hvílir á tveimur endastöplum, hvor sínu
megin árinnai' og auk þess á tveim járnbentum
stoðum. Er bitinn þannig yfir 3 liöf og er miðliaf-
iö 13,4 m., hliðaropin 5,2 m og 2,8 m, en öll lengd
brúar 21,4 m. Brúin er byggð í stað gamallar tré-
brúar, sem orðin var of veik til að þola þunga bif-
reiða, auk þess sem hún lá svo djúpt niður í gili,
að tæ])lega var kleift fyrir bifreiðar að komast nið-
ur á brúna. Gólf nýju brúarinnar liggur 2,5 m fyr-
ir ofan gólf gömlu brúarínnar. Allir stöplar standa
á klöpp. Kostnaður varð kr. 10.737.49, og greiðir
sýslusjóður % hluta.
Ólafsfjarðarós, á sýsluveginum frá Ólafsfjarðar-
kaupstað fram Ólafsfjörð. Brúin er járngrinda-
biti yfir 24,20 m baf, byggð í stað gamallar timb-
urbrúar. Járngrindabitinn hvílir á tveimur enda-
stöplum, eru þeir úr steypu ofan vatnsborðs og