Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1932, Page 12

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1932, Page 12
56 TlMARIT V. F. 1. 1932. 2. mynd. Brú á Ólafsfjarðarús. í Norður-tsafjarðarsýslu: Langá í SkutulsfirSi; hilabrú úr járnbentri steypu yfir 12,0 m baf. Brúargerðin liófst 1930, en vannst ckki tími til að ljúka verkinu þá um hausl- ið. Brúin var fullgerð 1931, varð allur kostnaður kr. 9.928.01 (bér af 1930, kr. 5.755.11) og greiðir sýslusjóður % hluta. í Strandasýslu: Prestbakkaá á þjóðveginum út með Hrúlafirði. Bitabrú úr járnbentri steypu. Langbitarnir livíla á steyptum stöplum og bafið milli þeirra 15,0 m, en beggja megin ganga langbitar 4,0 m fram af stöpl- unum; verður lengd brúargólfs þannig 23 m. Kostn- aður við brúna varð kr. 11.926.07. Á Bæjarái skammt fyrir utan Borðeyri var sett ný brú úr járnbentri, 4 m löng, í stað gamallar timburbrúar. Brú þessi kostaði kr. 1.610.15. / Hiinavatnssýslu: Svartá á sýsluveginum fram Blöndudal. Bitabrú úr járnbentri steypu; langbitarnir bvíla á tveimur stöplum, og er liafið milli þeirra 22,0 m. Beggja megin ganga langbitar 8,0 m. fram af stöplum, og verður lengd brúarinnar þannig 38,0 m. Taka þá við endastöplar og standa þeir við bitaendana, en bera þó ekki bitana. Stöplar, sem bitinn hvílir á, eru járnbentir og 80 cm þykkir ofan vatnsborðs, en 1,35 m neðan vatnsborðs; lengd stöpuls er 5 m neðan vatnsliorðs, en ofan vatnsborðs er frambrún stöpuls járnvarin og skáhöll, svo að stöplarnir geti betur varist ísruðningi. Stöplar eru grafnir 1,5 m niður fyrir lægsta vatnsborð. Utan um livorn stöp- ul er rekinn niður skjólveggur úr járni 3,5 m nið- ur fyrir vatnsborð. Var hann ætlaður til þess að veita skjól gegn straumnum meðan stöpullinn var steyptur, en á framvegis að verja stöpulinn gegn þvi, að áin grafi undan honum. Brúin er hvelfd að ofan, svo að regnvatn renni betur af brúargólfinu, hallar þvi um 1: 50 frá brú- armiðju að brúarsporðum. Allur kostnaður við brúna, að meðtöldum vegi yfir eyrarnar að vestan, varð kr. 32.459.36, og greið- ir sýslan tæplega % hluta. / Skagafjarðarsýslu: Mælifellsá á sýsluvegi í Lýtingsstaðahreppi. Bita- brú úr járnbentri steypu yfir 16,0 m baf. Kostnað- ur varð kr. 9.203.92, og greiðir sýslusjóður % hluta. / Eyjafjarðarsýslu: Öxnadalsá hjá Bægisá á sýsluveginum fram Iiörgárdal. Bitabrú úr járnbentri steypu; hvor langbiti hvílir á tveimur endastöplum, hvor sínu megin árinnai' og auk þess á tveim járnbentum stoðum. Er bitinn þannig yfir 3 liöf og er miðliaf- iö 13,4 m., hliðaropin 5,2 m og 2,8 m, en öll lengd brúar 21,4 m. Brúin er byggð í stað gamallar tré- brúar, sem orðin var of veik til að þola þunga bif- reiða, auk þess sem hún lá svo djúpt niður í gili, að tæ])lega var kleift fyrir bifreiðar að komast nið- ur á brúna. Gólf nýju brúarinnar liggur 2,5 m fyr- ir ofan gólf gömlu brúarínnar. Allir stöplar standa á klöpp. Kostnaður varð kr. 10.737.49, og greiðir sýslusjóður % hluta. Ólafsfjarðarós, á sýsluveginum frá Ólafsfjarðar- kaupstað fram Ólafsfjörð. Brúin er járngrinda- biti yfir 24,20 m baf, byggð í stað gamallar timb- urbrúar. Járngrindabitinn hvílir á tveimur enda- stöplum, eru þeir úr steypu ofan vatnsborðs og

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.