Einherji - 29.07.1944, Page 2
2
EINHERJI
rsrr>rr«rr'r.^srsrrsrrrsrrsrrrrrsrrsrrsrsr>r'rrsr'rrsr
Framsóknar-
flokkurinn ætlar
að auka blaðakost
smn.
• I fyrra hóf Framsóknar-
flokkurinn fjársöfnun með-
al flokksmanna um land
allt land í því skyni að
auka blaðakost flokksins,
eins fljótt og ástæður frek-
ast leyfa. Hefir þegar tals-
vert áunnist, þótt enn sé
mikið ógert.
Flokksþingið í vetur sam-
þykkti svofellda ályktun
einróma, um þetta mál:
„Flokksþingið skorar á alla
Framsóknarmcnn og stofn-
anir vinveiltar flokknum að
efla fjársöfnun þá, sem nú er
háfin til aukinnar blaðaút-
gáfu með ríflegiun fjárfram-
lögum, þegar á þessú ári.
Skal stefnt að því takmarki,
að flokkurinn gefi út vand-
að dagblað, eins fljólt og
fært þykir, er hæfi lesend-
um uin land allt.“
• Tillaga þessi sýnir, að
flokksmenn almennt hafa
skilningtá þeirri brýnu nauð-
syn að auka blaðakostinn
til sóknar og varnar mál-
stað flokksins.
• I þéttbýlinu, einkum bæj-
unum, stendur flokkurinn
verst að vígi, hvað blaða-
kost snertir, og þar er
blaðaútgáfa andstæðing-
anna öflugust. Dylst því
engum, að þar getur flokk-
urinn ekki flutt málstað
sinn til jafns við aðra
flokka og verður þess áreið-
lega þörf á næstu árum,
frekar en nokkru sinni
áður, að þar sé túlkuð
frjálslynd umbótastefna.
• Einherji vill hvetja alla
Framsóknarmenn, til þess
að leggja þessu máli lið
eftir beztu getu, og vill
henda á það, að Fram-
sóknarfélag Siglufjarðar
hefir samþykkt að fela
stjórn sinni að beita sér
fyrir málinu hér í bæ. Hún
tekur því á móti fjárfram-
lögum til aukinnar blaða-
útgáfu.
Virkjun fallvatna í
Fljótum
(Framhald af 1. síöuj
virkjun þeirrar ár hófst.
Þótt hún áður hafi verið
mæld alllengi var alveg sjálfsagt
að láta nákvæmari mælingar fara
fram jafnskjótt og virkjun hófst,
hún hófst, án teljandi kotsnaðar,
og hefði skilyrðislaust átt að gera
a. m. k. með sjálfa Fljótaána.
Mælingar þurfa að standa yfir í
mörg ár, ef taka á fullt tillit til
þeirra. En næsta einkennilegt, að
slíkar mælingar skuli ekki hafa
farið nákvæmlega fram í Fljótaá.
og sjálfsagt að láta slíka mæl-
ingu fara fram nú þegar og halda
henni síðan áfram í fleiri ár.
Ef treysta mætti, að landsstjórn
in, og þeir, sem mestu ráða í raf-
virkjunarmálum Islendinga í
framtíðinni, hefði auga fyrir þeim
iðnaðarmöguleikum, sem fram-
undan eru í Siglufirði. Gæti komið
til mála að láta Skeiðsfossvirkjun-
ina ganga inn í lið landsrafveit-
una, Siglufirði, nærsveitunum, og
landsrafveitunni sjálfri til hags,
en það mál þarf áður rækilegan
undirbúning sérfræðinga, og íhug-
un frá fleiri hliðum.
Hitt er Siglfirðingum og nær-
sveitunum nauðsyn, að gerð sé
íhugul rannsókn og mæling allra
þeirra fallvatna, sem í nærsveit-
um Siglufjarðar eru, einkum í
Fljótum, og fyrir því ætti Siglu-
fjarðarbær og Síldarverksmiðjur
ríkisins að beita sér og draga
ekki á langinn, eins og gert hefir
verið að þessu.
Ríkisverksmiðjurnar
og Skarðsvegurinn.
Svo hörmulega vill nú til, að
verksmiðjurnar í Siglufirði hafa
enga síld til þess að vinna úr, og
viðblasir, að verkafólkið, sem ráðið
er hjá þeim hafi ekkert eða mjög
lítið að gera.
Meðan slíkt ástand helzt ætti
stjórn verksmiðjanna að fá verka-
menn þeirra til þess að vinna að
Skarðsveginum. Það er hvoru-
tveggja ,,ríkis-fyrirtæki og Skarðs
vegurinn auk þess mesta nauð-
synjamál héraðsins og beint hags-
munamál allra Siglfirðinga.
Hægra ætti siglfirzkum verka-
mönnum, og öllum Siglfirðingum
að verða um öflun grass handa
kúm sínum, er bílvegurinn væri
kominn alla leið. Ódýrari mjólkur-
framleiðsla er eitthvað stærsta
hagsmuna- og velferðarmál sigl-
RAFMAGNIÐ I
BÆNUM
Það er illt til þess að vita, að
núverandi rafstöð skuli eigi geta
fullnægt bænum betur en nú á sér
stað og hefir átt sér stað. Hitt er
ekki síður athugavert, að slíkt
skuli gerast þrátt fyrir það, að
Rauðka á mótora fyrir um 200
hö., sem eigi eru notaðir. Hefir
heyrzt, að Rauðka geti selt þá
fyrir álitlegt verð nú. Væri miklu
nær, að rafstöðin keypti mótora
þessa af Rauðku og pantaði raf-
ala við vélarnar. Við það ynnist,
að bærinn gæti betur fullnægt
eftirspurninni eftir rafmagni en
verið hefir. Einnig ynnist við það,
að rafstöðin við Hvanneyrará yrði
stærri varastöð. Nú eru um 490
hö, sem nota mætti sem varaafl,
ef Skeiðsfossleiðslan bilaði að ein-
hverju leyti á veturna. Yrði vara-
aflið þá um 650 hö. Þótt það sé
ekki stór varastöð, þá munar ekki
litlu að, hafa 650 hö. í stað 450.
Æskilegt væri, að leiðslan frá
Skeiðsfoss bili ekki, eða a. m. k.
sem sjaldnast. En því miður má
búast við slíkum bilunum á leiðsl-
unni á vetrum, einkum nú, þar
sem það óráð hefir verið tekið að
leggja leiðsluna um Skarðdalinn
en ekki Botnaleið, eins og áður
hafði verið áformað. Alloft síðasta
aldarfjórðunginn hefir snjóflóð
runnið í Skarðdalnum og m. a.
svift í burtu símastaurum. Er
undarlegt, að slík reynsla skuli
að vettugi virt, og heyrzt hefir
jafnvel, að einn maður hér hafi
varað við, að þessi leið yrði valin
fyrir leiðsluna. Hvað þetta hafa
verið réttlætt með því, að ódýrara
yrði að koma staurunum og vírun-
um, þar sem bílfær vegurinn væri.
Það er nú að vísu satt, að eitthvað
yrði það ódýrara, en nú er þess að
gæta, að ekki hjálpar vegurinn
Fljótameginn, norðan Hrauna, svo
að sparnaðurinn við flutningana á
staurum og vír er minni en gert
er ráð fyrir. Botnaleiðin er á kafla
að vísu heldur ekki laus við snjó-
flóð, en á þeim kafla hefði átt að
steypa öflug steinsteypumöstur, er
stæðust snjóflóð. Bæði er líka, að
Botnaleiðin er mun styttri (um
3—4 kílómetrum styttri, og styttri
svæði þar sem snjóflóð er en á
hinni leiðinni. Vér skulum vona
hið bezta, en betur hefði þetta
mátt fara og vera ráðið.
firzkra verkamanna, og yfirleitt
öllum Siglfirðingum.
Nú er tækifærið til bess
að gera skurk í Skarðs-
veginum.
rrsrr>rrsrrrr>rrrrrsrrrsrrsrrsrr\rrrsrrrrrsrrr
S jómanna- og gesta
heimili Siglufjarðar.
Steypiböðin tekin i
notkun.
Eins og getið var um í
síðasta Einlierja, er þetta
fimmta smnarið, sem stúk-
an Framsókn nr. 187 starf-
rækir Sjómannalieimili sitt.
Með hverju ári hefur starf-
semi lieimilisins farið vax-
andi, enda liefur það átt
miklum vinsældum að fagna
lijá sjómönnum og öðrum,
sem notið liafa starfsemi
þess. I vetur hefur verið
unnið að því, að innrétta
kjallara liússins til þess að
koma fyrir höðum. Er nú
þessu lokið og böðin tekin
I notkun. Baðltlefarnir eru
fimm og verður kerlaug á-
samt salerni í einum, en
heit og köld steypiböð í liin-
imi fjórum. Með þessu ér
að nokkru hætt úr þeim
miklu vandræðum, sem ver
ið liafa á því fyrir sjómenn
og verkafólk, að fá sér bað.
Að vísu eru böð við S. R.
fyrir sjómenn, sem þar eru
að landa, en það er livergi
fullnægjandi og ekki gott
að komast þar að nema
stöku sinnum. Reynslan
mun sanna, að þetta var
þarft spor og góð viðbót
við starfsemi Sjómanna- og
gestaheimilis Siglufjarðar.
Jafnframt er það menning-
arauki fyrir Siglufjörð, að
að hafa slík almenningsböð
árið um kring, því að lík-
legt má telja, að böðin
verði starfrækt allt árið.
rsrrsrrrrrsrsrsrrsrr>rsrr>rsrrsrr>rsrrsrrrr>rrrrrr
Forseti Islands heim-
sækir Siglufjörð.
Tilkynnt hefur verið, að forseti
íslands, herra Sveinn Björnsson,
mimi fara í ferðalag um landið og
hefst förin 30. júlí. Þ. 5. ág. kl. 4
mun forsetinn koma til Sigluf jarð-
ar og dvelja liér til kl. 10 e. h. I
fylgd með forsetanum verður
einkaritari hans, Pétur Eggerz.