Einherji


Einherji - 29.07.1944, Qupperneq 4

Einherji - 29.07.1944, Qupperneq 4
Laugardaginn 29. júlí 1944. Samvinnustefnan á enga samleið með niður- rifsöflum þjóðfélagsins. (Framliald af 1. síðu) um, að þeir (kommarnir) væru einu raunverulegu samvinnumenn- irnir, sem vildu berjast fyrir vexti og viðgangi samvinnustefnunnar. Þegar þeir á þennan hátt höfðu ýtt mönnum sínuifi inn í raðir samvinnumanna, og komið sum- um þeirra að sem fulltrúum á aðalfund S. I. S. var önnur her- förin hafin. Það átti að skipta hverju kaupfélagi í sem flestar deildir, svo sem neytendadeild, framleiðendadeild og s. frv. Neytendadeildin' átti eingöngu að selja neytendum sem ódýrasta vöru, en framleiðendadeildin átti aftur að selja vöru framleiðenda fyrir sem hæst verð. Þannig átti að mynda deildir innan hvers Kaupfélags, sem höfðu sérhags- muna nokkurra félagsm. að gæta. Ekkert var líklegra til að valda óánægju og tortryggni innan fé- laganna og þar með hindra vöxt þeirra, enda var það ætlunin. Jafnframt þessu voru svo ýmsir forsvarsmenn einstakra kaupfé- laga, stjórn S. f. S. og skólastjórar Samvinnuskólans, rógbornir og kallaðir nazistar, landráðamenn, pólitískir loddarar og afturhalds- menn (verri en íhaldið). Undir þennan söng kommúnistanna hafa svo andstæðingar samvinnustefn- unnar (heildsalavaldið og blöð þess) tekið af hjartans gleði, og þótt vænt um að fá þennan óvænta bandamann. En einnig þessi her- ferð hefir mistekizt gjörsamlega. Á síðasta aðalfundi SÍS samþ. fulltrúar hinna ýmsu kaupfélaga ályktun þess efnis, að Kaupfélögin, S. I. S. og samvinnumenn myndu hiklaust berjast gegn hverskonar klofnings- og skemmdarstarfsemi, sem beint væri gegn félagssamtök- um samvinnustefnunnar, 'hvort sem þau kæmu frá heildsalavald- inu og blöðum þess eða kommún- istum og þeirra skriffinnum. Nú bera kommúnistar sig mjög illa, og halda því fram, að Sam- bandið sé nú að ráðast á þá al- saklausa!! FARISEAHÁTTUR KOMMÚN- ISTANNA í grein í síðasta Mjölni, er nefn- ist „deilan í Sambandi ísl. sam- vinnufélaga." Kemur ósvífni og Fariseahræsni kommúnista í samvinnumálum mjög glöggt fram, þar segir að Framsóknarflokkurinn hafi „ein- okað“ allar trúnaðarstöður í SfS og kaupfélögunum fyrir flokks- menn sína, en hafi svo reynt á yfirborðinu að láta líta svo út sem SfS væri ópólitísk samtök. Já, heyr á endemi, en sú hræsni! Eg held, að K. F. S. félaginn í Mjölni ætti að hugleiða málshátt- inn „Ekki má nefna snöru í hengds manns húsi.“ KFS mun nú vera eina kaupfé- lagið, sem kommúnistar hafa feng- ið meirihluta aðstöðu í á aðalfundi. Maður skyldi nú ætla, að þeir hefðu sýnt samvinnuhug sinn, og þeir hafa vafalaust gert það. En hann var þannig: Kjósa átti 2 full- trúa í stjórn KFS. Þeir kusu tvo trúverðuga komma, aðrir komu ekki til greina. Kjósa átti 2 fulltrúa á aðalfund SfS. Þeir kusu 2 flokksforingja komma hér í bæ. Kjósa átti einn endur,skoðanda (af tveimur, sá, sem fyrir var er kommúnisti). Þeir kusu kommúnista. Nokkru síðar var veitt bókara- staðan hjá KFS. Allmargir Sigl- firðingar sóttu um og tveir utan- bæjarmenn. Annar var kommún- isti, og honum veittu peir stöðuna. Þetta er ekki „einokun" hjá Mjölni Þetta er ópólitísk samvinnu- stef na!! HIN PÓLITÍSKA SANNSÖGLI KOMMÚNISTA í SAMVINNU- MÁLUNUM Um stefnu þá, sem 5/0 fulltrúa á aðalfundi SfS, það er fulltrúar flestallra samvinnumanna í land- inu, segir Mjölnir: „Stefna aftur- haldsaflanna í SfS er í stuttu máli þessi: SfS leggi niður sína fyrri stefnu, að vinna að því, að öll verzlun í landinu verði í hönd- um neytenda og framleiðenda sjálfra. SfS og kaupfélögin taki virkan þátt í deilumálum verkamanna og atvinnurekenda, og styðji þá at- vinnurekendur eftir getu með því að níða niður verkamannasamtök- in og baráttu þeirra fyrir betri kjörum. SÍS reyni að æsa bændur lands- ins gegn verkamannasamtökun- um og hindra, að samvinna verði milli verkamanna og bænda.“ Hvað segja nú samvinnumenn um land allt, um þessa túlkun á málum kaupfélaganna og sam- vinnumanna ? Eru þessir menn, sem þannig skrifa ekki líklegir til að vera ein- lægir samvinnumenn!! Er nokkuð undarlegt þótt kaup- félögin og SlS svari slíkum árás- um og upplognum ásökunum ? Þetta er ekki árásir eða stríðsyfir- lýsing á Mjölnismáli, nei, það er nú eitthvað annað. Þetta er ópóli- tísk sannsögli hinna einu sönnu samvinnumanna!!! Hvor hefir metið? Fyrir nokkru sá ég í blaðinu Vísi innrammaða fréttaklausu frá Siglufirði. Þar var skýrt frá því, að Þormóður Eyólfsson hafi verið rekinn úr Framsóknarfélaginu og hafi brottreksturinn verið sam- þykktur með 9 atkvæðum gegn 5, og 4 hafi setið hjá (það vantar ekki nákvæmnina). Mér varð að orði, er ég las þétta: Þar hefur Viss eignast ,,kollega“, sem hann getur verið stoltur af, og er nú spurning, hvor þeirra hefur metið í ósönnum fréttaburði. Viss eða „Vísis“-fréttaritarinn. Það fór líka svo, að Viss var fljótur að koma auga á þennan skæða keppi- naut, því nokkru seinna veður hann fram á ritvöllinn í Neista, og ræðst þar að „kollega“ sínum með miklum fjálgleik, og gefur honum í skyn, að hann sé ekki enn búinn að slá sig út, en segir þó þessi spaklegu orð eftir að hann er búinn að útlista jafnræði frétt- anna: „Má hinn siglfirzki frétta- ritari Vísis lofa sig sælan ef hann sleppur við dóm vegna þessa fréttaflutnings." En fyrst þeir Viss og „Vísis“- mann eru nú farnir að keppa um metið, skora ég á þá að greina frá heimildum fyrir fréttum sín- um, svo Siglfirðingar geti sjálfir dæmt um hvorum ber metið. Geri þeir það ekki skoðast þeir jafnir enn sem komið er. J. Þ. SKRAUTSTYTTUR svo sem HESTAR og HUNDAR VALUR VÉLAPAKKNINGAR nýkomnar Verzl. Sigurðar Fanndal 15. tölublað. DRENGJA og TELPU regn- og rykkápur höfum vér fengið. Rápurnar eru mjög % góðar og smekkelgar KAUPFÉLAG SIGLFIRÐIN G A RAKSETT mjög lientug í ferðalög. VALUR NÝKOMIÐ: Mikið úrval af Kven- og karlmanna- SKGFATNAÐI amerískum og íslenzkum Verzlun Sígurðar Kristjánssnar LAUKUR nýkominn ★ Kjötbúð Sigluf jarðar

x

Einherji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.