Freyr - 01.02.1922, Blaðsíða 3
Ríkisveðbanki íslancls.
ÞaS er all-langt síSan a5 því var fyrst
hreyft, aS nauösynlegt væri aS stofna sjer-
stakan banka eða lánsstofnun fyrir land-
búnaöinn. Hvenær þaö var, eða hver var
fyrstur til að kveða upp úr með það, er
mjer eigi kunnugt. — En fyrstu d r ö g i n
að þeirri málaleítun á A 1 þ i n g i, að sjer-
stakri landsstofnun fyrir landbúnaðinn vrði
komið á fót, var t i 11 a g a til þingsálvkt-
unar um, að skora á landsstjórnina að at-
huga og undirbúa það mál, og leggja að
því loknu frumv. fyrir þingið um það efni,
er þingmenn Árnesinga báru fram á a u k a-
þinginu 1916 — 17.
Tillagan var samþykt í einu hljóði.
Á Alþingi 1917 var gerð fyrirspurn til
stjórnarinnar um það, hvað gert hefði verið
í þessu máli. Svaraði þáverandi atvinnu-
niálaráðherra fyrirspurninni á þann veg,
stjórnin hefði málið hugfast,> en að tími
hefði eigi unnist til að undirbúa það. Þá
voru þegar gerðar ráðstafanir til, að mál-
ið yrði rannsakað.
Loks flutti þingmaður N.-ísaf. tillögu á
Álþingi 1919, þar sem á ný er skorað á
tandsstjórnina „að hlutast til um, að komið
verði sem fyrst á fót sjerstakri lánsstofnun
landbúnaðinn, er veitt geti bændum
hagkvæmari lán til búnaðarbóta en nú er
kostur á“.
Áður en þessi síðasta tillaga kom fram,
hafði stjórnin hugsað sjer að fela einhverj-
um góðum manni rannsókn og undirbún-
ing þessa máls. Mun hún þar hafa haft
augastað á cand. jur. Böðvari Bj ark-
an. Enda varð brátt niðurstaðan sú, að
honum var falinn þessi undirbúningur
Fór hann utan í því skyni, haustið 1919
— til Danmerkur og Svíþjóðar — og var
í 6 mánuði í ferðinni. Rannsakaði hann
í þessari ferð fyrirkomulag fasteigna-
veðbanka í þessum löndum, og leitaði
auk þess upplýsinga um samskonar láns-
stofnanir, bæði í Þýskalandi, Sviss og víð-
ar. Eftir að hann kom úr þessari ferð bjó
hann til frumvarp um fasteignaveðbanka,
og ljet fylgja því ýtarlega greinagerð og
ský^ringar, sem því miður hafa þó eigi
verið prentaðar.
Frumvarpið var síðan lagt fyrir þingið
1921, og samþykt sem lög. — En skiftar
voru skoðanir manna um málið. Sje óhlut-
drægt litið á alla málavöxtu, verður því
eigi neitað, að báðir málspartar höfðu nokk -
uð til síns máls. — Ríkisveðbankinn er
íasteignaveðbanki, en ekki bein-
línis eða eingöngu lánsstofnun fyrir 1 a n d-
b ú n a ð i n n. Honum er ætlað, eins og
síðar verður skýrt, að lána út á fasteignir
t. d. hús, bæði í bæjum, kaupstöðum og