Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1922, Qupperneq 18

Freyr - 01.02.1922, Qupperneq 18
24 FREYR í Dresden" hefir undanfarin ár gert til- raunir meS rafmagnsverkun á heyi. AtS- feröin er einskonar endurbót á votheys- verkuninni e‘ða nánara tiltekiS á sætheys- gerSinni, og tilgangurinn er að sleppa viS efnatap sem ávalt verSur viS hita og gerS í heyinu. Þýskir bændur eru þegar farnir aS byggja rafmagns-heygryfjur. — f Sviss er einnig veriS að gera tilraunir meS aS- ferðina, og Norömenn ráögera aö hefja tilraunir með sama sniöi næsta sumar. Efnarannsóknastofa. H. J. H ó 1 m j á r n búfræðiskand. og efnafræðingur, sonur Jóseps Björnssonar á Vatnsleysu í SkagafirSi og kennara á Hólum, sem dvaliS hefir erlendis nú um nokkur ár, hefir komiS á fót, i fjelagi meS öSrum, nýrri rannsóknastofu í Kaup- mannahöfn. Eru þar framkvæmdar alls- konar jarðvegsrannsóknir og efnagreining og margt fleira. Þessi efnarannsóknastofa hefir þegar fengiS gott orS og leita marg- ir til hennar. VerS á gaddavír. Hægt miSar áfram verSlækkuninni á gaddavír og girSingarefni. — Þegar hann var dýrastur 1918—1920, kostaSi „rúllan“ (25 kg.) rúmar 60 kr. Nú er verSiS á al- gengum vír, hjá Sambandi samvinnufje- laganna og Brynjólfi H. Bjarnasyni kaup- manni, 30 kr. „rúllan" 25 kg. í „rúllunni“ eru 220—256 metrar eftir því, hvaS gadd- arnir eru nánir o. s. frv. M j ó i gaddavírinn kostar hjá Samband- inu 45 kr. „rúllan“ nálægt 25 kg. Þessi mjói vír reynist misjafnlega. Ef til vill lækkar verSiS á gaddavír eitt- hvaS í vor, en þó eru ekki taldar miklar líkur til þess, eins og nú horfir. Vatnsleiðslupípur. Veröiö á þeim er nú hjer i Reykjavík þetta: Yi þuml. víöar kr. 2,25 meterinn H ~ — — 3>°o — 1 — — — 4,00 — 1% — — — 5,50 iy2 — — — 7,00 — Styrkur til graöhestakaupa. Áriö sem leiS hafa f i m m hrossarækt- arfjelög fengiö styrk til graShestakaupa. Þaö eru þessi fjelög: Hrossaræktarfjelag Grímsneshrepps, Hálsasveitar í Borgar- fjaröarsýslu, Rípurhrepps í Skagafiröi, FljótsdalshjeraSs og fjelagiö „Trausti“ í Gaulverjabæjarhreppi í Árnessýslu. — Styrkurinn var 200 kr. til hvers fjelags. Heiðursverðlaun. Verölaun úr Styrktarsjóöi Kristjáns IX. fengu árið sem leið þeir Hallgrímur hreppstj. Níelsson á Grímsstöðum í Mýrasýslu, og Valdimar bóndi G u ð- mundsson í Vallanesi í Skagafjarðar- sýslu, fyrir framúrskarandi dugnaö í bún- aði. Þúfnabaninn. Meö þúfnabananum eöa plægingarvjel- inni þýsku, voru sljettaðir í sumar og haust í landi Reykjavíkur um 66 hektarar, þar af 25 hekt. í Fossvogi. Af þessu landi í Foss- vogi hefir Búnaðarfjelagið skuldbundiS sig til aö skila ræktuöu 10 hekt., gegn 400 kr. borgun fyrir ræktun hvers hekt., sem telja veröur mjög ódýrt. TaliS er aö plægja megi með vjelinni 3—5 hekt. á dag, eftir því, hvaS djúpt er plægt o. s. frv. StjórnarráSiS lánaöi Búnaðarfjelaginu 60 þús. kr. úr Ræktunarsjóði, gegn 1. veö- rjetti í eignum fjelagsins, til þess aö borga með vjelina. Hvítárbakka-námsskeiðið. Viö námsskeið þetta, sem haldið var í fyrra, fyrir konur í Borgarfirði, og getiö er um í desemberblaði Fr ey s f. á„ hjelt fyrirlestra, auk þeirra manna — karla og kvnna — er nefnd voru í blaðinu, M e t ú- s a 1 e m ráðunautur Stefánsson. Var þaö af vangá, að nafn hans fjell úr, er minst var á námsskeiðið.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.