Einherji


Einherji - 13.11.1956, Page 1

Einherji - 13.11.1956, Page 1
tðð Jfr atitöóknatrmattna í J&icjlufivði Tíminn er orðinn 12 síðu blað. ★ KAIJPIÐ og LESDE) Tímann Afgr. í Eyrarbúðinni. 9. tölubiað. Þriðjudaginn 13. nóvember 1956. 25. árgangur. EYSTEINN JONSSON, fjármálaráðherra, FIMMTUGUR Það er kunnara en frá. þurfi að segja, að þegar Framsóknarflokk- urinn var stofnaður í desember 1916, þá stóðu að þeirri flokks- stofnun glöggskyggnir gáfumenn með ríka framíaraþrá. I ung- mennafélagshreyfingunni og sam- vinnusamtökunum höfðu þeir lagt fram fyrsta skerf sinn til félags- málabaráttunnar í landinu, og hann lofaði góðu. Þessir menn sáu, að til þess að gjöra hugsjónir ungmennafélaganna og samvinnu- manna að veruleika, varð að stofna pólitískan flokk, sem mið- aði stefnu sína algerlega og ein- göngu við íslenzka staðhætti, ís- lenzkt þjóðfélagsástand og sér- þarfir þær til breytinga og fram- fara, sem mótast höfðu af sögu þjóðarinnar, — þess vegna stofn- uðu þeir Framsóknarflokkinn. Eins og það var lán Framsókn- arflokksins að stofnendur hans voru hugsjónaríkir baráttumenn, eins hefur það verið lán flokksins að til forustu í flokknum hafa valizt á liðnum árum sókndjarfir og víðsýnir drengskaparmenn. — Einn þessara forustumanna Fram- sóknarflokksins er fimmtugur í dag, 13. nóvember. Það er ritari flokksins, Eysteinn Jónsson fjár- málaráðherra. Þegar maður lítur til baka yfir liðna atburði í sögu þjóðarinnar og flettir blöðum í stjórnmálasög- unni síðustu áratugina, gætir svo víða afskipta og forustu þessa manns, að maður gæti haldið að hann væri mun eldri en kirkju- bækurnar segja. En þegar maður aftur á móti sér hann í ræðustól, við skrifborð sitt í stjórnarráð- inu eða á gangi, þá trúir maður því ekki, að þessi maður hafi í dag fimm tugi að baki. En svo er það nú samt. Eysteinn Jónsson er fæddur 13. nóvember 1906 á Djúpavogi, son- ur presthjónanna þar, séra Jóns Eysteinn Jónsson Finnssonar og frú Sigríðar Hans- dóttur Beck. Á unglingsárunum stundaði hann alla algenga vinnu til sjós og lands og kynntist því snemma lífsbaráttu íslenzkrar al- þýðu til sjávar og sveita. Árið 1927 lauk hann burtfararprófi úr Samvinnuskólanum og gerðist þá ritari í Stjórnarráðinu. Skattstjóri í Reykjavík varð hann 1930, eftir að hafa verið við nám erlendis og fjármálaráðherra varð hann árið 1934, þá 28 ára gamall. Hann varð viðskiptamálaráðherra 1939 og gegndi því embætti til 1942. Hann varð ráðherra á ný 1947 og þá menntamálaráðherra. Árið 1950 varð hann fjármálaráðherra og hefur hann gegnt því embætti óslitið síðan til þessa dags. Þing- maður Sunn-Mýlinga hefur Ey- steinn Jónsson verið síðan 1933 og formaður þingflokks Fram- sóknarmanna frá því 1943. í stjórn Sambands ísl. samvinnu- félaga hefur hann verið frá 1944 og varaformaður Sambandsins síðustu 10 árin. Eins og að líkum lætur hafa af- skipti Eysteins Jónssonar af landsmálum og löggjöf verið margþætt og margvísleg, þann tæpa aldarfjórðung, sem hann hefur átt sæti á alþingi og þau ár, sem hann hefur verið ráð- herra. Jafnan hafa afskipti hans af þessum málum miðast við það, að auka á alhliða þjóðfélagsum- bætur og stuðla að hverskonar framförum í • menningu og lífs- kjörum þjóðarinnar. Eg vil rekja hér að nokkru afskipti þessa stjórnmálamanns af sjávarútvegs- og hagsmunamálum Siglufjarðar. Ándstæðingar Framsóknar- flokksins hafa oft haldið því fram að flokkurinn væri aðeins stétta- flokkur bænda, sem miðaði starf- semi sína eingöngu við sénhags- muni landbúnaðarins, en teldi sér óviðkomandi málefni annarra stétta og afkomu annarra at- vinnuvega. Engar röksemdir hafa þó verið færðar fyrir slíkum full- yrðingum, enda tala verk Fram- sóknarflokksins á liðnum árum allt öðru máli, eða á þessa leið: Framhald á 4. síðu Uppbygging atvinnu- lífsins í Siglufirdi Bæjarstjórn Siglufjarðar samþykkir einróma til- lögu um að beita sér fyrir öflun nýrra atvinnutækja Samþykkt sú, sem bæjarstjórn gerði, fer hér á eftir: „Með fundarsamþykkt frá 26. júlí 1955, var samþykkt að kaupa nýjan díeseltogara til bæjarins, ef möguleikar væru fyrir iiendi, og óska aðstoðar ríkisstjórnarinnar í því efni. Af ástæðum sem kunnar eru, hefur enn ekki orðið úr þess- um togarakaupum. Með framkomu hins nýja togarakaupafrumvarps á Alþingi, hefur hinsvegar opnazt nýr möguleiki fyrir bæjarsjóð til togarakaupa og fyrir því samþ. nú bæjarráð að sækja um til at- vinnutækjanefndar og ríkisstjórn- ar, að þessir aðilar úthluti til Siglufjarðar einum til tveimur togurum af þeim 15 togurum, sem ákveðið er, að keyptir verði til landsins á næstunni. Jafn- framt samþ. bæjarráð að gerð verði kostnaðaráætlun, sem lögð verði fyrir bæjarstjórn til athug- unar, yfir byggingu hraðfrysti- húss á lóð Rauðku, eða næsta nágrennis, sem rekið verði sam- hliða Rauðkuverksmiðjunni. Jafn- framt samþ. bæjarráð að kjósa 4 manna nefnd innan bæjar- stjórnar, ásamt þingmanni kjör- dæmisins og Gunnari Jóhanns- syni og bæjarstjóra til að vinna að þessum málum, enda vinni bæjarstjóri og þingmennirnir Á.J. og G. J. að þessum málum við ríkisstjórnina.“ 1 nefndina voru kosnir eftir- taldir menn: Bjarni Jóhannsson Sigurjón Sæmundsson Öskar Garibaldason Ólafur Ragnars Varamenn: Ragnar Jóhannesson Georg Pálsson Þóroddur Guðmundsson Kristján Sigurðsson Bygging nýs hraðfrystihúss, sem rekið yrði í sambandi við síldarverksmiðjuna Rauðku og kaup á einum til tveimur togur- um, sem einnig yrðu reknir í sam- bandi við þessi fyrirtæki, er stærsta átakið, sem bæjarstjórn •hefur beitt sér fyrir til þess að skapa hér lífvænlega afkomu bæjarbúa og útrýma atvinnuleysi og fólksflótta úr bænum af þeim sökum. 1 næsta blaði verður nánar rætt um þessi mál.

x

Einherji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.