Einherji


Einherji - 25.08.1962, Blaðsíða 1

Einherji - 25.08.1962, Blaðsíða 1
★ Samvinnufé- lögin skapa sann- virði á vöru og auka öryggi hvers byggðarlags. ★ Gangið í sam- vinnufélögin. ★ Verzlið við samvinnufélögin. Blaö Framaóknarmanna í Norðurlandskjördœmi vestra. ★ Samvimian skapar betri lífs- 9. tölublað Laugardagurinn 25. ágúst 1962. 31. árgangur. kjör. SILDVEIÐARNAR ★ Síldveiðunum fyrir Norður- og Austur- landi að ljúka. Eitt bezta síldveiðiár í meir en 15 ár. Heildaraflinn orðinn um 1,7 millj. mál og tunnur. Á sama tíma í fyrra var afl- inn um 1,5 millj. mál og tunnur. Um 225 skip tóku þátt í veiðunum. Nokkur skip eru hætt veiðum. 6 skip hafa aflað meira en 20 þús. mál og tunnur. ★ Aflinn hefur verið hagnýttur þannig: Tölurnar í svigum frá sama tíma í fyrra. I salt 326.227 I bræðslu 1.350.850 í frystingu 33.327 Líklegt má nú telja, að senn ljúki síldveiðunum fyrir Norður- og Austurlandi á þessu sumri og mun aflinn nú þegar meiri en nokkru sinni fyrr í meira en tvo áratugi. Að þessari góðu veiði hefur stuðlað bæði ein- staklega hagstætt veður i tvo mánuði, svo og bætt og aukin tækni við veiðarnar. Fyrir tveim til þremur árum var aðeins lítill hluti veiði- flotans með astiktæki og kraftblakkir, en nú munu innan við 10 skip í flotanum, sem ekki hafa þessi tæki. Og fullvíst má telja, að ekkert Skip fari á síldveiðar næsta ár án þessara tækja. tnr. ( 356.672) mál (1.099.442) tnr. ( 23.215) Svona örar hafa ibreytingar á veiðitækninni verið. — Má segja, að öll veiði ibyggist orðið á þessum tækjum og lítil von um veiði ef þau bregðast. Þá hafa þrjú skip leitað síldar fyrir flotann í allt sumar, en áður voru þau eitt og tvö. Eykur það mikið öryggið við veiðarnar, að leitarskipin séu að minnsta kosti þrjú. Aftur verður að álíta, að síldarleit úr lofti sé lítils virði fyrir flotann og stundum óbeint tii tjóns. Er því líklegt, að síldarleit- arflug ileggist að mestu nið- ur, en leitarskipunum fjölgi að sama skapi. mundur g í ásí jjr form. I Kjör- I dæmis- ' ! samb. ; ★ Kjördæmisþing Fram- j sóknarmanna í Norður- ; landskjördæmi vestra 1 kemur saman í Húna- f§ í veri sunnud. 2. sept. || og hefst það kl. 2 e.h. á Kjörnir fulltrúar eldri 1 og yngri manna úr öll- || um hreppum, kauptún- || um og bæjum kjördæm- I isins eiga að mæta, svo § stjórn kjördæmissam- g bandsins og alþingis- g menn flokksins í kjör- I dæminu. Æskilegt er, að auk i þess mæti flestir áhuga- | menn flokksins sem i gestir á þinginu. Guðmundur Jónasson g bóndi, Ási í Vatnsdal § er formaður sambands- § ins og mun setja þingið. i ) Á síðustu árum hafa orðið ótrúlegar breyting- ar á stærð og útbúnaði síldveiðiskipanna. Fyrir nokkrum árum var þetta talinn stór síldveiðibátur en nú er hann með ]æim allra minnstu. Þá höfðu flestir bátar nótabáta, einn eða tvo, en nú sjást ekki nótabátar lengur. Söltun er aö Ijúka WmM. # Búið að salta yfir 326 þús. tuimur. Gífurleg útflutnings- verðmæti eru í saltsíldartunnunum. Er líklegt, að útflutn- ingsverðmætin séu í kringum 300 milljónir króna. ★ Söltunin er nú 326.227 tunnur, er skipt- ast þannig: Þórshöfn ........ 2.350 Siglufjörður ...... 101.423 Raufarhöfn ......... 68.809 Seyðisf jörður ..... 41.588 Neskaupstaður ...... 20.607 Ólafsfjörður ....... 13.234 Dalvík ............. 12.608 Vopnafjörður ....... 11.539 Húsaví'k ............ 9.843 Reyðarfjörður ....... 8.945 Eskifjörður ......... 8.470 Hrísey .............. 6.197 Fáskrúðsfjörður ..... 6.124 Grímsey ............. 3.656 Stöðvarfjörður ...... 3.283 Bakkafjörður .......... 1.531 Skagaströnd ........... 1.407 Breiðdaiisvík ......... 1.242 Akureyri .............. 1.381 Borgarfj. eystri ........ 987 Hjalteyri ............... 488 Hæstu stöðvar í Siglufirði:- Hafiliði h.f........... 9.689 Isafold s.f............ 8.343 Nöf ................... 7.800 Haraldarstöð .......... 7.409 Pólstjarnan h.f........ 7.077 Tvö héraðsmót Framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra ★ Sigluf jörður. Framsóknarmenn í Siglu- firði halda héraðsmót að Hótel Höfn laugardaginn 25. ág. og hefst það kl. 8,30 s.d. Ólafur Björn Ræður flytja alþ.m. Björn Páls- son og Ólaf- ur Jóhannes- son og Jón Kjartansson, Erlingur Vigfússon syngur með undirleik Jón Ragnars Björnssonar og Gísli Sigur- karlsson fer með skemmti- þætti og eftirhermur. Að lokum verður dansað. Quartett Þráins Kristjáns- sonar leikur fyrir dansinum. ★ Laugarbrekka V. Hún. Héraðsmót Framsóknar- manna í Vestur-Húnavatns- sýslu verður að Laugar- bafcka sunnudaginn 26. ág. Aðalfundir Framsóknarfé- ilaganna hefjast kl. 3 e.h., en almenn skemmtisamkoma kl. 8 s.d. iRæður flytja: Gísli Guð- mundsson, alþ.m. og Indriði G. Þorsteinsson ritstjóri. Erlingur Vigfússon syng- ur með undirleik Ragnars Björnssonar. Blaðið Einherji Upplag blaðsins er nú 2000 eintök. Einherji er því lang útbreiddasta blaðið í Norðurlands- kjördæmi vestra. Blað- ið kemur út að minnsta kosti einu sinni í mán- uði. Gerizt fastir kaup- endur blaðsins, þá fáið þið það sent heim. Það er lang ódýrast að auglýsi í Einherja. —

x

Einherji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.