Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.1930, Qupperneq 8

Freyr - 01.11.1930, Qupperneq 8
108 FREYR Að því er stefnt að gera öll slægjulönd vélslæg. Þá fyrst getur heyskapurinn far- ið að verða viðráðanlega ódýr. En mjög er misjafnt hve bændum er þetta mark ljóst. Til eru margar jarðir þar sem nátt- úran leggur bændunum rennisléttar grundir til undir tún. Venjulega eru þær svo snöggar að þær verða ekki slegnar með vél, en með notkun tilbúins áburðar verða þær ekki einungis vélslægar, heldur margfaldast eftirtekjan af hverjum bletti. Þeir bændur, sem slíkt land hafa eiga vel að athuga, hvort það ekki borgi sig fyrir þá að kaupa tilbúinn áburð fyrir kaupamannskaup, hafa manninum færra við heyskap, og nota vélar. Mjög oft fá þeir með því meiri og til muna ódýrari hey en áður, og afkoman verður öll önnur. Undanfarin ár hefir mikið verið hugsað um það, að stækka túnin. Þetta er virð- ingarvert, og það lastar enginn, en til er íslenzkt spakmæli sem segir: „Það er ekki minni vandi að gæta fengins fjár en afla“. Mér dettur það oft í hug þegar ég fer framhjá bæjum, sem róta í sundur ný- ræktinni, en svelta gömlu túnin, svo þau spretta svo illa, að ekki er nema hálf upp- skera af. Allir sjá, þegar þeir hugleiða þetta, hve slíkt er heimskulegt. Verkið við að slá túnið er líktt, hvort sem af því fást 10 hestar af dagsláttunni eða 80 eins cg hvorutveggja er til. Hið fyrra er al- gengt, en hið síðara heldur fátítt en þó allalgengt á túni og túni hér og þar um landið. Og það er ekki nóg með það, að eftirtekjan verði minni, mestu munar á því, að sprettan er ekki nógu góð til þess að nota vélar á túnið. Um alt land hittir maður bændur, sem ekki telja sig geta notað vélar á túnin. Orsökin er oftast sú, að túnið er að meira eða minna leyti svelt. Athugið því nú í kreppunni hvort þið hafið efni á þvi að svelta túnin. Hvort ekki borgar sig betur að fá á það gott gras og nota á það vélar, en láta kaupamanninn slá það sæmilega „slá- andi“. Athugið það, gerið það fyrir mig, og sérstaklega þó fyrir sjálfa ykkur. Og nýræktin er misjöfn. Hún sést líka soltin, með æpandi kargysnum stráum, rök, með blágráum ýlustráum hér og þar, cg óvöltuð, svo hún ekki verður vélslæg þegar hún grær upp. Öll verk, sem hönd- um er kastað til, verða illa gerð. Vetl- ingatök eru aldrei góð. Það verður að leggja alúð við nýræktina, gera hana vel, svo af henni fáist mikið og gott fóður, og slá megi hana með vélum. Hún er ekki gerð til að fá út á hana styrk, hún er gerð til þess að niðjar okkar njóti hennar og hún skapi varanlega aukinn þjóðarauð. Þess vegna á hún að vera vel gerð. Munið, gerið hana vel. Þegar óþurkar ganga, eins og var um nokkra landshluta í sumar, eiga bændur að gera vothey. En þó svo sé, og þó það sé um mannseldur síðan farið var að gera það hér á landi, og þó mikið hafi verið gert til þess að útbreiða þá heyverkunar- aðferð, þá eru það ekki nema 162 bændur af þeim 1035, sem voru í nautgriparækt- arfélögunum 1929, sem gerðu vothey. Hinir eru ekki enn komnir upp á lag með að nota sér þessa sjálfsögðu hey- verkunaraðferð. Og þó eiga allir að gera það í óþurkum. Það er ekki lítill munur á heyöflunartilkostnaðinum að setja í vot- hey og þurka, þegar óþurkar ganga. Þið sem komnir eruð upp á lag með að gera það, bendið þeim, sem enn eru ekki byrj- aðir, á reynslu ykkar. Kennið þeim. Lær- ið hver af öðrum. Eins og það er mikilsvert fyrir afkomu bóndans, að afla ódýrra heyja, eins er líka mikils vert, að vel sé á þeim haldið að vetrinum. Þessu gefa margir bændur tiauðla nógan gaum. Það er reynsla margra bænda í mörg-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.