Einherji


Einherji - 30.08.1968, Page 1

Einherji - 30.08.1968, Page 1
• Samvinnufélögin skapa sannvirði á vöru og auka öryggi hvers byggðarlags. • Gangið í sam- vinnufélögin. • Verzlið við sam- vinnuféiögin. • Samvinnan skapar betri lífskjör. Blaö Framsóknarmanna í Nóröurlandskjördœmi vestra. 7.—s. tölublað. Föstudaginn 30. ágúst 1968 37. árgangur. Heim að Hólum Landbúnaðarsýningin 1968 Sunnudagskvöldið 18. ág. s. I. lauk Landbúnaðarsýn- ingunni 1968. Sýningin var opnuð 9. ágúst og stóð því yfir í 10 daga. Sýningin fór fram í Laugardal í Reykja- vík og miðdepill sýningarinn ar í Laugardalshöllinni. Góð aðsókn var að sýningunni og munu sýningargestir hafa verið yfir 80 þúsund. Búnað- arfélag íslands og Fram- leiðsluráð landbúnaðarins stóðu að sýningunni, sem var sú yfirgripsmesta, sem hald- in hefur verið hér á landi. Tilgangur með slíkri sýningu er að sjálfsögðu sá, að sýna og kynna framleiðsluna og þróun þessa atvinnuvegar í þjóðarbúinu. Hér var um að ræða: búfjársýningar, véla- og tækjasýningar, iðnsýn- ingar, hlunnindasýningar, á- sarnt sögu- og þróimarsýn- ingu, að ógleymdum öllum þeirn fræðslu- og skemmti- atriðum er þar fóru fram. Um 60 þátttakendur kynntu þar og sýndu og má nokkuð af því ráða fjölbreyttni sýn- ingarinnar. Þetta er 3ja stóra land- búnaðarsýningin, sem hér hefur verið haldin. Fyrsta landbúnaðarsýningin var haldin í Gróðrarstöðinni í Reykjavík 1921. Sú sýning var aðallega verkfærasýn- ing og því aðallega ætluð fyrir bændur. Önnur sýning- in í höfuðborginni var 1947. Var hún allf jölbreytt og sóttu hana um 60 þús. manns Búnaðarfélag Islands stóð fyrir báðum þessum sýning- um. Búnaðarfélag Suðurlands hélt landbúnaðarsýningu á Selfossi 1957. Þótti sú sýn- ing takast mjög vel. Þessi sýning í Laugardaln um var að sjálfsögðu lang- stærst og f jölbreyttust, enda var tilgangur hennar tví- þættur. Annars vegar átti hún að sýna fólkinu í þétt- býlinu, hver er raunverulega aðstaða landbúnaðarins og bændastéttarinnar í dag, hvaða rekstaravörur eru notaðar og hverjar fram- leiðsluvörurnar eru. Hinsveg- ar kynna bændum og sveita- fólki nýjustu vélar, tæki og vörur, sem hægt er að nota við búskapinn. Og með sýn- ingunni tókst þetta. Þangað áttu þvi alhr erindi, bæði úr bæ og sveit. 1 sýningarskrá Landbún- aðarsýningarinnar eru mikl- ar og athyghsverðar upplýs- ingar um þróim landbúnað- arins og einstaka þætti hans og mun verða drepið á suma þeirra síðar hér í Einherja. Erliðleikar frystihúsanna Frystigeymslur fullar af óseldri vöru Mikil óvissa framundan Sum frystihúsin á Norð- urlandi hafa þegar stöðvast vegna þess, að ahar frysti- geymslur eru þegar fullar og engar útskipanir fara fram. Þegar er búið að fram- leiða upp í gerða samninga að mestu leyti. Um 6. ágúst hittum við að máh Martein Friðriksson, framkvæmdastjóra Fiskiðj- unnar á Sauðárkróki og Hallgrímur Sveinn Kristjánsson frá Kringlu við Blöndu- ós að koma úr grenjaleitum. Maður með byssu um öxl vekur athygli á þjóðvegum, ennfremur þeir hestar, sem bera eðliskosti sína utan á sér, eins og þessi grái gæð- ingur, sem eigandiim sagði að væri 23 vetra. Ljósm. e.d. sagðist honum svo frá: Fiskiðja Sauðárkróks h. f. hefur tekið á móti meiri fiski þrjá undanfarna mán- uði en nokkru sinni áður á sama tíma. Þetta var mjög lítið fyrr en í apríl, en yíir maí, júní og júh hefur afli togbáta verið góður, en fisk- urinn smár og óhagstæður til vinnslu. Hjá Fisiuðjunni leggja upp tvö 250 t. tog- skip: Drangey SK 1 og Sig- urður Bjarnason frá Akur- eyri. Einn bátur hóf hér dragnótaveiðar, en hætti, fékk ekki neitt og fór á færi. Einnig hafa smærri bátar lagt fisk á land. Má segja, að framboðið af fiski hafi nú um tíma verið meira en hægt hefur verið að taka á móti. Það var aht stopp í síðustu viku, í raun og veru. Allar frystigeymslur að fyh- ast, en það var ákveðið að halda áfram eitthvað um ó- tiltekinn tíma, en það getur alveg stöðvast hvenær sem er. Við höfum komið til geymslu hjá sláturhúsinu nokkru magni í þeirri von, að það verði farið fyrir slát- urtíð, því að þá verður það pláss að vera laust. Við vor- um einmitt í gær að tak- marka stærð fisksins, sem við tökum á móti, við 50 sm. Annað er ekki hægt eins og málin standa í dag. Mest af okkar framleiðslu er fyrir Ameríkumarkað. Hjá Fiskiðjunni vinna nú mihi 50—60 manns, sagði Marteinn að lokum. 1 júh s. 1. tók til starfa annað frystihús á Sauðár- króki. Er það Fiskiver, sem ýmsir hafa áður starfrækt, en er nú í eigu ríkisins og hefur ekkert verið starfrækt alllengi. Nýtt hlutafélag var stofnað á Sauðárkr., Skjöld- ur h. f. og tók það Fiskiver á leigu hjá ríkinu. J. Þ. Sunnudaginn 4. ágúst s. 1. var hinn ár'legi Hóladagur haldinn að Hólum i Hjalta- dal. samdægurs var haldinn jaðalfundur Hólafélagsins og hófst hann kl. 11 f. h. Fóru þar fram venjuleg aðalfund- arstörf. Úr stjórn félagsins gengu að þessu sinni sr. Þórir Stephensen, Sauðár- króki, Jón Kjartansson, for- stjóri, Reykjavík og Magnús H. Gíslason, Frostastöðum. í stað þeirra voru kosnir: sr. Jón Isfeld, Bólstað og var hann jafnframt kosinn for- maður félagsins, Pálmi Jóns- son, alþingismaður, Akri og Björn Egilsson, oddviti, Sveinsstöðum. Kl. 2 hófst svo Hólahátíð- in með því, að biskup ís- lands og prestar gengu skrúðgöngu heiman frá skóla húsinu og að kirkjuturni. Fór þar fram vigsla hinna nýju kirkjuklukkna, er þjóð- in hefur gefið Hóladóm- kirkju og komið hefur verið fyrir í turninum og nú hljómuðu í fyrsta sinn yfir Hólastað. Kirkjumálaráð- herra, Jóhann Hafstein, af- henti klukkurnar með ræðu, en biskupinn yfir Islandi, hr. Sigurbjörn Einarsson, flutti síðan vígsluræðu. Var þá gengið til kirkju og þar pré- dikaði biskup, en fyrir al'tari þjónuðu prestarnir sr. Ing- þór Indriðason í Ólafsfirði og sr. Sigfús J. Árnason, Miklabæ. Kirkjukór Ólafs- fjarðarkirkju annaðist söng undir stjórn og við undirleik Magnúsar Magnússonar org- anista. Ólafur Þ. Jónsson, óperusöngvari, söng við messugerðina stólvers, við undirleik Ragnars Björns- sonar, dómkirkjuorganista. Að guðsþjónustu lokinni var gefið kaffihlé, en síðan var á ný gengið til kirkju. Þar flutti sr. Þórir Stephen- sen ávarp, en sr. Kristján Róbertsson á Siglufirði flutti erindi um „kirkjulega vakn- ingu og kirkjulega endur- reisn.“ Gat hann fyrst um kirkjulega starfsemi í Hóla- stifti, svo sem sumarbúðirn- ar við Vestmannsvatn og aðra æskulýðsstarfsemi, og Tekið á móti mun meiri fiski en í fyrra. Allar geymslur að fyllast. Hjá frystihúsi SR á Siglu- firði hefur verið tekið á móti mun rneira fiskmagni frá áramótum til 1. ágúst en á sama tíma í fyrra. Er fram- leiðslan nú 33.010 kassar á móti 25.492 á sama tíma í fyrra. Framleitt er bæði fyr- ir Ameríku- og Rússlands- rnarkað, þó meira fyrir Am- eríku. Fiskurinn af togbát- unum hefur verið mjög smár og óhagstæður til vinnslu. Færafiskurinn mun betri og 1. flokks hráefni. Togarinn Hafliði hefur þegar landað !á þessu ári 2000 t. og því I Framhald á 3. síðu rekstur kvennaskólans á Löngumýri. Mælti hann með breyttu messuformi í það horf, að söfnuðinum yrði auðvelduð bein þátttaka í guðsþjónustunni, en þó mætti ebki gleymast, að formið mætti aldrei og gæti raunar aldrei orðið að kjarna messu gerðarinnar. Athugandi væri stofnun eins konar kirkju- legs lýðháskóla, sem • sóttur gæti verið af fólki á öllum aldri, sem vildi kynna sér kirkjulega fræðslu og kirkju- lega menningu og lífsvið- horf. Það fé, sem ríkið legði kirkjunni til, væri eðlilegast og heppilegast að greiða í einu lagi og láta síðan kirkj- una sjálfráða um skiptingu þess. Mælti fremur með að- skilnaði ríkis og kirkju, en þó í áföngum. Tómt mál er að tala um kirkjulega endur- reisn nema „hjartað sé með, sem að undir slær“. Kirkjan þarf að vera hreyfing lif- andi fólks, en ekki bara rík- isstofnun, sagði sr. Kristján. Að lokum flutti sr. Jón Is- feld, hinn nýkjörni formað- ur Hólafélagsins, ritningar- orð og bæn, en kirkjugestir sungu sálminn: Kirkjan er oss kristnum móðir. Milli þess, sem hið talaða orð var flutt, söng Ólafur Þ. Jónsson, óperusöngvari, kirkjuleg lög við undirleik Ragnars Bjömssonar, sem einnig lék einleik á orgel Hóladómkirkju. Meðal þeirra laga, sem Ólafur söng, var nýtt lag eftir Jón Björnsson, bónda á Hafsteinsstöðum, sem samið var við ljóð, er frú Emma Hansen á Hólum orti 1 tilefni af vígslu hinna nýju kirkjuklukkna. Jafnhliða þessari athöfn í kirkjunni var bamasamkoma í íþróttahúsi skólans og sá sr. Pétur Sigurgeirsson á Akureyri um hana. Fjölmenni var á þessari Hólahátíð,- sem fór hið bezta fram, enda veður með þeim hætti, að á betra varð varla kosið. Fer þeim sífjölgandi, sem telja, að hinum árlega Hóladegi verði ekki betur varið á annan hátt en þann, að sækja Hóla heim og er raunar engum þeim undmn- arefni, sem sótt hefur þess- ar samkomur undanfarið. mhg- Fundir í Norðurlands kjördæmi vestra Þingmenn Framsóknarílokksins í Norðurlandskjördœmi vestra mæta á nokkrum fundum Fram- sólcnarmanna í kjördæminu. — Fyrsti fundurinn verður á Siglu- firði sunnudaginn 8. september. Næstu fundir á Hofsósi 9. sept. og Sauðárkróki 10. sept. Aðrir fundir ákveðnir síðar. Fingmenn- irnir munu ræða iandsmál og hér- aðsmál og svara fyrirspurnum fundarmanna. Nánar verður aug- lýst síðar hvenær fundirnir hefj- ast.

x

Einherji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.