Einherji


Einherji - 17.12.1968, Blaðsíða 12

Einherji - 17.12.1968, Blaðsíða 12
JÖLABLAÐ 1968 EINHEBJI Prófkjör, skoöanakönnun, undanfari ákvörðunar um fram- boðslista Á kjördæmisþingi Fram- sóknarmanna í Norðurlands- kjördæmi vestra 1967 var allmikið rætt um hvemig bezt yrði staðið að og ákveð- inn framboðslisti til alþingis- kjörs. Kosin var 5 manna nefnd er kanna skyldi þessi framboðsmál og leggja til- lögur fyrir kjördæmisstjórn. Nefndin vann sitt verk vel og skilaði tillögum, sem kjör dæmisstjórn lagði síðan fyr- ir þingið 1968 með smávægi- legum breytingum. Fram- boðsnefnd, sem kosin var á' þinginu, fékk síðan tillögurn- ar til athugunar og lagði til að þingið afgreiddi þær. Að- alafni þeirra er það, að al- mennt prófkjör eða skoðana- könnun verði undanfari á- kvörðunar um framboðslista til Alþingiskosninga, er kjör- dæmisþing síðan gengur end- anlega frá. Tillögur er þing- ið samþykkti um prófkjörið voru svo hljóðandi: 1) Almennt prófkjör (skoðana- könnun verði undanfari ákvörð unar framboðs. 2) Bétt til prófkjörs eiga flokks- bundnir framsóknarmenn og þeir, sem gefa yfirlýsingu um, að þeir styðji fiokkinn og hafi náð kosningaaldri á væntan- legum kjördegi. 3) Prófkjör skal fara fram minnst ári fyrir væntanlegar aiþing- iskosningar. 4) Kjördæmisþing kýs nefnd, er gerir tiUögu um lista með aUt að 20 nöfnum, sem að fengnu samþykki þingsins yrði iagður fram, sem ábending þess í væntanlegu prófkjöri, enda sé kjósendum heimilt að bæta við nýjum nöfnum á atkvæðaseð- ilinn. 5) Atkvæðagreiðslan fer þannig fram, að kjósandinn raðar með tölusetningum allt að tíu nöfn- um á listanum, og fer talning fram eftir venjulegum reglum um hlutfaUskosningar. 6) Kjördæmisþing lcjósl sérstaka yfirkjörstjóm, sem sjái um undirbúning og framkvæmd prófkjörslns. 7) ICjördæmisþing kjósl sérstaka kjörnefnd, er taki á móti gögn- um yfirkjörstjómar. Kannar hún niðurstöðu prófkjörsins og leggur hana fyrir kjördæmis- þing, ásamt tillögu um fram- boðslista, tU endanlegrar af- greiðslu. Skal það kjördæmisþing koma saman svo fijótt, sem verða má, að loknu prófkjöri. Tillögurnar voru samþ. og kosin 10 manna nefnd sem á að vinna að því að skipa lista með allt að 20 nöfnum manna, sem gefa kost á sér til prófkjörs. Kjördæmisþing kýs síðan yfirkjörstjóm, sem sér um framkvæmd próf- kjörsins. Sérstök kjörnefnd kannar niðurstöðu prófkjörs- ins og leggur hana fyrir kjör dæmisþing ásamt tillögu um framboðslista til endanlegr- ar ákvörðunar. Hér er reynt að leita eftir vilja hins ahnenna kjósanda, um það hvernig framboðs- listinn skuli vera skipaður. Em slík vinnubrögð lýðræð- isleg og hvatning til hins al- menna kjósanda um að láta í ljós vilja sinn. Tíu manna nefndin, sem kjördæmisþingið kaus, hefur þegar tekið til starfa. Er hún skipuð mönnum úr öllum hlutum kjördæmisins og er formaður hennar Gísli Felix- son, Sauðárkróki. Mun nefnd in óska eftir því við flokks- félögin á hverjum stað, að þau tilnefni rnenn er þau óski eftir að verði á 20 manna prófkjörslistanum, er nefndin leggur fram til próf- kjörs. Frá Kvenfélagi Sjúkrahúss Siglu- fjarðar Aðalfundur Kvenfélags Sjúkraihúss Siglufjarðar var haldinn 26. nóv. s. 1. Stjórnin var öll endurkjör- in, en hana skipa: Kristine Þorsteinsson forrn., Ragn- heiður Sæmundsson ritari, Jóna Einarsdóttir gjaldkeri, Dagbjört Einarsdóttir með- stjórnandi og til vara Anna Snorradóttir, Dóra Jónsdótt- ir og Steinunn Rögnvalds- dóttir. Hinn árlegi bazar félags- ins var 3. nóv. s. 1. Inn kom kr. 60.450,00. Kvenfélag Sjúkrahússins færir öllum beztu þakkir fyr- ir góðar undirtektir við starfsemi félagsins og óskar öllum bæjarbúum gleðilegra jóla. Stjórnin Árnað heiila Séra Kristján Róbertsson hefur gefið saman á þessu árl eftirtalin brúðhjón: • 17. ágúst: Hallgrímur Jónsson og Brynja Jónsdóttir. • 30. ágúst: Valdimar Guð- mundsson . Vilhjálmsson og Jo- handine Amalie Sverrisdóttir. • 31. ágúst: Jóhann Örn Matt- híasson og Hulda Sigurðardóttir. • 31. ágúst: Birgir Guðjónsson og Soffía Svava Daníelsdóttir. • Jón frá Ljárskógum Þorsteins- son og Sigríður Anna Þórðardótt- ir. • 12. sept.: Hjálmar Jóhannes- son og Kolbrún Friðriksdóttir. • 14. sept.: Björn Bjarnason og Ardís Þórðardóttir. • 21. sept.: Stefán Vilhjálmsson og Alda Bryndís Möller. • 28. sept.: PáU Birgisson og Kristrún Þóra Gunnlaugsdóttir. • 28. sept.: Jóhann Ágúst Sig- urðsson og Valgerður Edda Bene- diktsdóttir. • 28. sept.: Salmann Helgi Krist- jánsson og Marselía Sigríður Jóns- dóttlr. • 5. okt.: Theódór Júlíusson og Guðrún Stefánsdóttir. ....EINHEBJI óskar hinum ungu brúðhjónum tU hamingju. JÖLABORÐ K.F.S. Lítið inn í kjörbúðina. Þar fáið þið allt sem þarf á jólaborðið. Kaupfélag Siglfirðinga íhaldsfrelsi Viðræður stjórnmálaflokk- anna um úrræði í efnahags- málum báru, sem kunnugt er, ekki árangur. Ríkisstjórn in vildi í engu breyta stefnu sinni — þeirri stefnu, sem er að gera íslenzka þjóð að ölmusulýð, sbr. tillögur á- byrgra erlendra aðila um samskot handa íslendingum. Stjórnin og stuðningsblöð hennar skrökva því upp og endurtaka dag eftir dag, sjálfum sér itil fróunar og öðrum til athlægis, að Fram- sóknarflokkurinn hafi ekki bent á nein úrræði önnur en höft — höft á gamla vísu. Þeirra eigið lausnarorð er „frelsi“. Þeir vakna með það á vörunum, þeir sofna með það milh tannanna, — minn- ugir þess, að 1 vitund þjóð- arinnar, sem um aldir bjó við erlenda kúgun, harðræði og höft, hefux frelsi löngum verið fegurst orða. Og ís- lenzkt þjóðfrelsi er ekki gamalt. Það hefur ekki enn slitið bamsskónum. Of margir létu blekkjast af fagurgala og frelsishjali lýðskrumaranna. Jarðvegur reyndist góður. Frækorn gaspraranna festu rætur. Fátæk þjóð fékk skyndi- lega fé handa á milli. Tekjur manna margfölduðust. Lífs- kjörin bötnuðu samfara ein- dæma árgæzku. Þjóðin kunni sér ekki hóf. Þúsundum saman fóm menn skemmti- reisur um allar álfur. íslend- ingar urðu orðlagðir á er- lendri gmnd fyrir óhófs- eyðslu. Annað var eftir því. Ríkisstjórnin ihorfði með stakri velþóknun á allt sam- an og þakkaði sjálfri sér alla velmegunina: Lof og dýrð sé mér! Hún hét þjóð- inni sama gullinu og sömu grænu skógunum, sama blessaða frelsinu, ef hún fengi að sitja áfram og ráða. Og ríkisstjómin fékk að ráða. Þjóðin kaus „frelsið". En „frelsi“ og „höft“ em teygjanleg og afstæð hug- tök. Óheft og hömlulaust frelsi leiðir til stjómleysis, síðan ófrelsis og áþjánar. Hvað hefur gerzt hér? 1 skjóli hins marglofaða innflutningsfrelsis hefur ver- ið haugað inn í landið ó- hemju magni af öllum hugs- anlegum óþarfa. Og ekki að- eins það. Fluttar hafa verið inn í stómm stíl alls konar iðnaðarvömr, sem framleidd- ar voru og framleiða mátti jafngóðar í landinu sjálfu, ívélar margvíslegar, tilbúin hús, bátar og skip o. m. fl„ fyrir þúsundir milljóna. I skjóli hins gullna gjaldeyris- frelsis hefur dýrmætum ! gjaldeyri verið ausið á báðar hendur, án þess að til hafi komið nokkur heildarstjórn eða hömlur stjórnarvalda. í skjóli hins eftirsótta athafna frelsis hefur öll fjárfesting verið skipulagslaus, stjóm- laus, án yfirsýnar um þarfir þjóðar og hagsmuni, — það eitt látið ráða, hverjir höfðu peninga í höndum eða vom mest innundir hjá banka- valdinu. Hitt er svo annað mál, að ófá þeirra miklu fyrirtækja, er náðarinnar nutu, hafa farið á hausinn, eigendurnir að vísu staðið jafnréttir, en bankamir tap- að, þjóðin tapað. Hverjar era svo afleiðing- ar af þessu mikla íhalds- frelsi Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuf lokksins ? Æ vaxandi verðbólga. Ægi- leg skuldasöfnun atvinnu- veganna, svo að hagræðing skulda og jafnvel skuldaskil era tahn óumflýjanleg. At- vinnuleysi yfirvofandi. Og hvað um nauðsynlegustu framkvæmdir? Jú, — vegir um landið em illfærir og ó- færir. Háskalegur skortur á skólahúsum og sjúkrahúsum — en verzlunarstórhýsi rísa í Reykjavík og peningalaus- ar peningastofnanir reisa peningahahir fyrir hundrað milljóna. Eyðslulán tekin 'hvert á fætur öðru meðan fást. Gengið fellt annað hvort ár að meðaltah. Þjóð- in sokkin í skuldafen. Og svo kórónan á öllu saman: Erlendum höfðingjum krop- ið í taumlausri auðmýkt. Ut- anríkisstefna engin til önnur en sú að fara í öhu, sem máli skiptir, að vilja Banda- ríkjastjórnar — og lítil virð- ing að launum. Hinu ber svo ekki að neita, að til era menn, sem eru harðánægðir með ástandið og raka saman fé í skjóh hins dýrðlega athafnafrelsis. Þeir eru „máttarstoðir þjóð- félagsins“ á morgunblaðs- máh. Þetta era mennirnir, sem bera ríkisstjórnina á háhesti. Þjóðin Kefur, sem vonlegt er, óbeit á „höftum“. Með alls ósæmilegum hætti hefur ríkisstjórnin reynt að nota sér þá óbeit til iþess að koma óorði á Framsóknarflokkinn. Hvað era höft? Frams.flokkurinn krefst breyttrar stjórnarstefnu. Flokkurinn leggur til að tek- in verði upp heildarstjórn á fjárfestingarmálum og fjár- magninu beint fyrst og fremst til lífvænlegra at- vinnufyrirtækja á þeim stöð- um, þar sem þörfin er brýn- ust. Flokkurinn leggur til að efld verði innlend iðnaðar- framleiðsla, bæði til heima- neyzlu og útflutnings. Flokk- urinn leggur til að upp verði tekin skipuleg stjórn á gjald eyrismálum og komið í veg fyrir þá taumlausu og heimskulegu gjaldeyrissóun, sem átt hefur sér stað að undanförnu. Flokkurinn legg ur til að atvinnuvegirnir verði treystir með öllum til- tækum ráðum, lánsfjármál- um þeirra komið í viðhlít- andi horf og vextir lækkaðir, illbæram sérsköttum af þeim létt, en skattar á eyðslu hækkaðir. Flokkurinn leggur til að stóraukin áherzla verði lögð á markaðsöflun. Flokk- urinn leggur til að söluskatt- ur á lífsnauðsynjum verði afnuminn, að beitt verði til hins ýtrasta sparnaði í opin- berum rekstri og hamlað gegn sívaxandi útþenslu. Flokkurinn leggur til að eft- irlit með framtölum verði stóram hert. Hér eru talin nokkur þeirra mála, sem fulltrúar Fram- Framhald á 11. síðu

x

Einherji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.