Einherji - 07.10.1970, Blaðsíða 1
DÚAL og NORDMENDE
stereotæki.
National segulbandstæki
margar gerðir.
Radíó- og Sjónvarpsþjónustan,
Sauðárkróki.
Blað Framsóknarmanna í Nórðurlandskjördœmi vestra.
6. tölublað Miðvikudagur 7. okt. 1970 39. árg.
Myndavélar — Sýningarvélar
Filmur — Flassperur
Myndarammar
Ljósmyndastofa
St. Pedersen
Sauðárkróki
Framtioöslisti Framsúknarflokksins í
ÓLAFTJR BJÖRN MAGNÚS SXEFÁN SIGURÐUR
Framboðslistinn er þannig skipaður:
1. Ólafur Jóhannesson, alþingismaður
2. Björn Pálsson, alþingismaður
3. Magnús Gíslason, bóndi, Frostastöðum
4. Stefán Guðmundsson, byggm., Sauðárkróki
5. Sigurður J. Líndal, bóndi, Lækjamóti
6. Bogi Sigurbjörnsson, skattendursk., Siglufirði
7. Guðmundur Jónasson, bóndi, Ási
8. Ólafur H. Kristjánsson, skólastj., Reykium
9. Helga Kristjánsdóttir frú, Silfrastöðum
10. Bjarni M. Þorsteinsson, verkstj., Siglufirði
Kjördæmisþing Framsókn-
armanna í Norðurlandskjör-
dæmi vestra var haldið í fé-
lagsheimilinu á Hvamms-
tanga sunnudaginn 6. sept.
s. 1. Auk kjörinna fulltrúa
sátu þingið alþingismennirn-
ir Ólafur Jóhannesson og
Björn Pálsson, formaður
Sambands imgra Framsókn-
armanna Már Pétursson,
Ath Freyr Guðmtmdsson er-
indreki og nokkrir gestir
aðrir. Þingforseti var kjör-
inn Gústaf Halldórsson,
Hvammstanga, en þingritar-
ar Þorsteinn Jónasson, Odds-
stöðum og Gísli Magnússon,
Frostastöðum.
Formaður kjördæmissam-
bandsstjórnar, Guttormur
Óskarsson, setti þingið og
minntist í upphafi ræðu sinn-
ar Skúla Guðmundssonar, al-
þingismanns. Risu fundar-
menn úr sætum í virðingar-
skyni við minningu hins látna
þingmanns. Gjaldkeri sam-
bandsins, Brynjólfur Svein-
bergsson, gerði grein fyrir
reikningum þess, en Guð-
rnundur Jónasson skýrði frá
fjárhag og reksti Einherja
til síðustu áramóta. Lög
Sambandsins ,sem verið
höfðu í endurskoðun milli
þinga, voru samþykkt.
Aðal viðfangsefni þingsins
að þessu sinni, var að ganga
frá framboðslista Framsókn-
arflokksins í kjördæminu við
næstu alþingiskosningar, en
eins og kunnugt er fór á s. 1.
ári fram ahnennt prófkjör
um skipun hstans. Var þátt-
taka í því mjög góð. A þing-
inu s. 1. ár var kosin „fram-
boðsnefnd“, er gera skyldi
tillögu um stkip'un listans að
afloknu prófkjöri og leggja
hann síðan fram til af-
greiðslu á þinginu nú. Var
tillaga framboðsnefndarinnar
um listaskipunina samþykkt
óbreytt.
Þá fóru fram kosningar í
miðstjórn, kjördæmissam
bandsstjórn og blaðstjórn,
en vegna rúmleysis verður
að bíða birting á nöfnum
þeirra, sem kosnir voru.
Undir dagskrárliðnum Önn-
ur mál, kom fram tillaga frá
Marteini Friðrikssyni um að
Frams.flokkurinn beitti sér
fyrir því, að upp væru tekin
einmenningskjördæmi og var
hún samþykkt.
Sleit svo Guttormur Ósk-
arsson þinginu, þakkaði þing
fuhtrúum góð störf og Vest-
ur-Húnvetningum frábærar
ar viðtökur.
SIGLUFJORÐUR
Afli losaður á land:
September 1969 661 tonn
September 1970 723 tonn
I september hafa gæftir
verið góðar og afli á línu
betri en áður um árabil á
þessum tíma. 8 bátar stimda
línuveiðar og er afli þeirra
í september þessi:
Tjaldur (58 t)
Dagur (201)
Veiðif. Lestir
14 65
20 115
Veiðif. Lescir
Hahdór G. (101) 14 22
Grímur (101) 16 38
Aldan 7 15
Viggó 6 9,5
Draupnir 4 9,2
Hafborg (opinn b.) 7 5,2
Dúfan, snurvoð 8
Milli 20 og 30 handfæra-
bátar hafa lagt á land í mán-
uðinum. Þá hefur Dagný
SI 70 lagt á land 180 tonn
og Siglfirðingur 136 tonn.
Siglfirzkur skuttogari
Skuttogarinn Dagný SI 70
kom til Siglufjarðar seint í
ágúst. Er hann keyptur frá
Þýzkalandi, um 500 lestir að
stærð og tiltölulega nýtt
skip. Er byggingarlag hans
og ,,innrétting“ nokkuð ann-
að en við eigum að venjast,
en Þjóðverjar eiga nú all-
marga skuttogara af þessari
gerð, en flesta stærri.
Togskip h. f. er eigandi
Dagnýar og er hún gerð út
frá Siglufirði. Skipstjóri á
Dagnýu er Kristján Rögn-
valdsson. Dagný hefur þegar
lagt á land í Siglufirði um
180 tonn og er nú í sinni 3ju
veiðiferð.
Siglfirðingar hafa orðið
fyrstir Islendinga til að eign-
ast skutbyggð togskip. Fyrir
nokkrum árum létu þeir
byggja togskipið Siglfirðing,
sem er skutbyggður og hef-
ur reynzt hið ágætasta skip
til togveiða Norðanlands.
Þá hefur útgerðarfélagið
Þormóður rammi í Siglufirði
nýlega samið um smíði á 500
lesta skuttogara. Verður
hann smíðaður hjá Stálvík
h. f. í Arnarvogi og á að
vera tilbúinn innan 15 mán.
Togarinn Hafliði er nú í
klössun á Akureyri og mun
af þeim sökum verða frá
veiðum í 2—3 mánuði.
isiili