Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1910, Síða 10

Freyr - 01.08.1910, Síða 10
104 FftEYR. Búnaðarsamband Suðurlands hélt aðalfund sinn, 8. júlí s. 1. — Geng- in eru í sambandið flest eða öll búnaðarfélögin á sambandssvæðinu, og voru mættir fulltrúar frá þeim flestum. Rædd voru á fundinum ýms mál, er Sam- bandið varðar, svo sem um framhald plæging- arkenslunnar, og skyldu nú ráðnir 2 menn til að kenna plægingar eftirleiðis. Tillaga kom og fram um ræktúnarkenslu innan sambandsins, helzt í hverju félagi, og ráðgert að ráða menn til þess að hafa hana á hendi. Eyrirlestra fluttu þar Þorfinnur Þórarins- son á Spóastöðum, og Jón Jónatansson. I stjórn Sambandsins voru kosnir, Agúst Helgason i Birtingaholti (formaður) og með honum Guðmundur Þorbjarnarson Stóra-Hofi og Jón Jónatansson búfx-. á Stokkseyri. % Kornforðabúr er þegar ráðið að komið verði á fót fyrir haustið í Bæjarhreppi í Strandasýslu. Hefir verið gerð samþykt um stofnun þess, og sótt um lán úr Viðlagasjóði til að koma því á fót. Bæhreppingar eiga heiður og þökk skilið fyrir að hafa orðið fyrstir til að þessu sinni að stofna kornforðabúr. — Væntanlega koma fleiri á eftir. * Ræktunarfélag Norðurlands hélt aðalfund að Breiðumýri í Beykjadal 23.—24. júní s. 1. — Mættir voru þar 17 full- trúar, og ank þess fjöldi af öðru fólki, um 200 manns, er flest var. A fundinum vorú rædd ýms mál, þar á meðal um samband búnaðarfélaganna nyrðra, og sýsluráðunauta. Skulu þeir mæla jarðar- bætur búnaðarfélaganna, hafa eftirlit með til- raunastöðvum og sýnisreitum Ræktunarfélags- ins o. fl. Eyrirlestra héldu þeir: Jakob Líndal, um jurtakynbætur; Páll Jónsson um hnignun land- gæða á Islandi; Páll Zófoniasson um vinnuaflið í sveitunum; Jónas Björnsson, um hirðing áburð- ar og Jón Þorbergsson ura framfaraviðleitni og framtíðarhorfur. * * Smjörsýning var haldinn að Þjórsártúni eins og tilstóð 8.—9. júlí s. 1. Var þar sýnt smjör frá 12 smjörbúum innan Smjörbúasambands Suður- lands. í dómnefnd um smjörið voru H. Grön- feldt, kennari (formaðnr) og bústýrurnar Elisa- bet Guðmundsdóttir og Herborg Þórarinsdóttir. Eyrstu verðlaun fengu: Hróarslœkjarbínö, bústýra: Herborg Þórai'insdóttir) og Þykkva- bœjarbúiö (bústýra: Margrét Júníusdóttir). — Alis fengu 8 bú verðlaun. * íþróttamót héldu ungmennafélögin norðanlands á Húsa- vík, 17. júní s. 1. - Ungmennafélögiu austan- fjalls hér syðra héldu sitt iþróttamót að Þjórs- ártúni, 9. júlí s. 1. Var þar þá saman kominn fjöldi fólks, um eða yfir 2000 manns. Þar var glímt og margar fleiri iþróttir reyndar. — Sá hét Haraldur Einai-sson frá Vik i Mýrdal, er hlaut glímuverðlaunin. Norskur framræslumaður að nafni Andrés hefir frá því hann var um tvitugt —; hann er nú 57 ára — gjört skurði um 100,000 faðma á lengd eða 25 mílur.' Skurða- gröftur hefir verið hans aðalatvinna um dagana. En auk þess hefir hann, mest í hjáverkum, ræktað upp 6—8 dagsl i óræktarmýri. Blett- urian er talinn að vera fyrirmynd, að því er snertir rækt og umhirðu; fóðrar 3 — 4 stórgripi. Andrés hefir alla tíð íátækur verið, enda átt fyrir mörgum að sjá. Hann á 10 börn og hefir komið þeim öllum upp. En duglegur hefir hann verið, og hafa fáir staðið honumþarjafn fætis. Þannig segist norsku búnaðarblaði — „Lundbrugst.11 — frá um þennan mann. % Verðlag smjörmatsnefndarinnar. „/# 3/ /o »/ /o ’«/ /« 23/ '0 30/ /o 7, ‘7, 27, ’10. Bezta smjör 95 kr. 100 pd. — — — 96 — — — — -*■ _ 96 - — — — —. 97 — _ _ _ % _ _ _ — — _ 96 — — —

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.