Mjölnir - 30.06.1939, Side 4
4
M J O L N 1 R
KRAKKAR!
Hafið þið séð nýju
LEIKFÖNGIN,
sem komin eru í
Geislann?
»Rauðka«.
Frh. aí 1. síðu.
Þremur dögum seinna, 24. mars
1937, skýrir Morgunblaðið frá því
að byggingarleyfið sé veitt. Hin
stóra fyrirsögn greinarinnar er svo-
hljóðandi:
•Þjóðarhagsmunir settir ofar pólitísku
ofsóknarœði«.
Morgunbl. taldi þá þjóðarhags-
muni að byggja nýja síldarverk-
smiðju og ofsóknaræði að hindra
það. En hvernig stendur á að þetta
blað þegir nú? Og þó er á allra
vitorði, að ekki er minni þörf á
nýrri síldarverksmiðju en 1937.
25. mars 1937 birti Mbl. ræðu
eftir Ó. Thórs, er hann flutti í út-
varpsumr. frá Alþingi. íræðu þess-
ari leitaðist Ó. Thors við að sanna,
hve mikil nauðsyn væri á nýrri
síldarverksm. og hve mikla atvinnu
hún myndi skapa, síðan heldur
hann áfram og segir að nú muni
málum vera svo komið, að »enginn
ráðherra sjái sér fært að standa
gegn leyfinu«. Ræðuna endaði Ól-
afur með því að fullyrða, að þeir
sem reyna »að varna því að reist
verði ný stór verksmiðja á Hjalt-
eyri, er veiti hundruðum manna
nýja, góða atvinnu« hljóti að
verða »að pólitísku liki fyrr eða
síðar«.
Siglfirðingar góðir! Hér hafið
þið dóm »Morgunblaðsins« frá
1937 um þá menn, sem hindra
byggingu nýrrar síldarverksmiðju
og þið hafið hér einnig lýsinguÓ.
Thórs frá sama tíma, á örlögum
þeirra manna, sem fremja slíkt
glapræði. Á ekki þetta við nú, þó
2 ár séu liðin?
Og hversvegna svarar ekki Ó.
Thórs — sem nú situr í ráðherra-
stóli — og veitir leyfið til að end-
urbyggja Rauðku.
Það er þegar orðið hneyksli.hver
Olíupils
Oluermar
Olíuhattar
Regnkápur
Gúmmístígvél
Gúmmívettlingar
Vinnuvettlingar
Síldarhnífa
o. m. fl. ódýrt og vandað hjá
Kaupfélaginu.
Ú t b o d.
Tilbod öskast í að mála eftirfarandi eignir
Hafnarsjóðs Siglufjarðar:
1. Hafnarhúsið á bæjarbryggjunni að utan.
2. Viðbóíarbygginguna við Hafnarhúsið
að innan.
3. Ránargata 9 að innan.
4. Ránargata 9 að utan.
5. Brakkinn á Ingvarsstöðinni að innan.
6. Brakkinn á Ingvarsstöðinni að utan.
Hafnarsjóður leggur til allt efni.
Tilboð óskast sundurgreind í hvert einstakt
af þessum verkum. Tilboðum skal skilað fyrir
kl. 12 á hádegi þ. 2. júlí til Páls Jónssonar
bæjarverkstjóra. Áskilinn réítur til þess að
taka hvaða tilboði sem er og hafna öílum.
Siglufirði, 29. júní 1939.
HafrearnefEidBn.
dráttur hefir orðið á svari ríkis-
stórnarinnar. Nú heimtum við Sigl-
firðingar að fá svar og meira að
segja játandi svar, og við heimtum
að það komi skýrt fram, hverjir
eru fjandmenn okkar og vinna gegn
málum okkar. Bæjarstjórnin verður
að gefa skýrslu um málið á opin-
berum bæjarstjórnarfundi, því þetta
er mál allra bæjarbúa, en ekkert
einkamál bæjarstjórnar.
Ef við Siglfirðingar stöndum sam-
an í máli þessu og setjum hags-
muni heildarinnar öllu ofar, látum
flokkspólitíska sérhagsmuni víkja
sýnum það strax að almennings-
álitið mun brennimerkja andstæð-
inga málsins sem pólitíska stiga-
menn, er innan skamms verði
• pólitísk lík«, þá getum við end-
urbyggt »Rauðku« fyrir næstu
vertíð. 0. S.