Mjölnir - 21.10.1941, Blaðsíða 1
Útgefandi: SÓSÍAUSTAFÉLAG SIGLUF3ARÐAR.
4
. árgangur
Siglufirði, þriðjudaginn 21. okt. 1941
22. tölubl.
Minningarord.
Sjaldan hafa Siglfirðingar orðið
fyrir öðru eins áfalli eins og þegar
m/b. Pálmi fórst. Fimm menn í
einu drukkna, allt duglegir atorku-
menn og sumir þeirra frá stórum
fjölskyldum. Þetta átakanlega slys
kemur líka öllurn svo óvart, veður
var sæmilegt, litlir opnir bátar eru
á sjó, leggja og draga lóðir sínar
og hlekkist ekkert á, en þessi bát-
ur, nýuppgerður og sterkur,
dekkaður og betur fær um að
mæta misjöfnu, kemur ekki aftur
af sjónum. Enginn getur sagt um
hvað valdið hefur. Það eina, sem
ber órækt vitni um hver endirinn
varð, er likið af unga, hrausta
piltinum, sem fannst í björgunar-
beltinu 2 til 3 sjómílur utan við
Stráka.
Mörgurn getum hefur verið að
því leitt, hvað valdið hafi hinum
sorglega atburði og hafa sumir
látið sér detta í hug, að veður hafi
grandað bátnum. Slíkt er með öllu
óhugsandi. Aðrir hafa gizkað á, að
sveifarásinn hafi brotnað og bullan
brotið sig niður úrbátnum. Þannig
löguð slys áttu sér stað fyrr á ár-
um, þegar umbúnaður á bátum og
vélum var allur annar en nú tíðk-
ast, en nú er þetta svo að segja ó-
hugsandi. Sama er að segja um
þá tilgátu, að sveifarásinn hafi
bilað svo framarlega, að »sving«-
hjólið hafi brotnað af og kastazt
af afli út í síðu bátsins og brotið
hana. Þá hefur verið gizkað á, að
báturinn hafi brunnið. Ekki er það
heldur sennileg tilgáta, því þó að
kvikni í litlum bát úti á hafi, er
það nokkurn veginn fullvíst, að
eldurinn verður slökktur, áður en
báturinn brennur mikið, enda mun
það aldrei Iiafa komið fyrir í sögu
litlu mótorbátanna hér á landi, að
bátur hafi brunnið svo mjög, að
hann hafi sokkið. En hvað hefur
þá valdið hinu ægilega slysi?
Raunar er varla nema um eitt að
ræða og það er, að báturinn hafi
rekizt á eitthvað, annað hvort á
eitthvert rekald eða skip. Það
getur auðvitað komið fyrir, að
bátur rekist á spýtu eða eitthvert
annað rekald, en það er sjaldgæft
og það kemur oftar fyrir, að tvö skip
eða bátar rekast á og þegar tekið
er tillit til þess, að næstu dagana
eftir að Pálmi fórst, sáu bátar
héðan frá Siglufirði tugi skipa, er
sigldu hér urn smábátamiðin ljós-
laus, þá virðist gátan ekki lengur
jafn vandráðin. Þ. G.
Með m/b. Pálma fórust þessir
menn, sem allir voru búsettirSigl-
firðingar, dugnaðarmenn og hinir
beztu drengir:
Kristján Haiigrímsson
fæddur 14. marz 1892 að
Kaplastöðum, Sléttuhlið í Skaga-
firði. Var hann sonur þeirra hjóna
Hallgríms Jónssonar og Ingibjarg-
ar Jónsdóttur. Síðar fluttust þau
hingað til Siglufjarðar og áttu um
hríð heima á Skútu. Héðan fór
Kristján heitinn út til Noregs og
dvaldi hann þar um 10 ára skeið.
Giftist hann þar fyrri konu sinni,
en hún dó eftir fremur stuttar
samvistir. Átti hann með henni tvö
börn, dreng og stúlku og eru þau
bæði á lífi, stúlkan úti i Noregi,
en drengurinn, Hermann Kristjáns-
son hefir alizt upp hjá föður sínum
hér á Siglufirði. í Noregi kynntist
Kristján heitinn eftirlifandi konu
sinni Kaju Hallgrímsson. Fluttu þau
hingað til Siglufjarðar og hafa bú-
ið hér síðan. Áttu þau saman þrjú
börn og eru þau öll á lífi og hinn
mannvænlegustu.
Kristján heitinn var hinn mesti
dugnaðarmaður, stundaði hann hér
allskonar vinnu. Hann var ágætur
beykir og fékkst mikið við slík
störf á sumrum, einnig vann hann
við bryggjusmíð, og við sjómennsku
og var hann meðeigandi að m. b.
Pálma. Kristján heitinn var elju-
maður, og svo hagur, að honum
lék flest í höndum, er hann snerti
á. Hanri var ágætur starfsfélagi og
drengur hinn bezti.
lúlíus Einarsson
varfæddur i Viðvík við Vopnafjörð,
og ólst þar upp með foreldrum
sínum Einari og Margrétu. Síðar
fluttist hann til Vestmannaeyja og
átti þar heima um hríð og stund-
aði sjómennsku. Þaðan fluttist hann
hingað til Siglufjarðar, og giftist
hér 1930 eftirlifandi konu sinnilngi-
björgu Guðmundsdóttur. Átti hann
með henni 6 börn og eru þau öll
í ómegð, það elzta aðeins 11 ára.
Júlíus heitinn stundaði hér alla
vinnu og þótti dugnaðarmaður, að
hverju sem hann gekk. Hann var
og þaulvanur sjómaður, og var
bæði skipstjóri og vélamaður á
bátnum, sem hann fórst á. Hann
lætur eftir sig konu og 6 börn, og
auk Jþess foreldra, er búa í
Reykjavik og tvö systkin og á
annað þeirra heima í Reykjavík,
en hitt í Vestmannaeyjum.
Júlíus heitinn var verkalýðssinni
ag sósíalisti, var hann félagi í
Kommúnistaflokknum og síðar