Akranes - 10.06.1942, Síða 6
6
AKRANES
Annáll Akraness
Mannalát.
Þann 24. apríl s. 1. andaðist að
heimili sínu hér í bæ frú Guðrún Finns
dóttir, eftir langvarandi vanheilsu. —
Frú Guðrún var ein af þeim konum,
er helgaði heimili sínu alla starfs-
krafta sína, enda rækti hún það starf
með prýði.
21. s. 1. andaðist á Landsspítalanum
frú Sigrún Sigurðardóttir á bezta
aldri og var hún mikill harmdauði öll-
um, er til hennar þekktu. Sérstaklega
er sár harmur kveðinn að eftirlifandi
eiginmanni hennar, Daniel Vigfússyni,
og 8 börnum þeirra, flestum ungum.
S jómannadagurinn..
Sunnudaginn 7. júní s. 1. var dagur
sjómanna hátíðlega haldinn hér,
sem víða annars staðar á landinu. —
Fyrst fóru fram íþróttir úti og var
keppt í sundi, synt var í sjónum við
Langasand, var aðstaða ekki góð því
smá hræring var við sandinn. Fyrstur
að marki varð Jóhann Hjartarson, en
hann vann einnig sundkeppni sjó-
mannadagsins í fyrra. Þá var keppt í
knattspymu og áttust við skipstjórar
og vélstjórar annars vegar og sjó-
menn hins vegar. Leikar fóru þannig,
að sjómenn unnu með 2 : 1.
Þá fór fram kappróður, hlutslcörp-
ust varð skipshöfnin af m/b Hrefnu.
Um kvöldið var fjölbreytt skemmt-
un í Báruhúsinu og dans stiginn fram
eftir nóttu. — Brúttó tekjur dagsins
voru um kr. 4000.00 og verður öllum
ágóðanum varið til Bjarnalaugar.
Verzlunarmannafélag Akraness.
Ekkert verzlunarmannafélag hefir
verið starfandi hér á Akranesi, fyrr en
nú að gengið var frá stofnun Verzlun-
armannafélags Akraness þann 16. júní
s. 1. Stofnendur voru 34. 1 stjóri' fél-
agsins voru kosnir: Jón Sigmundsson
form., Óðinn S. Geirdal ritari og Þórð-
ur Bjarnason gjaldkeri.
íþróttakeppni.
Hin árlega vorkeppni milli Knatt-
spyrnufélags Akraness og Knatt-
spyrnufélagsins ,,Kári“ hér á staðnum,
hófst með kappleik í II. aldursfiokki
þann 18. júní og sigraði „Kári“ með
3 :2 mörkum. Dómari var Óðinn S.
Geirdal. IH. flokks leikur fór fram
19. s. m. og sigraði „Kári“ með 5 : 4.
Dómari var ólafur F. Sigurðsson
Sunnudaginn 21 júní var svo keppt
í I. aldursflokki um knattspyrnubikar
Akraness og vann Kári þann leiit með
4 mörkum gegn 1 og þar með sæmdar-
heitið „Bezta knattspyrnufélag Akra-
ness“. Þá var einnig keppt í hand-
knattleik kvenna, og var keppt um
nýjan bikar, er íþróttaráð Akraneess
hafði gefið. Vann „Kári“ þann leik
met5 2 mörkum gegn 1. Baldur Möller
dæmdi báða þ’essa síðasttöldu leiki.
Á sunnudagskvöldið hélt móta-
nefndin dansleik í Báruhúsinu, og þar
afhenti Sigurður Guðmundsson, form.
K. A. verðlaunagripi þá, sem keppt
var um.
Vertíðin.
Vetrarvertíðinni á Akranesi lauk að
þessu sinni 20. maí. Mestur vertíðar-
afli við Faxaflóa mun að þessu sinni
hafa verið hér á Akranesi. Gæftir voru
fremur góðar og aflj ágætur með köfl-
um. —
Hæstan lifrarafla hafði nú, eins og
í fyrra, m/b Egill Skallagrímsson, en
skipstjóri á honum er Ragnar Frið-
riksson. Hásetahlutur á aflahæstu bát-
unum mun, með áætluðu lifrarverði,
vera kr. 9.000,00. Alls munu Akranes-
bátar 21 að tölu, hafa fiskað fyrir ca. 4
milljónir króna í vetur, og er þá meðal
afli á bát um 200 þúsund krónur. —
Fer hér á eftir lifrarafli bátanna.
Egill Skallagrímsson.35569 ltr.
Hermóður ............... 35430 -
Ægir .................... 33352 -
Ver...................... 32430 -
Hrefna ...................32408 -
Höfrungur ................32215 -
Víkingur .................32005 -
Ármann ...................31279 -
Fylkir ...................31185 -
Skírnir ................. 29707 -
Sigurfarj ............... 29665 -
Reynlr .................. 29482 -
Bangsi .................. 27732 -
Guðný ................... 27450 -
H/araldur ................. 26816
Sjöfn ................... 26226 -
Valur ....................25593 -
Frigg ................... 18766 -
Sæþór ................... 17246 -
Sæyar ................... 10097 -
Alda ..................... 8945 -
Aðrir bátar ............. 23609 -
Ýmsir..................... 4183 -
Samtals 601690 -
Kristilegt landsmót.
Landsmót trúaðs fólks, sem þekkt
er undir nafninu Hraungerðismót. hef-
ir staðið yfir hér á Akranesi dagana
20. til 22. júní Þóttj það ekki tiltæki-
legt að hafa það að Hraungerði að
þessu sinni, þar sem séð þótti að bíla-
skortur yrði tilfinnanlegur til að koma
fólki því, er mótið vildu sækja, að
Hraungerði. Aðkomufólk mun vera um
400 manns auk Akranesinga, er þátt
taka í mótinu. Tjaldbúðir voru reist-
ar á Kirkjuvallartúni, tjaldborgin var
all stór, eða um 90 tjöld alls, var inn-
gangshlið fagurlega skreytt með
áletrunum og svo öll tjaldborgin með
fánum, einnig var inngangur við Akra-
neskirkju fagurlega fánum skreytt-
ur. —
Guðþjónustur voru í Akraneskirkju
alla dagana og flutti þar ræðu auk
annara sóknarpresturinn, síra Þor-
steinn Bfiem, einnig voru útiguðsþjón-
ustur. Fjöldi heillaskeyta bárust mót-
inu víðsvegar að af landinu.
Mótinu sleit mánudaginn 22. að
kvöldi, og voru aðfaranótt þriðjudags
tjöld upp tekin. Mót þetta hefir sett
allmikinn hátíðasvip á bæinn á með-
an það stóð yfir, og ekki er að efa, að
margir Akranesingar munu þakka
þessum gestum, er hér hafa dvalið
þessa daga, fyrir komuna hingað.
Akumesingar!
öllum ykkur, sem af kærleika og
fórnfýsi hafið styrkt mig og heimili
mitt, í andbyr og erfiðleikum undan-
farna mánuði, og nú síðast við andlát
og jarðarför konunnar minnar, Sig-
rúnar Sigurðardóttur, þakka ég hjart-
anlega.
Guð blessi ykkur öll.
Daniel Vigfússon.
50 ára afmæli
átti góðkunnur Akurnesingur, Ás-
mundur Jónsson, rafvirki, frá Dvergar
steini. — Ásmundur flutti til Reykja-
víkur í fyrra og á nú heima í Miðstræti
4. Ásmundur er vinsæll og drengur
hinn bezti. Hann er Akumesingur í
húð og hár og hefir tekið mikinn og
farsælan þátt í félagsstarfi vor á með-
al. Um leið og vér þökkum þau störf,
beggja þeirra hjóna, óslcum vér hon-
um og fjölskyldu hans innilega til
hamingju með hálfrar aldar runnið
skeið. —
Bjamalaug hefir enn borist stór gjöf:
Frá Þórði Ásmundssyni kr. 3000.00.
Teikningar eru komnar og eru til
athugunar.
Nefndin þakkar þessa gjöf og von-
ar að laugin sjálf verði byggð í sumar.
Hajlgrímur Tómasson
biður blaðið að flytja ölum for-
mönnum á Akranesi sitt innilegasta
þakklæti, fyrir drengskap þeirra við
sig á nýafstaðini vetrarvertíð.
Feriðasjóður Iðnema.
Nemendur Iðnskólans hér eru mjög
þakklátir Þorgeiri Jósefssyni fyrir
höfðinglega gjöf 100 kr. í ferðasjóð
þeirra á þessu sumri. 1 vetur efndu
þeir til skemmtunar í þessu skyni, en
það bar lítinn árangur vegna róðra
þá daga sem skemmtunina skyldi
halda. Sá litli árangur, sem náðist,
þakka þeir ókéypis aðstoð Guðm.
Egilssonar o. fl.
Þessir ungu menn vona, að meist-
arar þeirra fari að dæmi Þorgeirs, og
styrki þetta áhugamál þeirra. — Það
munu þeir aftur endurgreiða í meiri
afköstum, dyggari þjónustu og meira
námi næsta vetur.
NÝ SAUMSTOFA !
Höfum opnaÖ saumastofu á Vesturgötu 48,
sem saumar allskonar kfóla, blússur, pils o. fl.
á kvennfólk, allt eftir nýjustu tísku. — . . .
Áherzla lögö á smekklega, fyrsta flokks
vinnu. —— Fyrirliggjandi Kjólaefni í miklu
úrvali.
Verzlun Þórð'ar Ásmundssonar.
TILKYNNING !
Mjólkursalan er flutt í verzlunarhúsið á
Vesturgötu 48. — BúSin veröur opin alla
virka daga frá kl. 8 árd. til kl. 7 sd. og sunnu-
daga frá 1. 8 árd. til kl. 5 sd. -
Selt ventSur: Mjóllc, sky.r, rjómí, smjör,
smjörlíki, tólg og ostar; einnig brauS og
Ikökur. — Áherzla lögÖ á hreinlœti og gótSa
afgreiðslu.
VirÖingarfyllst,
Verzlun Þórðar Ásmundssonar.