Akranes - 01.06.1944, Side 14
74
AKRANES
VERZLUNIN
Framhald af bls. 70.
Verzlun Jóhaimesar Jósefssonar
Jóhannes flytur hingað líklega 1914, sezt að
í Ráðagerði og stundar söðlasmíði. Fljótlega
tekur hann og upp skóviðgerðir. 1918 kaupir
hann svo húsið í Efri-Lambhúsum af firmanu
Bjarni Ólafsson & Co. og heldur þar áfram
fyrri rekstri. En á sama ári lagar hann til kjall-
ara hússins og gerir svo úr garði, að hann geti
haft þar litla verzlun, sem hann setur þar á
fót. Hann flytur héðan til Borgarness líklega
1920. Þar heldur hann áfram verzlunarrekstri
sínum, sem hann jók nokkuð og hafði allstóra
verzlun þar, er hann féll frá. Hann drukknaði
árið 1925 á leið til Borgarness, er m.b. Hegri
strandaði á leið frá Reykjavík.
Jóhannes var duglegur maður og góður dreng-
ur.
Verzlun Petreu G. Sveinsdóttur
Petrea byrjaði verzlun sína með því að taka
við bóksölu föður síns (Sveins Guðmundsson-
ar) 1920 og hélt henni áfram til ársins 1938, er
hún um nokkurn tíma þurfti að leggjast inn á
sjúkrahús. Petrea er óvenjulega þrifin og reglu-
söm um alla hluti, voru því bækur sem annað,
er hún hafði undir höndum vel um gengið og er
það ekki lítill kostur, sérstaklega um pappír og
bækur. Það er því mikill munur fyrir bókaút-
gefendur, hvort þeir eiga bækur sínar í slíkra
höndum eða þeirra, sem láta sig það engu
skipta, hvort það er rifið eða skítugt eða jafn-
vel gengið á því. Það er víst ekki óalgengt að
bóksalar geri sér þannig tjón með hirðuleysi
sínu, að þeir geti ekki selt „skítinn" og hins
vegar geri bækurnar ónýtar fyrir eigandanum,
nema þá á fornsölu.
Þegar Petrea hætti bókaverzluninni lét hún
hana í hendur Andrésar Níelssonar, sem hefur
rekið hana síðan.
Árið 1928 byggði Petrea _ sér lítið hús, Efri-
Mörk, við Skírnisgötu 12. Út bjó þar litla búð,
þar sem hún hafði bókaverzlunina og samhliða
lítils háttar af vefnaðarvöru. En 1938 hætti hún
allri verzlun eins og áður er sagt.
Petrea er vel menntuð. Gekk á Kvennaskól-
ann í Reykjavík 1901 og 1902. Var um eins árs
skeið á skrifstofu Thomsens í Reykjavík 1907,
og var hér um mörg ár kennari við barnaskól-
ann.
Árið 1934 ferðaðist hún til Frakklands, Eng-
lands og Danmerkur og var í þeirri ferð um
sex mánuði.
Yerzlun Árna Böðvarssonar
Árið 1923 stofnsetti Árni verzlun í þar til
gerðum skúr, sem er áfastur við hús hans, Ás,
við Vesturgötu. Seinna varð meðeigandi verzl-
unarinnar frændi hans Jóhannes Helgason frá
Tungu í Svínadal. Þessi verzlun hafði aðallega
á boðstólum matvörur og smávörur. Þeir lögðu
verzlunina niður eftir nokkur ár. Eftir það
leigði Árni húsið ýmsum til verzlunar, og hef-
ur þannig oftast einhver verzlað þar síðan.
M. a. þessir: Halldór Jónsson (Halldórsson),
Júlíus Evert og verzlunin Brú, sem ýmsir hafa
verið eigendur að. Þeir hafa allir verzlað með
sams konar eða svipaðar vörur.
Yerzlun Jóns Sigmundssonar
Jón verzlaði hér í 10 ár, frá 1925—1935. Hann
er fæddur hér í Görðum og hefur verið hér
alla ævi, að undanteknum nokkrum árum, er
hann átti heima í Borgarnesi. Hann vann hjá
Kaupfélagi Borgfirðinga frá áramótum 1921 til
vors 1925, er hann flutti hingað aftur og setti á
fót umrædda verzlun sína. Hann verzlaði fyrst
í búð Þórðar Ásmundssonar (á þeim tíma er
verzlun Þórðar lá niðri), en í búð Guðjóns
heitins Jónssonar eftir lát hans.
Til þess er Jón fluttist í Borgarnes hafði hann
lang mest fengist við sjó, mest á mótorbátum
hér, í Sandgerði og Veslmannaeyjum. Eitt ár
var hann líka við verzlun Guðjóns Jónssonar,
þá er hann verzlaði í gömlu Oddgeirsbúð, (þar
sem nú er hús Þorgeirs Jósefssonar).
Síðan Jón hætti verzluninni hefur hann ann-
ast reikningshald imargra báta, síldarverksmiðj-
unnar, Sindra o. fl.
Kona hans er Hendrikka Ólafsdóttir Finsen.
Yerzlunin Bræðraborg og
Verzlun Sigurðar Vigfússonar
Þeir bræðurnir, Sigurður og Daníel Vigfús-
synir, settu á fót verzlun haustið 1927 undir
nafninu „Bræðraborg". Áður hafði Sigurður
verið við verzlun Guðjóns Jónssonar um 5 ára
skeið. En Daníel hafði verið um nokkur ár í
Hafnarfirði og numið þar trésmíði. Þessi verzl-
un þeirra hafði þá fyrst aðsetur í verzlunarhúsi
Þórðar Ásmundssonar, (en hans verzlun lá þá
niðri um allmörg ár, en leigði þá hinum og
öðrum húsin á imeðan). En 1930 byggðu þeir
stórt verzlunar- og íbúðarhús við Skírnisgötu
2 og fluttu verzlunina þangað. Þar verzluðu
þeir til 1. okt. 1934. Þeir fengust nokkuð við út-
gerð á þessum árum, en gekk illa, svo sem
mörgum öðrum á þeim tímum, og urðu að
mestu að hætta öllum rekstri í bili. Daníel tók
þegar til við sína iðn og hefur stundað hana
síðan, nema part úr ári, sbr. verzlunina Brú
hér á eftir, en hefur þó verið heilsuveill. En
Sigurður byrjaði aftur verzlunarrekstur í febr.
1937, fyrst í verzlunarhúsi Guðjóns heit. Jóns-
sonar, síðan í lítilli búð í Ásbergi og nú síðast
í hinu nýja húsi Bergþórs Guðjónssonar við
Skírnisgötu.
Sigurður verzlar aðallega með matvörur og
ýmsar smávörur. — Hann er hinn liðlegasti
verzlunarmaður.
Sláturfélag Suðurlands.
(Áður verzlunin Bræðraborg).
Sláturfélag Suðurlands — Útibú
Hinn 5. marz 1928 kom fyrir aukafund Slát-
urfélagsins beiðni frá öllum bændum í Innri-
Akraneshreppi, Skilmannahreppi og Leirár- og
Melahreppi um inngöngu í félagið. Umsókn
þessi var því skilyrði bundin, að slátrun á fé
þeirra færi fram á Akranesi, og kjötið síðan
flutt þaðan til Reykjavíkur. (Þangað til höfðu
kaupmenn á Akranesi annast fjártöku bænda
að langmestu leyti á þessu svæði og víðar, og
slátrað því á Akranesi).
Á aðalfundi 1928 var samþykkt að verða við
þessari beiðni bændanna, ef viðunandi samn-
ingar tækjust um frystingu kjöts þar á staðn-
um. Var samið á þeim grundvelli, að félagið
kostaði slátrun og frystingu, en fjáreigendur
flutning varanna til sláturhússins í Reykjavík.
Samið var við firmað Bjarni Ólafsson & Co„
sem með samningi tóku að sér slátrun á fé úti-
búsins og jafnframt að veita nægilegt húsnæði
til slátrunarinnar, annast reikningshald og út-
borganir. Einnig tók sama firma að sér fryst-
ingu og geyimslu á kjöti útibúsins; sölu á því
sem hægt væri að koma á markað á Akranesi,
og ennfremur söltun og binding á gærum o. fl.
Á Akranesi hefur engin kjötsöltun farið fram
síðan, en meiri hluti kjötsins hefur verið fryst-
ur þar og seldur þar ýmist utanlands eða innan.
Nokkuð af kjötinu hefur vitanlega ætíð verið
selt í kauptúninu, og nokkuð flutt til Reykja-
víkur í sláturtíð.
Árið 1930 setti félagið á fót kjötbúð á Akra-
nesi í sambandi við slátrunina þar. Það var
fyrsta kjötbúð, sem þar var sett á fót, og var
fyrst til húsa í kjallaranum á Auðnum. Þegar
félagið keypti 1935 hús þeirra Sigurðar og Dan-
íels Vigfússona, við Skírnisgötu, var verzlunin
nokkuð stækkuð og aukin frá því sem fyrr
hafði verið, enda var þá fenginn sérstakur mað-
ur til að standa fyrir verzluninni. En hann
kynnti sér áður sams konar starf hjá félaginu
í Reykjavík. Það var Andrés Níelsson. Hafði
hann þetta starf á hendi til ársins 1942, en þá
tók við því starfi sá maður, sem haft hefur það
á hendi síðan, Elías Guðjónsson. í hinum fyrri
stað hafði þetta aðallega á hendi ungfrú Her-
dís Jónsdóttir á Klöpp.
Bjarni Ólafsson & Co. tók að sér slátrun
fjárins, útborgun o. fl. samkv. framansögðu,
allt fyrir ákvæðisverð. Eftir að stríðið braust
út, varð óhægra um fólk til starfsins, auk þess
sem allt fór hækkandi. Sögðu þeir félagar því
upp þessu tsarfi, en buðust til að lána félaginu
áfram húsin til afnota við slátrunina. Hefur
starfsmaður félagsins við verzlunina því haft-
þetta á hendi síðan 1940, en slátrunin farið
fram í sömu húsum.
Á þessu tímabili imun slátrun félagsins hafa
verið hér á Akranesi mest um 6000 fjár árlega
og minnst um 2500.
Framkvæmdastjóri félagsins, Helgi Bergs,
hefur verið mjög liðlegur til samstarfs og úr-
lausnar þeim málum, sem snert hafa þessa
starfsemi félagsins hér.
Verzlunin Frón
Þeir Ólafur Sigurðsson frá Sýruparti og Jón
Hallgrímsson frá Bakkagerði keyptu eins og
áður segir vöruleyfar matvöruverzlunar B.
Ólafsson & Co. í Hoffmannshúsi og byrjuðu þar
verzlun undir ofanrituðu nafni 1931.
Árið 1933 byggði Jón Hallgrímsson stórt stein
hús við hliðina á Hoffmannshúsi og flutti þang-
að verzlunina. En þá var Hoffmannshúsið allt
lagt undir hótelið. Þeir félagar verzluðu svo
þarna þangað til Jón andaðist 16. nóv. 1940.
Skömmu þar á eftir var verzlunin löggð nið-
ur. Hefur Ólafur síðan starfað við verzlun
Þórðar Ásmundssonar (hann er kvæntur Ólínu
dóttur Þórðar).
J