Akranes - 01.09.1944, Síða 6

Akranes - 01.09.1944, Síða 6
114 AKRANES ísland þáittakandi í allieimsráðstefnum Magnús Sigurðsson bankastjóri Landsbanka íslands og formaður sendinefnd- ar íslands á fjármálaráðstefnu hinna sameinuðu þjóða, er hér að tala við einka- ritara sinn, ungfrú Mörtu Thors. Ráðstefnan var haldin í Bretton Woods, í norðaustur hluta fylkisins New Hampsihre, og hófst 1. júlí 1944, með þátttöku 44 Bandamanna-þjóða. Þær voru boðaðar á ráðs'tefnuna af forseta Bandaríkjanna F. D. Roosevelt, til þess að ræða um eða grundvalla fjáúiagslegt öryggi þessara þjóða sem og alþjóðaviðskipta eftir stríð og fjárhagslegt samstarf í framtíðinni. Aðalumræðurnar snerust um fyrirœtlanir hvað snertir alþjóðabanka, framlag til endurreisnarinnar og eðillegrar þró anar viðskipta þjóða í milli. V orvísur Kvæði það, sem hér birtist, er eftir Ingivald Nikulásson frá Bíldudal. Hann er rnjög vel greindur maður og hinn mesti „grúskari". — Hann skrifar afbragðshönd, teiknar ljómandi vel, með mikilli nákvæmni, og ber skyn á marga hluti, þó algerlega sé hann óskólageng- inn. Hann er vel hagmæltur, svo sem eftirfar- andi kvæði ber vitni um. Ingivaldur hefur safnað óhemju af fróðleik, sem hann á í hand- ritum, en aðeins örlítið hefur birzt á prenti. Ef til vill verður síðar hér í blaðinu birt eitthvað fleira frá hans hendi. Ekki hafði ég heyrt þessa manns getið, fyrr en ég kom nýlega á Bíldudal. Gerði ég því til- raun til að ná tali af Ingivaldi, hvað og tókst. Þótti mér enn vænna um þetta, er við höfðum talast skamma stund við; en þá komst ég að því, að Jóhanna Jónsdóttir á Litlateig (Jóka, sem dálítið er skrifað um x jólablaði „Akarness" 1942) var ömmusystir þessa Ingivalds Nikulás- sonar. Hér koma svo vorvísur Ingivalds: Andar blíðvakinn blærinn yfir brekkur og grund. Varpar sólstöfum særinn. Nú er sumar í mund: Þögnuð beljandi brimin, komin blómin í tún. Ljómar heiðfagur himinn yfir háfjalla brún. Hýr á heiðbjörtum kvöldum sveipuð hafskýja glóð vakir eygló á öldum yfir útnorður-slóð. Þá und Víðbláins vangi hverfa vámyrkrin svört. Ægis fögru í fangi roðnar Fjallkonan björt. Bæði aldnir og ungir þrá og elska þig, vor. Mildast mótstraumar þungir hvar sem markar þú spor. Börnum klakans og kífsins ljærðu krafta og skjól. Þú ert ljósheimur lífsins krýndur ljómandi sól. Mun þá enginn konuna lengur? „— móðir kona meyja, meðtak lof og prís —“ Þetta alkunna ávarp Matthíasar virðist ekki hafa verið ofarlega í hugum karlmannanna á einni mestu fagnaðar- og þakkarstund íslenzku þjóðarinnar, 17. júní s. 1. Var engri konu boðið að koma fram? Var þeim meinað að koma þar íram? Þrátt fyrir þessi leiðinlegu mistök, hóf kona upp rödd sína á hinum sögufræga stað. Það var einmitt kona, sem fegurst kvað um landið og þjóðina á þessari miklu hátíð. Karlmennirnir gleymdu konunni, en hún gleymdi ekki þraut- um þjóðarinnar og sigrum, vonum hennar og framtíðardraumum, né heldur lét hún fara fram hjá sér mestu hátíðaaugnablik þjóðar sinnar. íslenzka konan má aldrei, — skal aldrei — gleyma sínu hlutverki. En það minnsta, sem við karlmennirnir getum gert, er að viðurkenna starf þeirra og stríð fyrir þjóð okkar, — sem sízt er minna virði en karlmannanna. — Man þá enginn lcngur að hún hefur verið „ljós í þúsund ár“. Að hún hefur þerrað tárin, þegar eymdin og niðurlægingin var mest. Að hún hefur fyrr og seinna talaö kjark í margan karlmanninn, þegar hann ætlaði að kikna und- ir ofurþunga erfiðleikanna. Að hún hefur kom- ið karlmönnunum „til manns“ og kennt þeim „hið helga og háa“. Minnist þess allur landslýður, að ef konan hættir þessu óviðjafnanlega starfi, sem hún hef- us ræltt- -um -aidir,- -þ'eim sjálfum tll Varanlcgs heiðurs, þroska og giftu þjóðarinnar. Ef megin kostir góðrar konu fá ekki áfram að njóta sín í lífi þjóðarinnar, er engin vissa fyrir því að þjóðin þoli „meðlæti" á komandi tíð til jafns við þrautir og þjáningar hins liðna. Munið, að heimilið er „haldreipið“ og að kon- an er höfuðdjásn og prýði heimilisins. Símon síyrkjandi Nýlega hefur verið minnst 100 ára afmælis Símonar Dalaskálds, og mun vera í ráði að gefa út ævisögu nans og það sem til er eða vit- að um skáldskap hans. Símoni var svo létt um að yrkja, og gerði svo mikið að því að kasta fram stökum, að víða og lengi má leita að og finna þær. Hér á Akranesi sem annars staðar gerði hann feiknin öll af vísum. Meðal þeirra eru þær, sem hér fara á eftir. Þessa formanna- vísu gerði hann um Kristján heitinn á Sól- mundarhöfða: Lætur skunda Kristján knár kembings fram á heiði. Heppinn undra álmabur úr Sólmundarhöfðavör. Eitt sinn var Símon staddur í Elínarhöfða. Kemur þá í baðstofuna ung og lagleg stúlka. Hann spyr strax um heiti og hvaðan hún komi. Hann fær að vita það, og segir þá án tafar: Úti á túni ákaflega vinnur. Hrundin tvinna hárfögur, hún Guðfinna Sigríður. Stúlkan hafði hár ofan á mitti. Þessar vísur orti Símon um Skipaskaga fyrir 60 árum: Lag: Fanna skautar faldi háum. Tel ég fríðan Skipaskaga skínandi við Ránarhvel. Drottins mundin hefur haga hann í öllu skaptan vel. Rennislétt mót röðli blika rósafögur túnin þar, bláar hafsins kólgur kvika kátar viður fjörurnar. Bænda þar og býlin fögur brosa glatt við sjónum manns. Gnægð af fiski færir lögur, fagrar eru byggðir lands. Stað á ísafróni fegri fær ei litið þjóðin slyng eða mönnum yndislegri út við breiðan foldarhring. Landið mitt Þú blessaða land! Ó, landið mitt, landið, sem ég elska’ og dái. Við heita, stóra hjartað þitt helzt ég lifa’ og deyja þrái. Er ég í fjarlægð frá þér bý, finn ég bezt hve kær mér ertu, hve björt þín ásýnd er — og hlý. — Allar stundir blessuð sértu! Þú forna, góða fóstra mín, fræga, tigna sögudrottning. Eg kem sem barn í kveld til þín, krýp og bið í helgri lotning: Guð blessi þig og börn þín öll, — blessi allt gott, sem hjá þér lifir. Og meðan staðið fá þín fjöll, írelsissól þér ljómi yfir! Sumarl' 'Haltdófdáón.

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.