Akranes - 01.09.1944, Síða 9

Akranes - 01.09.1944, Síða 9
AKRANES 117 ANNÁLL AKPANESS Gjafir og greiðslur til blaðsins Frá Ó. F. Akranesi 100 kr. fyrir III. árgang. Frá Emilíu Þorsteinsdóttur 40 kr. fyrir III. árg. Gjafir og áheit til Bjarnalaugar Frá Oddrúnu Jónsdóttur og Ólafi Kristjáns- syni Mýrarhúsum kr. 1000.00 til minningar um feður þeirr, Jón Jónsson Tjarnarhúsum og Kristján Ólafsson Mýrarhúsum. — Með inni- legu þakklæti. Níels Kristmannsson. Dánardægur Hinn 11. þ. m. andaðist að heimili sínu hér í bæ, frú Helga Guðbrandsdóttir, nær 85 ára að aldri (f. 20. sept. 1859). Sbr grein um hana í þessu blaði. Hinn 26. september andaðist að heimili sínu Bergþórshvoli, ekkjan Ingiríður Jóhannesdóttir, rúmlega 89 ára að aldri (fædd 3. júlí 1855). Þessarar ágætu gömlu konu mun síðar verða getið hér í blaðinu. ekki sjálfrátt? Hvar endar annars öll þessi vitleysa? Þess eru dæmi að gulrófur séu nú seldar á 4 krónur pr. kg. (Ekki eru mörg ár síðan að pokinn, 50 kg., fékkst fyrir 4 krónur). í fyrra og aftur nú, var því yfirlýst, að nokkr- ir pokar af kartöflum hafi hækkað dýrtíðina 1 landinu um svo og svo mörg stig. Er þetta rétt eða nauðsynlegt? „Hve glöð er vor æska“ Allir Akurnesingar kannast við Frímann Jónasson, sem hér var kennari I mörg ár. Síðan hann fór héðan hefur hann verið kennari aust- ur á Strönd á Rangárvöllum við góðan orðstír. Nýverið er koimin út bók eftir Frímann á for- lagi ísafoldar, sem heitir „Hve glöð er vor æska“. í bókinni eru 15 smásö^ur, einkum ætl- aðar unglingum. Þeirra lengst er Fjalla-Brand- ur. Skyldi það vera Frímann sjálfur? Fyrir kunnuga eru það nóg meðmæli með bókinni, að hún sé eftir Frímann kennara. Hún fæst hér í Bókabúðinni. Leiðrélting Guðmundur V. Bjarnason og Guðriður Gunn- laugsdóttir áttu tvo drengi, en ekki einn, eins og sagt var í síðasta blaði. Undir eftirmælum Karls Georgs Kristjáns- sonar í síðasta blaði átti að standa frá ömmu, en ekki mömmu. Afniæli Kristján Sigurðsson oddviti í Heynesi varð 65 ára 22. sept. s. 1. Jón Þorsteinsson, Hlíð, verður 80 ára 2. októ- ber n. k. Frú Sigríður Sigurbjörnsdóttir, Söndum, verð- ur 50 ára 4. október n. k. Frú Arnheiður G. Guðmundsdóttir, Brautar- holti, verður 60 ára 9. október n. k. Frú Valgerður Helgadóttir, Klöpp, verður 80 ára 9. október n. k. Vilhjálmur Benediktsson, Efstabæ, verður 50 ára 22. október n. k. Guðbjörn Sigurðsson, Bjargarsteini, verður 50 ára 28. október n. k. Akurnesingur fer til að fræðast erlendis Hallgrímur Björnsson, sem verið hefur hér uim mörg ár læknir við góðan orðstír, er nú á förum til Ameríku — ásamt konu sinni, Helgu Haraldsdóttur — til að kynnast nýungum í læknislistinni. Munu þau verða þar um eins árs skeið eða svo. Blaðið óskar þeim góðrar, á- nægjulegrar og ávaxtasamrar ferðar. Einhverntíma hefði það þótt dýrt Nýlega kostaði það hér yfir 9500 krónur að skipa upp 170 tonnum af kolum, eða kr. 61.18 á smálest hverja, að taka kolin úr skipi og koma Þeim á geymslustað. Þetta er nokkru meira en tonn af kolum kostaði heimkeyrt — og komið fyrir í húsi — fyrir stríð. Von er að fólk sé undrandi Margt skeður einkennilegt á vorum dögum, en fáu hefur fólk verið meira undrandi yfir en Því, að fá nú ekki einu sinni kjötbita meðan sláturtiðin stendur yfir. Oft á dag er auglýst i útvarpinu, að kjöt sé selt á litlar 6.50 kg.!!!, en ókkb'rt kjöt fæst nbkkurS stáðar. Þettu br nú Vél til að framleiða „viðarull“ Hér í bænurn á heima smiður og „grúskari", Runólfur Ólafsson að nafni. Hann hefur fundið upp og einn útbúið vél, sem alveg sérstaklega og eingöngu er notuð til að framleiða „viðar- ull“. Vél þessi er fremur einföld og óbrotin, en er þó nokkuð „patent". Efninu, sem vinna á úr „ullina" er „stillt" inn í vélina, en hún er svo látin ein um að ganga frá því. Stöðvast vélin svo sjálf, er hún hefur lokið þessu verkefni. „Ullin" getur verið svo fín eða gróf sem vera vill. Virðist hún vera fyrsta flokks efni. Má áreiðanlega með þessari einu vél fullnægja allri eftirspurn á þessu efni hér á landi, og er með henni vafalaust hægt að keppa í verði líka, a. m. k. nú. Varanleg hagsýni Eins og allir vita, er máttur auglýsinganna mikill. Og það er ástæða til að benda auglýs- endum á, hve hagkvæmt það cr og vænlegt til varanlegs árangurs, að auglýsa fremur í þeim blöðum, sem meginþorri kaupendanna held- ur saman og jafnvel bindur inn. í slíkum ritum verður oít og lengi blaðað. Verða þannig marg- ar auglýsingarnar lengi í gildi og því vænleg- ar til árangurs. Sumarið hefur verið cinstakt að gæðum, einstakt að afla og uppskeru. Síldveiðarnar hafa gengið ágætlega, kartöfluuppskera góð, mikil hey og nýting góð. Höfum vér i nokkru sýnt viðurkenningu, þökk eða þegnskap? Viðtal við tannlausan Vill blaðið ekki vinna að því að hingað komi góður tannsmiður í nokkra mánuði, til að hjálpa þeim mörgu tannlausu, sem létu „draga úr sér“ áður en Hallgrímur fór? Eg hef átt tal við lækni í Reykjavík, sem telur öll tormerki á að taka viðbótar vinnu í marga mánuði. Blaðið vill gjarnan athuga möguleika fyrir þessu, en þar sem svona rnikið er að gera í Reykjavík, sem þarna kemur íram, verður sjálf- sagt erfitt að íá hingað mann fljótlega. En væri ekki betra „tannlaus" minn, að fá hingað mann, jafnvel þó ekki yrði fyrr en eftir nýár? Því betra væri að fá einn tannlæknir hingað, held- ur en að senda alla tannleysingjana suður, fyrst þeir eru svona margir. Ofmikið kæruleysi Miklar kvartanir heyrast um það, með hve miklum ærslum og hávaða fólk gangi tíðum aí samkomum eða skemmtunum um miðjar næt- ur. Hugsið um það, gott fólk, hve þetta er mikill menningarskortur, mikið mannúðarleysi gagn- vart sjúklingum eða fólki yfirleitt, sem fyrst og fremst kýs, — og margt þarf — að hafa svefn- frið, og á skilyrðislausan rétt til þess að fá það í eigin húsum. Er ekki nóg að vera með alls konar háreysti og söng á skemmtunum innan húss, og hafa þá skemmtunina þeim mínútunum lengur, sem nemur þeim tíma, sem gengið er heim, svo að ekki þurfi að vekja fjölda fólks, — sjúkt og heilbrigt. — Fólk, sem ef til vill getur ekki sofn- að meira þá nótt, sem það hefur verið þannig vakið með óviðeigandi hávaða. Þið komist aldrei langt í skóla líísins, ef þið aldrei setið ykkur 1 spor annarra og lítið á mál þeirra með samúð og skilningi. Skólarnir Skólastjóri barnaskólans, Svafa Þórleifsdótt- ir, hefur sagt starfi sinu lausu frá 1. okt. n. k. Mun starfs hennar hér í bæ, verða getið að nokkru, hér í blaðinu. Frá sama tíma hefur verið skipaður skóla- stjóri Friðrik Hjartar, áður skólastjóri á Siglu- firði og siðast námsstjóri í Norðlendingafjórð- ungi. Svo sem áður hefur verið frá skýrt, fór Þor- geir Ibsen kennari á þessu sumri til frekara náms í Ameríku. Ekki er enn fullráðið, hvaða kennari kemur í hans stað. Sr. Sigurjón Guðjónsson, sem var skólastjóri gagnfræðaskólans hans fyrsta starfsár, hefur sagt því lausu. Meðkennari hans, Magnús Jóns- son, hefur verið settur skólastjóri í vetur. - Kenuari við. skólann hefur verið settur Helgi Þorláksson kennari frá Vestmannaeyjum. Sr. Sigurjón mun og taka að sér einhverja auka- kennslu á þessum vetri, þar sem skólinn starf- ar nú í þremur deildum, I stað tveggja áður. Myndin í blaðinu, af Helgu Guðbrandsdóttur, var tek- in þá er hún var 78 ára gömul. Síldveiðarnar Heima hafa þessir bátar stundað veiðarnar og aílað sem hér segir: Egill Skallagrímsson Ægir Ver Haraldur Ármann 2045 tunnur 2036 tunnur 2015 tunnur 1870 tunnur 1647 tunnur Af þessu fóru 7031 tn. í íshús, en 2582 tn. voru saltaðar til útflutnings. Fyrir norðan voru skipin þessi og aflinn sem hér segir: mál tn. Mb. Sigurfari 17127 216 Keilir 12980 Fylkir 11969 10 Hrefna 10319 Hermóður 10315 274 Stafnes 8937 47 Ásbjörn 8815 Sjöfn 8800 Valur 3746 1742 Það sem talið er í tunnum hefur mest verið saltað, en af þVí er t. d. frá Valnum 338 tunn- ur í íshús. Til Akraneskirkju Mótt. úr bréfi 100 kr„ frá B. G. 50 kr. og frá Þ, S. 25 kr, — Þakkir, — Viktbr Björnsson.

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.