Akranes - 01.06.1945, Side 6
66
AKRANES
Alfrjálsf land
í eitt ár
Það er eitt ár síðan öll þjóðin ákvað að ísland skyldi
verða alfrjálst. Þeim sem auðnaðist að lifa það mikla
sameiningar augnablik þessarar litlu þjóðar, mun það
aldrei úr minni líða. Slík augnablik geta verið svo alger,
að þau verði að sígildu helgitákni þjóðarinnar um alda-
raðir. Tákn sem varnar henni frá margvíslegum voða, og
hvetur hana alla og óskifta á öllum öldum til að sækja
fram til menningar og þroska. Til að byggja skjaldborg
um það, sem hverjum einstaklingi og þjóð er dýrmætast,
f r e 1 s i ð .
Frelsið fæst stundum fyrir einhliða yfirlýsingar á-
kveðinna aðila. En munum, að því verður ekki haldið,
nema fyrir fórnfúst starf og sífelda baráttu hvers ein-
asta þjóðfélagsborgara. Þar eru í einum hóp þeir elstu
og þeir yngstu, þeir æðstu jafnt og þeir sem lægra eru
settir, svo og allir þeir, sem þar eru á milli, karl og
kona.
Mœtti 17. júní 1944 vera þjóð vorri slíkt œvarandi
helgitákn, sem aldrei slái fölva á í augum harna hennar.
FRÁ FULLVELDISIIÁTÍBINNI Á AKRANES 18. JÚNÍ 1944
Fjallkonan (Valgerður Jóhannsdóttir) með börn sín. — Þau lásu upp
bundið og óbundið mál í tilefni af hátíðahöldunum. Var það áhrifarík-
ur þáttur.
íþróttasýning á lýðveldishátíðinni á Akranesi 18. júni 1944.
Alþingisfundur að Lögbergi, er ’ýð-
veldið var stofnað. — Alþingismenn
hlusta standandi á, er forseti samein-
aðs Alþingis lýsir yfir, að lýðveldið sé
endurreist.