Akranes - 01.07.1945, Page 3

Akranes - 01.07.1945, Page 3
AKR A.NES 75 Vísnabálkur Akraness Alþýðukyeðskapur. SKÁLD A-ERFI Unga skáldið orti ljóð, í sem fundust (mælti þjóð) orðnum til við ógnarstrit, ekkert rím né form né vit. Gamli tíminn genginn er (gröf er tekin mér og þér). Steingríms lengi’ er harpa hljóð, Hel tók Matta’ — og þóttist góð. Þagnaðir eru Þorsteinar, þögnin dýpri aldrei var; sólskríkjan, er síðust deyr, syngur á Þórsmörk ekki meir. Guðmundar féll gígja í þögn, grétu þá menn og heilög rögn; dómsorð þrumdu dimm og hörð, dauðinn einn bauð frið á jörö. Ólöf hvarf og Ólína Andrésdóttir söngprúða. Enginn betur orti brag, enginn kann nú rímnalag. „Sjáðu hvernig Sófókles syngur.“ Þá var Álftanes Grikklands söngvaguði vígt. Grímur einn fékk leikið slíkt. Þegar Hannes Hafstein fór, hvarf þar engilrödd úr kór. Áður fyr við andlát Páls íslenzks hrökk og strengur máls. Jón hinn mæta Magnússon, margra allra — síðstu von, hreif á burtu Helja köld, heimskan svo að fengi völd. Eftir genginn öðling þann er nú hljótt um skáldarann; hörpudís ei hreyfir streng, harmar íturgóðan dreng. Okkar þjóð var erfið leið, oft á göngu fótum sveið, en hvað sem gerðist, hvar sem stóð, hún gat ávalt sungið ljóð. Dásamlegur dagur Eg mun seint gleyma 6. júlí 1945. Deginum, sem ég ætl- aðist til að lœgi í þagnargildi. Eftir á þakka ég þó þeim, sem vöktu þá yndislegu öldu, sem brotnaði á mér og mínu heimili, er ég varð fimmtugur, þennan umrœdda dag. Veðrið var yndislegt, fánamir komu upp hver af öðrum. Bless'að fólkið kom fagnandi al'Lan daginn. Gjöfum, blóm- um og blessunaróskum rigndi allan daginn. (Skeyti komu í marga daga). Eg þakka þetta allt, en ekki sízt þeim, sem voru svo elskulegir að líta inn. Hér var fullt hús um kl. 12 á mið- nœtti, en þá höfðu flestir viðstaddir Sungið meira en hálfa klukkustund samfleytt, gleðisöngva og œttjarðarljóð. Að síðustu voru sungin þ\essi lög: Dagur er liðinn, Á hendur fel þú honum og Ó, Guð vors lands. Voru þau öll spiluð og sungin samfellt. Það fullyrði ég, að aldrei hefi ég verið við áhrifameiri Guðsþjónustu en hún var þessi skilnaðar- stund þetta yndislega kvöld. Dagurinn verður mér ógleym- anlegur. ÓL. B. BJÖRNSSON eins og hefir æfðri mennt aldagömul list þér kennt. íslands höfuð-íþrótt geym, aldrei henni, þjóð mín, gleym. Yfir góðum erfðum vak, aftur hörpu þína tak. Dýrir hættir hljómi’ á ný, hárrar ættar, þínum í sölum; bæði’ um lög og láð lifi kvæðin, mælt og skráð. Korpur. VORVÍSUR (Vísur þessar hafa áður verið prentaðar annars staðar, en nokkuð úr lagi færðar, og eru því endurprentaðar hér. Höf- undurinn er borgfirzkur maður). Á að glatast íþrótt sú? Er sér þjóðin svo ótrú? List sem þúsund liðin ár lyftu jafnt við bros og tár? Rímleysingjans ráma garg, réttardagsins leiða þvarg, útburðir sem ýlfra á dal — er það það sem koma skal? Eftir langa veðra vá vetrar stranga daginn, vor sem sprangar láð og lá lít ég ganga í bæinn. Blærinn þess er blíðumál, bugað hvessir þorið. Hvað það hressir hug og sál himinblessað vorið! Lát ei sannast það, mín þjóð; þú skalt ennþá kveða ljóð Æfir lóa yndisblíð og hann spói róminn;

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.