Akranes - 01.07.1945, Side 4
76
út um móa, upp í hlíð,
anga og gróa blómin.
AKRANES
B Æ K U R -
Listahröð til ljóða kvödd,
leiðans tröðum ofar,
himnaföður hver ein rödd
huga glöðum lofar.
Þannig sveigjast allt ef á
óðs að vegi hreinum,
mundi eigi minnkun þá
mér, að þegja einum?
Eg til gildis ei þótt mér
Eigi snilldarhljóma,
alvalds mildi miklu er
margföld skylda að róma.
Föður alda, lýðs og lands,
lofgjörð halda eigum;
þökkum gjalda gæzku hans
gleyma aldrei megum.
TIL JÓNS SIGURÐSSONAR Á VINDHÆLI
Jón, þér fylgdi að fiskiströnd,
frægi Sigurðsarfi,
smekkur, útsjón, hagleikshönd,
heilbrigði í starfi.
Hagur lítur hluti á,
hjálpar fleiri en vinum.
Þegar genginn þú ert frá
þyngist fyrir hinum.
Völundur að verki frár
virtur lífs á degi
75 þú sólrík ár
sást á gæfuvegi.
Vinnusöm, að verki þörf,
virt af öllum lýði,
húsfreyjan við heima störf
hirðir allt með prýði.
Akranesi, 10. maí 1945.
Páll Guðmundsson frá Hólmi.
ÁRNI ÁRNASON TRÉSMIÐUR — 70 ÁRA 15. MAÍ 1945.
Sjötugur þú sérð um bú
sólarljóma undir;
guð þér Árni gefi í trú
gæfuríkar stundir.
Konan setur sjálf í stand,
samvist gleður karla;
þitt hefur hjóna- blessast band,
betra þekkist varla.
Mikil gæfa ykkur er,
eignast góða drengi;
hamingja og heiður þér
haldist vel og lengi.
Jón Pálsson: Austantórur. — Guðni Jónsson bjó
undir prentun. — Víkingsútgáfan 1945.
Á öllum öldum hafa þe:r verið íslandi gagnlegir þessir
eftirtektarsömu, hárnákvæmu, velgefnu alþýðumenn. Margir
þeirra hefðu sjálfsagt geta orðið hálærðir vísindamenn, ef
þeir hefðu hlotið þá menntun, sem hugurinn stóð til þegar í
æsku. í flokki þeirra manna má vafalítið telja þá bræður
báða, Jón og ísólf Pálssyni, sem báðir eru löngu landskunnir
menn.
Jón Pálsson hefur um langan tíma safnað og skráð ýmsan
fróðleik, svo og margvíslega reynslu hins eftirtektarsama
manns á langri, viðburðaríkri ævi.
Vinir Jóns hafa nú fengið leyfi hans til að hefja útgáfu á
þessu mikla safni, og er hér um að ræða fyrsta hefti þeirrar
útgáfu, og er það 160 bls. að stærð. í þessu hefti eru margir
persónuþættir, svo og veðurmerki og veðurspár í Árnessýslu.
Þar er um að ræða merkilegar athuganir, sem líka er gaman
að lesa. Hin nákvæma eftirtekt hinna gömlu manna kenndi
mönnum margt, sem vísindi nútímans hafa í mörgum tilfell-
um staðfest, svo er í sumum tilfellum um veðrið.
Jón er margfróður maður, og um það er öll syrpa hans er
komin á prent, mun mörgum finnast þar margt merkilegt
koma fram.
Helsingi
heitir nýtt blað, gefið út á Akureyri. — Ritstjóri og út-
gefandi er Steindór Sigurðsson. — Af efni blaðsins má nefna
m. a.: Fylgt að heiman — Úr myrkri ... — 1030 atkvæði —
Dýrt er drottins orðið, o. fl.
V O R
Vornóttin bjarta vektu mér í hjarta
þrá
til að lifa sem lífvakinn eldur
er loganum seldur,
að græða og hlúa að þeim
mannlífsins meinum,
sem mest hefir blætt undan veraldar steinum.
Vetrarblundi værum af
vaknar allt sem lifir.
Sjálfur drottinn sigurstaf
svellin letrar yfir.
Sumargyðjan sólskinsbað
sendir yfir fjöllin,
bráðnar hjam úr hjartastað
hrím og vetrarmjöllin.
TIL MÖMMU
Dreifi þínum hugarharmi
himna fegurst sól.
Þerri tár er titra á hvarmi
tímans helgu jól.
V IÐ BARN
Gráttu ekki góði minn,
gullið bezt er hlátur.
Yfir sálarsjóinn þinn
sigli gleði bátur.
Páll Guðmundsson frá Hólmi.
Dulvin.