Akranes - 01.07.1945, Blaðsíða 6
78
AKRANES
Ól. B. Björnsson: Þættir úr sögu Akraness, V., 2.
Hversu Akranes byggðist
Framh.
í niðurlaginu um ívarshús í síðasta blaði brenglaðist nokk-
uð. Þar átti að standa svo: Sigríður Sigríksdóttir Eiríkssonar
á Krossi, og eiga þau einn son.
í þessu sögulega yfirliti um byggingu Skagans, verður svo
sem frekast er hægt, gerð grein fyrir hvar hver einn bær og
hús að fornu og nýju hafa stað:ð. í síðasta blaði hafði fallið
niður að geta um hvar ívarshús stóðu. Núverandi hús er nr.
68 við Suðurgötu; en hinn forni bær stóð nokkru sunnar á
túninu, og mikið nær bakkanum. Til frekari skýringar þessu,
er ætlunin að gera kort af Skaganum á ýmsum tímum og
merkja þar inn bæina.
Símon þessi var stór maður og föngulegur og afburða karl-
menni, harðfengur og duglegur. í Arnarfirðinum hefur frá
upphafi vega verið búið til sjós og lands, enda verið þar, og
komið þaðan ágætis sjómenn og skipstjórar sem orðið hafa
landskunnir. Framtak Símonar á Dynjanda og dugnað má m.
a. marka af því, að hann réðist í það líkl. fyrstur hérlendra
manna að sigla til Kaupmannahafnar — eða Þýzkalands —
og læra þar skipstjórn. Keypti hann sér jakt 15—20 tonn að
stærð, gerðist skipstjóri á skipinu og hélt því til fiskveiða á
haf út. Þessi vísa er um Símon og skip hans:
X
„Blítt er veðrið blessaða,
blankar á seglið hvíta.
Stýrir hann Símon sterklega,
stórt er skip að líta.“
Inni í Dynjandavog, skammt frá bænum, gerði Símon hróf
eitt fyrir skip sitt, sem hann haíði fyrir uppsátur að vetrar-
lagi. Fyrir hrófi þessu mótar enn í dag. Einn af heimildar-
mönnum mínum um þetta efni segir, að þegar hann kom að
Dynjanda 1909 hafi þar enn verið viðir úr þessu skipi Símon-
ar í hverju húsi á bænum. Sjálfir gerðu Dynjandamenn við
skip sitt, og smíðuðu hvað eina er til þurfti, enda voru þeir
sumir orðlagðir smiðir. Þeir stunduðu og mikið seladráp, enda
var Símon talin afburðagóð skytta. Eru til sagnir um að
Símon hafi vetrarlangt skotið 150 seli á Dynjandavog eða
skammt utan við hann. Margar sögur eru til um skotfimi
Símonar, m. a. þetta: Það var eitt sinn við kirkju á Rafnseyri.
Bjarni Sigurðsson bóndi á Gljúfurá gekk neðanvert við
kirkiugarðinn. Var Bjarni með háan hatt sem bar upp yfir
garðinn þar sem hann gekk. Skutlar Símon þá broddstaf sín-
um er þegar stóð í hattinum og tók hann af. Var þetta þvert
yfir garðinn 10—12 faðma. Var Símon þéttkenndur er þetta
var, en fataðist ekki fimi að heldur.
Börn Símonar og Þorbjargar á Dynjanda voru þessi:
1. Bjarni, giftur Sigríði Markúsdóttur Þórðarsonar prests
á Álftamýri. Þeirra börn voru Markús skólastjóri Stýri-
mannaskólans. Jensína móðir Bjarna Björnssonar leik-
ara. Salóme og Þorbjörg.
2. Páll, kvæntist Sigríði Jónsdóttur Bjarnasonar hreppstjóra
Akur.
Þóra Jónsdóttir, kona Kristjáns á Akri.
Kristján Símonarson á Akri.
í Stapadal (þau voru systkinabörn). Þeirra börn:
a) Kristín, kona Matthíasar Ásgeirssonar skipstjóra í
Baulhúsum. Þeirra börn: Jón Bjarni, skipstjóri. Páll
Þorsteinn skipstjóri, maður Rannveigar dóttur Sigurð-
ar Símonarsonar.
b) Símonía, kona Kristjáns hreppstjóra í Stapadal.
c) Jón, skipstjóri. Kona hans Símonía Oddný Kristjáns-
dóttir. (Þau systkinabörn.)
d) Guðbjörg, giftist Hannesi Jónssyni í Hnífsdal.
e) Þuríður, giftist Ólafi Ólafssyni frá Auðkúlu.
f) Jóhanna, giftist síra Jóni Árnasyni í Otradal, síðar á
Bíldudal.
g) Pálína.
3. Sigurður, skipstjóri sem fyrr getur. Hann kvæntist Jó-
hönnu Daníelsdóttur. Sigurður var um tugi ára skipstjóri
á skútum, lengst af fyrir Geir Zoega. Þeirra börn: Þor-
steinn og Rannveig, kona Páls Matthíassonar.
4. Kristján á Akri á Akranesi, seinni maður Þóru Jónsdótt-
ur prófastsekkju á Rafnseyri.
5. Friðrik, kvæntist Guðrúnu Ólafsdóttur frá Haukadal. Hún
var systir Matthíasar alþm. og þeirra systkina.
6. Sigríður, giftist Kristjáni Jónssyni í Hvammi. Þeirra
börn: Steinn bóndi í Hvammi, Símonía Oddný sem fyrr
getur, og Þorbjörg.
7. Ingibjörg, dó ógift og barnlaus.
Páll og Bjarni Símonarsynir á Dynjanda voru sérstaklega
góðir smiðir. Allt var þetta myndarfólk, stórt og gerðarlegt,
og vel að manni.