Akranes - 01.11.1945, Page 10
130
AKRANES
VÍSNABÁLKUR AKRANESS
Engin undanþága.
Allir falla í eina þró,
eins hinn riki og snauði;
enginn lengi undan dró,
öllum nær hann Dauði.
X.
Baugahrot (ósamstœð).
Langt er síðan lagði eg á
leiðir bjartra vona.
Ennþá finn eg ylinn frá
örmum þínum, kona.
Fögur rósin forðum mér
færði gieði sanna.
Er því gott að ylja sér
við árin minninganna.
Heimþrá.
Vilja granda villuljós.
Veg til strandar þráum.
Fyrir handan feigðarós
friðarlandið sjáum.
Veröldin.
Trylltur er þinn töfradans.
Tíminn líður hljóður.
Svæfir hug og sálu manns
söngur þinn og óður.
Eftir að hafa hlustað á útvarpssöguna
Bör Börsson.
í ríkum mæli áttu örvar
andans, snilli, fjör.
Ástar þakkir, Helgi Hjörvar,
hafðu fyrir Bör.
Dulvin.
Sigurður Breiðfjörð og Florian.
Eins og kunnugt er, orti Sigurður Breiðfjörð
Númarímur út af franskri skáldsögu, er hann
hafði fyrir sér í danskri þýðingu. Nefndist höf-
undur hennar Florian. Sagan hlaut geysilegt lof
og vinsældir og var þýdd á margar tungur. Nú
mun hún lítið lesin, þykir of mærðarleg til þess
að falla í smekk nútíðarinnar. En Númarímur
verða sennilega um aldur og ævi taldar til gim-
steina íslenzkra bókmennta. Borgfirzkur maður
hefur borið saman rímurnar og söguna í eftir-
íarandi erindum:
Ungur Núma las ég ijóðin
listumprýddu, er Breiðfjörð kvað;
fræðið seinna, er franska þjóðin
forðum dáði. En hvað um það?
Töfraríki eilíft eygði
yfir Breiðfjörðs dreyrgum val,
en Florian mér fannst sem teygði
furðu bragðlaust mærðarhjal.
Rímnadis, sem lýð og landi
lýstir um tvennar aldir þrjár,
áttu að dæmast óferjandi?
Er þinn hlutur svona smár?
Ó, að mætti endurvakna
óðarsnilli Breiðfjörðs há,
enn sem dætur íslands sakna.
Yfir birti landi þá.
X.
Grafletur rímleysingjans.
Orti í máli lausu ljóð
lausagopinn aumi;
barst svo út á eilíft flóð
undan tímans straumi.
X.
ANNÁLL AKPANESS
Gjafir og grciðslur til blaðsins, sem það þakkar
innilega:
Kr. H. Jónsson, hafnsögumaður á ísafirði, fyr-
ir III. og IV. árg. 100 kr.
Guðmundur Kortsson, útg.m., fyrir III. og IV.
árg. 100 kr.
Ástþór Matthíasson, útg.m., að mestu fyrir-
iramgreiðsla 200 kr.
Hjónaefni:
Ungfrú Emilía Þórðardóttir á Grund og Páll
Ólafsson úr Hafnarfirði.
Messur í Innra-Ilólmskirkju verða sem hér scgir:
11. nóvember.
9. desember.
26. desember (2. jóladag).
1. janúar 1946 (nýjársdag).
Guðsþjónustan hefst ávallt kl. 2 e. h.
Lcikfélag Ilafnarfjarðar
sýndi hér í Bíóhöllinni leikritið Hreppstjórinn
á Hraunhamri laugardaginn 27. og sunnudaginn
28. október, báða dagana fyrir fullu húsi og við
góðar undirtektir áhorfenda.
Haustróðra
hafa aðeins tveir bátar stundað að þessu sinni,
þeir Fylkir og Víkingur. Hefur afli verið tregur.
Síldarafli rcknetabála í október:
Mb. Svanur 79,970 kg.
— Sigurfari 66,510 kg.
— Egill Skallagrímsson 49,460 kg.
— Ármann 11,400 kg.
— Aldan 8,140 kg.
Meginið af þessum afla var saltað og nokkuð
hraðfryst með sölu til Frakklands fyrir augurn.
í skýrslunni um síldveiðiskip fyrir Norður-
landi í sumar, hafði mb. Keilir fallið niður, en
hann var þar á síldveiðum og fiskaði um 2000
mál og tunnur.
Leiðrétting.
í síðasta blaði er Bjarni Jóhannesson á Sýru-
parti talinn fæddur 6. janúar 1856, en á að vera
9. október 1856.
Fyrr í sama þætti eru talin upp börn Kristín-
ar Finnsdóttur á Sýruparti, en þar hefur falhð
niður nafn Guðmundar, sonar hennar, búandi
suður í Garði.
Dánarfregn.
Hinn 7. okt. s.l. andaðist hér góður og gegn
Akurnesingur, Jón Benediktsson í Aðalbóli.
Hans mun síðar verða getið hér í blaðinu.
Nýlega er dáin hér Ingveldur Guðmundsdótt-
ir (söngmanns Ingimundarsonar). Hún var um
allmörg ár ráðskona hjá Þiðriki á Háafelli í
Hvítársíðu. Síðar fór hún til Reykjavíkur, og
gerðist ráðskona Jónasar Jónssonar lögreglu-
þjóns. — Ingveldur var myndarkona, þrifin,
lundlétt og velviljuð.
Bækur, scm blaðinu hafa borizt:
Þessar bækur hafa blaðinu borizt frá Prent-
stofunni ísrún á ísafirði, sem gefið hefur þær út
1. Trú og skylda.
Minningar um Kaj Munk. Sr. Jónmundur Hall-
dórsson þýddi. — í bókinni er minningarræða
um Kaj Munk, flutt í Stokkhólmi af Gustaf
Aulen biskupi. — Meyjarnar tíu. — Síðasta ræða
Kaj Munk í Kaupmannahöfn, mánuði áður en
hann var myrtur.
Þá er sálmur eftir Kaj Munk, þýddur af Sig-
urði Grímssyni.
2. Síðasta nóttin.
Skáldsaga, sem gerist að mestu í verndarrík-
inu Tékkóslaviu. ___ Þýðendur Birgir Finnsson
og Guðmundur Hagalín. — Þetta er styrjaldar-
saga.
3. Paradís skíðamanna: Scljalandsdalur.
Samin af Hannibal Valdimarssyni skólastjóra.
Þetta er smákver, prentað á góðan pappír og
prýtt ágætum myndum.
Fiskideildin Báran
hefur nú þegar í haust haldið tvo fundi. Var
lögum deildarinnar breytt til samræmis við hin
nýju lög Fiskifélags íslands. Á seinni fundinum
voru mörg nauðsynjamál útvegsins rædd og gerð
um þær ályktanir til fjórðungs- og fiskiþings. —
Af hinum gömlu félögum hafa nú rúmir 30 til-
kynnt áframhaldandi þátttöku. Er þess vænzt, að
þeir sem enn hafa ekki tilkynnt slíkt, geri það
sem fyrst. Sömuleiðis væri deildinni kært að
taka á móti nýjum félagsmönnum.
Stjórn deildarinnar skipa þeir: Oddur Hall-
bjarnarson, Þórður Bjarnason og Ól. B. Björns-
son, sem allir gefa nánari upplýsingar um starf-
semi félagsins.
Sameiginlegl félagshcimili
allra félaga í bænum virðist eiga miklu fylgi
að fagna meðal hinna ýmsu félaga. Hefur bæjar-
ráð nú haldið tvo fundi með fulltrúum félaganna
og lítur vel út með góða samvinnu og happa-
sæla lausn þessa mikla nauðsynjamáls, sem um
leið er manndóms og menningarátak allra bæj-
arbúa, ef það kemst í framkvæmd.
Málverkasýning.
Það er nýlunda, að Akurnesingur haldi hér
málverkasýningu, en það gerir nú 22 ára gamall
maður, Sveinn Guðbjarnason. Hann hefur enn
lítið lært i þessum efnum. En hve lengi hann
hefur fengizt við þetta bendir til að honum sé
þetta einkar hugðnæmt verkefni. Ætti hann því
ekki að vera lengur með neina hálfvelgju uin
að ganga hreint til verks um áframhaldandi nám
eða a. m. k. leita umsagnar og leiðbeiningar
góðra manna um hvað hann ætti að gera hvað
þessu viðkemur. Því enda þótt hér sé ekki um
íullkomna list að ræða, sýna myndirnar vafalaust
að Sveinn hefur nokkra listræna hæfileika, sem
ættu á einhvern hátt að geta komið honum að
liði um framtíðarstarf, ef vel er að hugað.
Útgefandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur B. Bjömsson.
Gjaldkeri: Óöinn Geirdal.
Afgreiösla: Unnarstíg 2. Akranesi.
Kemur út mánaðarlega 12 siður. Árg. 20 kr.
Prentverk Akraness h.f.