Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2004, Blaðsíða 16
í 6 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004
Helgarblaö DV
Baksviðs með James Brown! Hvernig er James Brown? Um síðustu helgi voru haldnir einkar velheppn-
aðir tónleikar með sjálfum konungi sálartónlistarinnar og fönksins í Laugardalshöll. Ýmsir þeir sem
hafa látið sig þessa tegund tónlistar skipta létu sér að sjálfsögðu ekki þetta happ ur hendi sleppa og
sumir gerðu gott betur: Notfærðu sér klíkuna og fengu að fara baksviðs og sjá hann augliti til auglitis
„Hvað getur maður sagt? Þetta er bara flottur kalV^egirSamúelSaiT
uelssou i Jaguar en hljömsveitin varð þess heiðurs aðnjótandi að hit
tæprSa^r<ÍT^egar hann trÓð UPP f LWdaJshöUinni fyr:
tæpn viku. Samuel fekk spurnmguna sem virkar svo fáránleg en e
einhvern veginn svo eðliieg: Hvernig er James Brown?
I . !A , ----pccyu/ UIIU V
U loklð sPurii James hvort hann vildi ei
® mynd afsér og meistaranum Ifkt og h
S£*l StlOmiirnnr *
stjornurnar. Hann þdöi boðið vitanlec
James lét öryggisvörÖ taka myndina
James var sáttur Brown var sáttur viö
spilamennsku Jagúar enhann vildi hafa
unga hljómsveit d sviöinu sem væri ekki
meö neinn sóöakjaft. Það gekk eftir enda
Jagúarmenn einstaklega prúöirpiltar.
Mefstarinn með Jagúar Strákarnir
| Uaguar voru að vonum alsæliryfir
aö fd að hita upp fyrirJames Brown
Honum llkaöi vel við spilamennsku
piltanna og heilsaöi stuttlega uppd
pd aö tónleikunum loknum. Sammi
sagöi upplifunina hafa veriö
magnaða.
„Það var náttúrlega geðveikt að fá að sjá hann spila
svo ég tali ekki um að fá að hitta hann,“ segir Sammi
sem var mjög ánægður með tónleikana. „Þeir voru
geðveikir!" segir Sammi sem myndi gjaman vilja
verða í jafngóðu formi og Brown þegar hann verður
sjötugur. Hann segir vissa stjörnuumgjörð hafa verið
í kringum James en bætir við að það sé ekkert skrýtið.
„Maður fann samt alveg að hann var stjarnan á
svæðinu enda er hann súperstjarna. Maður var ekkert
að ganga upp að honum til að spjalla við hann án þess
að hafa fengið leyfi hjá réttum aðilum sem maður
skilur bara mjög vel. Hann vill auðvitað fá að vera svo-
lítið út af fyrir sig en annars kunni ég bara vel við
hann," segir Sammi sem verður að spila ásamt Jagúar
á Ljósanótt í Reykjanesbæ í kvöid.
Meira „jolly"
Ljósmyndari baksviðs var Sigurjón Guðjónsson
sem heldur úti vefnum sigurjon.com. Hann var
skyndilega staddur fyrir framan linsuna en ekki fyrir
aftan. Enda Jilýtur að teljast eftirsóknarvert að fá
mynd af sér með sjálfum konungi fönksins. Þeir voru
fleiri en Sigurjón sem sáu fram á sagnfræðilegt gildi
þess.
„Hann var meira „jolly" en maður hefur séð hjá
svona stjömum áður. Maður fékk það náttúrlega á tÚ-
fmninguna að þetta væri stór kaU þegar umboðsmað-
urinn hans kom og sagði mér að ég mætti bara taka
eina mynd af hverjum aðUa með honum. Svo kom
hann sjálfur fram og ég tók myndimar og menn þökk-
uðu fyrir sig. Ég gerði slíkt hið sama og rétti fram
spaðann en þá sagði hann bara: „What? You don’t
want a picture too?" Ég varð bara mjög hissa og þáði
þetta boð auðvitað með þökkum. Svo lét hann bara
einn öryggisvörðinn sinn taka mynd af okkur þannig
að hann virkaði bara mjög almennUegur á mig," segir
Sigurjón.
Lítill, sætur kall
Þær voru margar skærar stjömumar sem slæddust
baksviðs, ein sú skærasta er án efa Forest Whittaker.
Hann fékk þó ekki mynd af sér með James Brown því
Forest kom strax eftir tónleikana og þá þurfti okkar
maður að kasta mæðinni. En í sárabætur tók Sigurjón
mynd af Forest með Stefáni Hjörleifssyni. Stefán var
einn tónleikahaldara og segir dæmið hafa staðið
svona um það bU á sléttu. „Ánægjan er aðalatriði
málsins."
En hvemig er Forest?
„Hann kemur mér fyrir sjónir sem ákaflega þægi-
legur maður og lítiUátur. Ég spjaUaði nú ekki mikið
við hann. Hann kom þarna aðeins á bak við og náði
nú ekki tali af James Brown sem var orðinn verulega
þreyttur eftir milda keyrslu. Kom þama rétt þegar
lokatónamir hljómuðu. James hvíldi sig í korter og
mætti svo í myndatöku með kátum piltum í Jagúar.
Brown lýsti reyndar yfir áhuga á því að koma aftur.
Bragða snjóinn. Bræða hann með funheitri funktón-
list. Mér fannst hann rosalega flottur og konunni
minni fannst hann sætur, lítiU karl. Hann leit rosalega
vel út. Helvíti flottur. Og skemmtilegur í aUri um-
gengni. Hann hitti marga baksviðs og eftir tónleikana
beið hans heUl heUingur. James Brown gerði sér lítið
fyrir og gekk bara inn í þvöguna og heUsaði manni og
öðmm."
Ekki langur hittingur
„Það var náttúrlega bara meiriháttar. Þetta var ekM
langur hittingur og tók fljótt af. En eftirminnUeg
stund," segir Stefán HUmarsson tónlistarmaður sem
hitti James Brown stuttíega fýrir tónleUca. Brown er í
miklum metum hjá Stefáni sem þó hefur húmor fyrir
sínum manni.
„James Brown er til dæmis ótrúlegur í viðtölum og
oft erfitt að átta sig á því hvað hann er að fara því
hann gargar tUvUjunarkennt út í loftið frasa úr sínum
þekktustu lögum: Please Please! Annars, nei, við
ræddum ekki mUdð saman. Rétt heilsuðumst og svo
var það ekld mikið meira en það. Og alveg nóg fyrir
mig... “
Honum þótti Stefán hávaxinn
Jón Ólafsson tónlistarmaður var einnig staddur
baksviðs fýrir tónleika og DV spurði hann lykUspurn-
ingarinnar:
Hvernig er James Brown?
„Já ... James er ofsalega lítiU og dökkur. Hann
spjaUaði nú ekkert við okkur. Ég skildi ekki orð af því
sem hann sagði. Hann röUaði bara eitthvað út í loftið.
Jú, honum fannst Stefán vera mjög hávaxinn. Ég held
að hann hafi nú bara vUjað drífa þessa myndatöku af.
Þetta var fyrir tónleUcana og hann í slökun. En við
fengum þetta í gegn, í gegnum klíku, oklcur langaði í
mynd af okkur með honum," segir Jón afar sáttur við
þennan stutta fund með konungi „soulsins". Enda var
nokkurt mál að koma þessu í kring.
„Hann hagar sér eins og súperstjarna. Einn af
þeim. En mjög „næs" og kumpánlegur. Já, þetta var
stór stund, mjög gaman. Nú er maður búinn að hitta
Paul og næst er það bara Dylan. Ég missti af honum
síðast þegar hann var héma. Hann hlýtur að fara að
mæta aftur."
jakob@dv.is
agust@dv.is
Innlendar og erlendar stjornur
James sést hér ásamt Jóni ólafssyni,
Stebba Hilmars og tónleikahaldaranum
Stefáni Hjörleifssyni og konu hans Rósu
Steingrímsdóttur.
DV-myndir Sigurjón Guöjónsson