Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1996, Blaðsíða 152
70,6% í millilandaflugi og er það 4,3% betri nýting en árið
á undan. í innanlandsflugi var sætanýtingin 56,7% og er
það minnkun um 0,9%.
Starfsmannafjöldi Flugleiða á árinu var að jafnaði 1.269.
í árslok var flugvélakostur félagsins 3 Boeing 737-400, 3
Boeing 757-200, og félagið hafði á leigu 4 Fokker 50 og
eina Boeing 737-400.
Hótel Loftleiðir og Esja voru í apríl nefnd Scandic hótel,
eftir að tekið hafði verið upp samstarf milli Flugleiða og
Scandic hótelkeðjunnar.
íslandsflug og Atlanta áttu góðu gengi að fagna á árinu.
Siglingar
Hagnaður varð á rekstri Eimskipafélags íslands annað
árið í röð, og nam hann 557 milljónum kr., sem er 5,8% af
rekstrartekjum félagsins. Árið áður var hagnaðurinn 368
milljónir eða 4,0%.
Heildarflutningar félagsins á árinu voru 1.018.000 tonn
(árið áður 990.000 tonn). Þetta var mesta flutningsmagn á
80 ára ferli félagsins og í fyrsta sinn, sem flutningar fara yf-
ir milljón tonn. Það er um 3,0% aukning frá árinu á undan.
Innflutningur var 396.000 tonn (407.000 árið áður), útflutn-
ingur 475.000 tonn (447.000), strandflutningar 49.000 tonn
(57.000) og flutningur á milli erlendra hafna 98.000 tonn
(79.000).
Eimskip og dótturfyrirtæki þess höfðu í árslok 10 skip í
rekstri (10 árið áður). Starfsmannafjöldi var að meðaltali
788 og af þeim störfuðu 162 erlendis. Dótturfélög Eim-
skipafélagsins voru 14 í árslok og tengdust þau öll flutn-
ingastarfsemi nema Burðarás hf. Meðal eigna Eimskips á
afmælisárinu er 34,0% hlutur í Flugleiðum hf., 40.4% í
Marel hf., 11,7% í Skeljungi hf. og 44,6% í Tollvörugeymsl-
unni hf.
Hinn 8. júlí seldi Landsbankinn, þ.e. Hömlur hf., hlut
sinn í Samskipum fyrir 510 milljónir króna. Kaupendur
voru níu þ. á m. þýzka skipafélagið Bischoff Group, Hag-
kaup, Fóðurblandan og Samherji á Akureyri. Með auknu
(150)