Bræðrabandið - 01.12.1979, Blaðsíða 9
2) að sannreynt er að fólk er í því
meiri hættu vegna áfengisneyslu því
yngra sem það byrjar drykkju. Heili
mannsins er mjög viðkvæmur á meðan hann
er að þroskast og eru því heilaskemmdir
tíðar hjá fólki sem byrjar drykkju á
unga aldri.
3) að mikil hætta er á þvx að neysla
áfengis og annarra vímuefna á með-
göngutíma valdi skaða á fóstri.
4) að áfengisneysla hér á landi er,
eins og annars staðar þar sem ekki
hefur verið tekið í taumana, að færast
til yngri aldurshópa, jafnvel niður
fyrir 12 ára aldur.
5) að mikil nauðsyn er á að svipta
áfengið dýrðarljóma þeim sem hagsmuna-
aðilar sveipa það og er þá líklegast
til árangurs að nota það ekki til tæki-
færisgjafa og að stjórnvöld taki þann
hátt upp að nota það ekki í veislum
og móttökum gesta.
6) að áfengi ryður öðrum enn hættulegri
eiturefnum braut og því veróur ekki
barist móti þeim af neinum heilindum
nema jafnframt sé unnið gegn áfengis-
neyslu.
7) að áfengisvenjum verður ekki breytt
með því að láta eina tegund áfengis
koma í stað annarrar. Alls staðar, þar
sem slíkt hefur verið reynt, hefur hin
nýja áfengistegund komið til viðbótar
við þær sem fyrir voru. Þetta eru
staðreyndir og þarf því ekki að halda
neitt eða álíta í þessu sambandTT
8) að vísindarannsóknir hafa sannaó að
gegn áfengisneyslu verður ekki barist
með árangri nema beita hömlum á ýmsum
sviðum. Til að mynda hefur Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin (WHO) lagt áherslu
á að beitt verði hömlum, m.a. háu verð-
lagi, takmörkun vínveitingaleyfa, fáum
sölustöðum, stuttum opnunartíma vín-
veitingahús a o.f1.
9) að samstaða Norðurlandaþjóða um
afnám tollfríðinda ferðafólks og far-
manna á áfengi er mikilvæg. Mættu
íslendingar gjaman hafa þar forystu.
Á barnaári hefur verið efnt til
viku gegn vímuefnum. Þar var rækilega
kynnt hve alvarlegar afleiðingar áfeng-
isneysla hefir á börn en þau þurfa
flestu öðru fremur á ástúð, umhyggju
og öryggi að halda. Og nú þegar erfið-
leikar steðja að þjóð vorri er aukin
þörf á því að þegnar hennar, hvar í
stétt sem þeir standa, séu vakandi á
verðinum eigi vel að fara.
Heilladrýgst mun að ganga alls
gáður til dáða og feta þannig í fót-
spor hinnar bindindissömu aldamóta-
kynslóðar til framfara og eflingar
þjóð vorri. ★
LJOÐ
Enn í Ritning ritað stendur
ræða þxn sé já og nei
hafðu jafnan hreinar hendur
hugsun eins og blíóan þey.
Aldrei sért við illverk kenndur
óláns mútur þiggðu ei.
Ef aö Drottinn ekki byggir
upp vor hús og heimili
ekkert er sem okkur tryggir
arð af voru erfiði.
En ef Drottinn yfir skyggir
er vort besta öryggi.
Hyggjum ekki á illt i hjarta
hindrast bæn og kraftur dvin
láttu Drottinn ljós þitt bjarta
lýsa veginn heim til þín.
Gegnum dauóans dalinn svarta
dýrleg birtan handan skin.
Þorkell Bergsson