Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2005, Side 14
14 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005
Helgarblað DV
Ferill Hannesar Smárasonar gæti alveg sómt sér sem söguþráöur í bíómynd. Eða
sápuóperu: Alþýðudrengurinn sem brýst til mennta af því hann var góður í íþrótt-
um, berst áfram í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, kemur heim og tekur þátt í
stærsta frumkvöðlaverkefni þess tíma með stórmerkilegum og sérkennilegum vís-
indamanni. Umsvif Hannesar hafa verið umtalsverð síðustu mánuði og hlotnast
honum því sá heiður að verða fyrstur íslenskra kaupsýslumanna til að verða
tekinn fyrir í DV Nærmynd en á næstu vikum mun DV varpa ljósi á mennina á
bak við íslenska viðskiptaundrið sem teygir nú anga sínu um allan heim.
■
m
F
4Æ
Það hefur mikið vatn
runnið til sjávar frá
því unglingalands-
liðsmaðurinn
Hannes Smárason
komst á fdtboltastyrk í verk-
fræðinám í MIT. Hann er núna
einhver stórtækasti bisness-
maður landsins, stjómarfor-
maður Flugleiða, farinn að
bjóða í Eimskip og kominn í
beina samkeppni við tengda-
föðurinn sem ól hann við
brjóst sér.
Hann leggst í fjárfestingar með
tengdaföður sínum og nýtur sam-
banda hans og orðspors. Allt leikur í
lyndi, fjárfestingarnar byrja að skila
arði, hann kaupir risahús með
menntaskólaástinni sinni á Amar-
nesi. Allt er á uppleið.
Síðan kemst upp um framhjá-
haldið. Harðvítugur skilnaður, vin-
slit og valdabarátta fylgja í kjölfarið.
Hannes stendur uppi með pálmann
í höndunum og nýja konu og er í dag
áhtinn einn djarfasti og umsvifa-
mesti maður í íslensku viðskiptalífi.
Fótboltastjarna
Hannes Smárason ólst upp í
Laugameshverfmu, spilaði með
Fram og gekk í MR og langaði að
verða verkfræðingur. Hann
var í unglingalandsliðinu
í fótbolta
og út á þá hæfi-
leika fékk hann styrk til að læra
við einn besta háskóla Bandaríkj-
anna, MIT. Eftir verkfræðina lærði
Hannes til MBA, sem býr menn
undir að verða forstjórar. Eins og svo
margir sem ljúka því námi fór hann
að vinna hjá ráðgjafarfyrirtækinu
McKinsey, fyrst í Svíþjóð en síðan í
Boston. Þar vinnur ungt fólk myrkr-
anna á milli og gerir skýrslur fyrír
forstjóra sem nota þær síðan til að
taka erfiðar ákvarðanir um stefnu
fyrirtækjanna. Þar hafa menn orð á
sér fyrir að vera klárir en ófor-
skammaðir.
Kynntist Kára í körfubolta
Hannes bjó í Bandaríkjunum og
gerði út frá Boston. Þar spilaði hann
stundum körfubolta við aðra íslend-
inga, einn af þeim var læknisffæði-
prófessorinn Kári Stefánsson sem
var farinn af stað með ævintýri sitt,
íslenska erfðagreiningu. Þama
kynntust þeir fyrst, mennirnir sem
áttu eftir að vinna saman við að
sannfæra almenning og fjárfesta um
að leggja fé í fyrirtækið í von um að
byltingarkenndar nýjungar skiluðu
þeim miklum arði.
Á meðan Kári átti erfitt með að
vinna með mörgum öðrum stjórn-
endum hjá fyrirtækinu náðu þeir
Hannes vel saman lengi vel. Hannes
var fyrst fjármálastjóri og síðar að-
stoðarforstjóri íslenskrar erfða-
greiningar og fékk að eignast tölu-
vert af hlutabréfum á hagstæðu
verði sem hann seldi síðan hluta af
fyrir haustið. Hann var síðan arki-
tektinn að því, ásamt Kára Stefáns-
syni og Bjarna Ármannssyni, þegar
íslenskir bankar keyptu stóran hlut í
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005 15
deCODE genetics af stofnfjárfest-
unum í júní 1999 en í þeim viðskipt-
um fóm peningar til dularfuÚra
eignarhaldsfélaga í Lúxemborg og
Panama.
Giftist menntaskólaástinni
Þótt Hannes væri bara launþegi
hjá íslenskri erfðagreiningu stökk
hann fram ásamt Kára Stefánssyni
sem fjárfestir í Fjárfestingabanka
atvinnulífsins. Kom fram í Morgun-
blaðsgrein að Hannes hefði ekki
haft fullt samráð við Kára í öllum
þeim viðskiptum. Þeir bám smyrsl
á sárin og héldu áfram sem fjárfest-
ar í þeirri valdabaráttu sem fór í
hönd í FBA og sfðar íslandsbanka.
Síðar lét Hannes til sín taka í fjár-
festingum með Jóni Helga Guð-
mundssyni tengdaföður sínum og
eiganda BYKO. Hannes var kvæntur
Steinunni dóttur hans sem er inn-
anhússarkitekt. Þau kynntust sem
unglingar í MR og menntaskólaást-
in virtist gefa vel af sér. Á sumrin
kom Hannes heim frá Bandaríkjun-
um og vann hjá tengdaföður sínum
í BYKO. Það varð síðan fyrsta stopp-
ið hans þegar hann kom til lands-
ins, áður en hann hóf störf hjá
íslenskri erfðagreiningu.
Fjárfesti með tengdapabba
Jón Helgi hefur notið mikiUar
virðingar í íslensku viðskiptalífi.
Hann tók við fjölskyldufyr-
irtækinu BYKO og
efldi það mjög. í gegnum tengsl
hans og viðskipti opnuðust ýmis
tækifæri fyrir tengdasoninn. Hann-
es sat í stjórn Smáralindar fyrir
eignarhlut þeirra og varð stjórnar-
formaður. Þar kynntist hann Nóa-
túnsfjölskyldunni og Byggingafélagi
Gylfa og Gunnars sem hafa nú fjár-
fest með honum í Flugleiðum og
Húsasmiðjunni. Hannes fjárfesti
einnig með Jóni Helga í Keri en Jón
Helgi hafði komist í viðskipti
með Ólafi Ólafssyni þeg-
ar flutningafyrirtæki
hans Jónar sam-
einaðist Sam-
skipum. f
gegnum
gömul tengsl
Jóns Helga
og Þórðar
Magnússon-
ar, ákváðu
þeir að fara
saman inn í
Búnaðarbank-
ann. Hannes
var með og það
er þessi hlutur
sem rann inn í KB
banka á hagstæðu
gengi, sem hefur
staðið
undir
hans umsvifum upp frá því.
Keypti af sjálfum sér
Því var sérstaldega fagnað þegar
þeir tengdafeðgar héldu áfram og
keyptu saman ráðandi hlut í Flug-
leiðum í nafni eignarhaldsfélagsiris
Oddaflugs. Morgunblaðið skrifaði
leiðara um að það væri gott þegar
slíkir menn tækju að sér svo stóran
eignarhlut í svo mikilvægu fyrir-
tæki. Hugmyndin var að gamlir
vinir og félagar, Jón Helgi
og Sigurður Helgason
forstjóri, byggðu félag-
ið upp í sameiningu.
Svo kom babb í
bátinn. Jón Helgi
komst að því að
þegar Flugleiðir
keyptu, að undir-
lagi Hannesar, 10
prósenta hlut í
Eimskipi, meðal
annars liluti af
Hannesi sjálfum
fyrir 300 milljón-
ir króna. Sam-
kvæmt heimildum
DV voru nokkrir
stjórnarmenn og
Jón Helgi sjálf-
ur ekki
ánægðir með að komast að því að
Hannes væri báðum megin við
borðið.
Ástarævintýri upp á milli
tengdafeðga
Á sama tíma og þetta kom upp
skildi Hannes við menntaskólaást-
ina sína Steinunni og tók saman við
Unni Sigurðardóttur. Þau hafa nú
eignast barn saman. Kaldhæðni
örlaganna er að Unnur var einka-
ritari Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
þegar Hannes og hún byrjuðu að
draga sig saman en nú upp á
síðkastið hafa Jón Ásgeir og Hannes
átt samleið í viðskiptum í meira
mæli en áður. Hannes hefur fjárfest
með Baugi í Húsasmiðjunni og
Baugur hefur fjárfest með honum í
Flugleiðum. Kunningsskapur þess-
ara tveggja ungu viðskiptamanna
hefur verið sagður eins náinn og
hægt er í þeim bransanum. Skilnað-
ur Steinunnar og Hannesar var erf-
iður en það flækti málin að Hannes
var líka að skilja við tengdaföðurinn
sem hafði fjárfest með honum í
mörgum fyrirtækjum. Eftir skilnað-
inn byrjaði Steinunn að hasla sér
völl í viðskiptum og hefur nú eign-
ast stóran hlut í lslandsbanka og
tekið þar sæti í stjórn, fýrst kvenna.
Tekist á um lcelandair
Hjá Flugleiðum þurfti að
leysa úr eignarhaldinu og
börðust tengda-
feðgarnir um yfir-
ráðin í félaginu.
Jón Helgi
og Sigurður Helgason forstjóri
stóðu saman en Hannes Smárason
fékk liðsinni frá gömlum félögum úr
Smáralind, þeim Einari í Saxhól og
Gunnari og Gylfa í BYGG. Einar og
Hannes áttu saman hótel Búðir.
Félagið Saxbygg var búið til sem
keypti hlut Baugs og Fengs út úr
Flugleiðum. Með þessu var Hannes
kominn með undirtökin í félaginu
og gat farið að þróa það í þær áttir
sem hann langaði tU. Hann breytti
viðskiptaáætluninni og færði út kví-
arnar. Flugleiðir upplifa nú nýtt
blómaskeið með nýjan karl í
brúnni. Hannes er óhræddur við að
taka áhættu. Hann stóð fyrir kaup-
um á hlut í Easyjet, Flugleiðir hafa
gert stærsta flugvélakaupsamning á
íslandi og Hannes leitar sjálfur
nýrra leiða til að ávaxta sitt pund.
Hannes sýndi síðan áhuga á að
kaupa Eimskipafélagið en eigendur
þess vildu fá meira fyrir en hann var
til í að bjóða.
í samkeppni við
tengdapabba
Hannes Smárason er kominn
yfir krossgöturnar. Hann stendur
nú uppi, algjörlega á eigin fótum,
djarfur fjárfestir sem tekur áhættu.
Margt af því sem hann hefur gert
liefúr gengið vel upp. Hann hefur
líka hafið nýtt líf með nýja konu,
nýtt hús og lítið barn. Nýjasta fjár-
festing hans er í Húsasmiðjunni.
Þar er hann kominn í beina sam-
keppni við Jón Helga og fyrirtældð
sem hann vann hjá þegar hann var í
háskóla.
kgb@dv.is
5 fŒLANDAIR
1 000Q0QÍQ 0 Q Q Q Q
Byrjaði hjá BYKO
Hefur nú fjárfest i stærsta
samkeppnisaðilanum,
Húsasmiðjunni.
I Easyjet
I Flugleiðirhafa
I keypt hlut í Easyjet
I undirstjórn
I Hannesar.
Unnur Sigurðardóttir ritari Unnur
sambýliskona Hannesar er39 ára. Hún
er nú í barneignarleyfi en þau Hannes
eignuðust barn á síðasta ári. Unnur
starfar sem ritari yfirstjórnar hjá Baugur
Group hf. Hún lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla Islands árið 1987 og
starfaði á skrifstofu bankastjóra Seðla-
banka Isiands áður en hún hóf störf hjá
Baugi þarsem hún hefur starfað isjö ár.
Kári Stefánsson
Hannes og Kári unnu |
velsaman hjá
deCODE.
Hannes var kvæntur Steinunni dóttur
Jóns Helga sem er innanhússarkitekt.
Þau kynntust sem unglingar í MR og
menntaskólaástin virtist gefa vel af
sér. Á sumrin kom Hannes
heim frá Bandaríkjunum og
vann hjá tengdaföður
sínum ÍBYKO.
fslensk erfðagreining
Hannes var einn af lykil-
mönnum i uppbyggingu
fyrirtækisins.
i
(H Hafa fjárfest gríðarlega upp á siðkastið með
j Forstjórinn og stjórnarformaðurinn
ii
þeim tilgangi að auka umsvif Flugleiða „
allan heim. Hannes stjórnar en Sigurður
hættur.
Stemunn Jonsdottir innanhússarkitekt Steinunn
erdottirJons Helga GuðmundssonaríNorviksem með-
a/ annars a BYKO og meirihlutann iKaupási, sem rekur
verslanirnar 11-11, Nóatún, Krónuna, Húsgagnahöllina
og Intersport. Þau Hannes skildu á siðasta ári en eiga
ía™n,?0 börn sem hæði búa hjá móðursinni i húsi
fjolskyldunnar i Blikanesi. Steinunn er menntaður inn-
anhussarkitekt og hefur lítið skipt sér afviðskiptalifinu
þar tila siðasta áriþegarhún fjárfesti istórum hluti
Islandsbanka þar sem hún situr nú i bankaráði.
Blikanes 9
Heimili Hannesar og Steinunnar á
Arnarnesi þar sem hún býrnú ein með
börnunum tveimur. ____
Bláfugl keyptur
I Hannes undirritaði |
1 nýlega kaup Flug-
I leiða á fraktfélag-
I inu Bláfugli.
Naustabryggja 16 Hannes og Unnurstofnuðu
heimili i Bryggjuhverfinu i Grafarvogi en nú er
talað um aðþau hafi fjárfest íglæsilegu
framtiðarheimili við Fjölnisveq i Þinaholtunum.
ffs I Jón Ásgeir Jóhannesson
■ "II ’ \ Leiðir Jóns Ásgeirs og Hannesar
I hafa oft legið saman, nú siðast
I með innkomu Hannesar
I i Húsasmiðjunna.
I Bjarna Armannsson
I Hannes og Kári unnu með Bjarna i
valdabaráttu í FBA og Islandsbanka.