Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2005, Side 39
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR2005 39
Mikil ánægja var
meðal gesta með
dagskrána sem va
full af skemmti-
legum atriðum
Hljómsveitin sat spök og fyigdist
með atriðunum milli þess sem hún
spilaði undir fjöldasöng.
Fylgst með og
skrafað saman
I leiðinni.
Hljómsveitin DAS úr Hafnarfirði
DAS spilar fyrír dansi hvert
föstudagskvöld á Hrafnistu I Hafnarfiröi.
Þrjár kátar og glaöar
T% Æmmi
Hamingja og gleði við lýði
Guðrún Jónsdóttir er forstöðukona félagsstarfs
aldraðra í Gerðubergi. Hún byrjaði að vinna í Gerðu-
bergi árið 1986 en hefur verið forstöðukona síðan
1990. „Síðan ég hóf störf í Gerðubergi hefur orðið
„Við erum með sundlaug sem er
mikið notuð ásamt því að vera
með skipulagða leikfimi. Púttvöll-
urinn er mjög vinsæll og hefur
hann stuðlað að því að karlmenn-
imir hafa í síauknum mæli byrjað
að stunda félagsstarfið en konur
hafa hingað til verið svolítið dug-
legri við þaö," segir Lovísa að lok-
um og bætir því við sem merkilegt
er að Hrafnista í Hafnarfirði er
eina öldrunarheimilið sem átt
hefur fulltrúa á uppákomum sem
þessum.
mikil vitundarvakning hvað varðar félagsstarf aldr-
aðra. Fólk á sér meiri tómstundir og er ásókn til mín
alltaf að aukast. Fólk er farið að njóta lífsins mikið
meira og gerir meiri kröfur, fer til útlanda og í sumar-
bústaði og vill umgangast fólk á svipuðum stað í líf-
inu,“ segir Guðrún og heldur áfram: „Þegar ég byrjaði
var til dæmis bara ein kona sem kom til mín keyrandi.
Núna eru flestar konur á bíl en það var bara ekki svo
algengt að konur tækju bflpróf. Núna hefur orðið
hálfgerð kynslóðaskipting hjá gömlu fólki." Gerðu-
berg hóf samstarf við leik- og grunnskóla fyrir
nokkrum árum. „Okkur fannst mikilvægt að elsta
kynslóðin og sú yngsta fengju að kynnast. Það er
verkefni í gangi núna þar sem ungir krakkar og eldri
borgarar hittast einu sinni á ári og gróðursetja saman
tré í samvinnu við Garðræktarfélg íslands." segir
Guðrún og bætir því við að það sé mikill ávinningur
að fá aðila sem eru tilbúnir að vinna að þessu starfi.
Aldurstakmark í félagsstarfið er ekkert í Gerðubergi.
„Fram að árinu 1997 var aldurstakmarkið 67 ár en
núna eru allir velkomnir. Yngsta manneskjan sem
telcur þátt er fædd 1970 en sú elsta er fædd 1913 svo
það er mikil breidd í því fólki sem kemur til okkar,"
segir Guðrún sem er ánægð með þátttökuna hjá öllu
þessu fólki.
Sýnendur frá Gerðubergi
sýndu enskan dans.
Nýstárleg notkun
göngustafa leit
dagsins Ijós
Páll Gísiason læknir satspak-
ur og fylgdist með dagskránni á
miðvikudaginn. Konan hans,
Soffia Stefánsdóttir, er mjög virk
í starfi FÁÍA en hann segist sjálf-
ur meira fylgjast með. „Éghreyfi
mig nú þokkalega mikið enda
mikilvægtfyrir alla, ekki síst fólk
sem komið er á aldur, að hreyfa
sig. Það vantar kannski bara
frumkvæði hjá fólki, að fara og
gera eitthvað í málunum enda
hreyfir enginn mann nema
maður sjálfur," segir Páll og
glottir. Páll er orðinn áttræður
og fagnar því að hafa náð svona
háum aldri. „Það er bara tvennt
í stöðunni, að deyja vmgur eða
eldast og ég er mjög glaður að
seinni kosturinn varð tilfellið hjá mér,“ segir Páll sem er gamall skáta-
höfðingi. „Ég hitti ennþá gamla félaga mína úr skátunum reglulega þar
sem við hittumst og spjöllum um daginn og veginn. Það finnst mér alveg
ómissandi þáttur í lífinu enda um margt að skrafa," segir Páll að lokum
og heldur áfram að fylgjast með konu sinni og félögum.
! MH Gíslason læknir.
FÁÍA
Félag áhugafólks um íþri
Stofnað 13. júní l4*-