Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2005, Side 40
40 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005
Helgarblað DV
HaUdóra Rut Bjarnadóttir er 21 árs gömul og er borin og barn-
fædd í Hveragerði. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólan-
um á Selfossi í fyrra af félagsfræði- og sálfræðibraut. Hún tók líka
þátt í Fegurðarsamkeppni fslands í fyrra og varð í þriðja sæti.
„Framkvæmdastjóri Ungrú Suð-
urlands-keppninnar hringdi í mig
og bað mig að taka þátt. Eg skoðaði
þetta aðeins en ákvað svo bara að slá
til. Mér fannst það bara mjög gam-
an. Ég hef mjög gaman af því að vera
í kringum fólk og er mikil félagsvera.
Svo fannst mér líka bara skemmti-
legt að prófa þennan heim.“ Hall-
dóra fór ásamt stelpunum sem lentu
í fyrsta og öðru sæti til Japans og
Kína en það var í fyrsta skipti sem
hún fór til útlanda. „Þetta var alveg
yndislegt. Ekki slæmt að fara til
Japans og BCína í fyrsta skipti sem
maður fer út. En ég ætía að ferðast
eitthvað á þessu ári. Það er svo
mikið af vinafólki míns og kærastans
míns, Björns Ásgeirs Björgvinsson-
ar, að flytja út og við ætlum að vera
dugleg að heimsækja það í sumar.“
Small við Sverri
Ástæðan fyrir því að þessi fríða
Hveragerðismær er allt í einu komin
í sjónvarpið er sú að Steini á Popp-
tíví hringdi í hana og bauð henni
starfið. Hann hefur greinilega verið
að fylgjast með Ungfrú íslandi karl-
inn. „Hann liringdi í mig í byrjun
Björn Ásgeir Björgvinsson og Halldóra
Rut Bjarnadóttir Kærustuparinu fínnst
gaman aö feröast saman og stefnir að þvl aö
fara til útlanda I sumar.
desember og spurði hvort ég vildi
koma fram í sjónvarpi. Ég sagðist nú
bara vilja koma og hitta hann og þá
hitti ég Sverri í leiðinni og við smitíi-
um bara svona ágætíega vel saman.
Okkur leist svo vel á þetta að við
álcváðum að prófa."
Markhópur þáttarins er ungt fólk
og þátturinn verður á dagskrá alla
virka daga á milli 18 og 19. „Við ætí-
um að taka fyrir tórtíist, tónlistar-
menn munu koma í viðtöl og spila
fyrir okkur órafmagnað. Síðan
munum við fjalla um tískuna og ís-
lenska hönnuði. Við munum líka
flalla um forvarnir og læknar munu
koma í spjall til okkar einu sinni í
viku og ræða um heilsuforvarnir og
kynhegðun. Við verðum líka með
fréttir, slúður og íþróttafréttir. Svo
bjóðum við bara góðum gestum í
þáttinn og lítum á mannlífið og
menninguna."
Feguröardrotting Hall-
dóra varð I þriðja sæti I
Ungfrú Island I fyrra.
Sverrir Bergmann Þau
Sverrir og Dóra smullu
saman viö fyrstu kynni.
Ég sagðist nú bara vilja koma og hitta hann
og þá hitti ég Sverri í leiðinni og við smullum
bara svona ágætlega velsaman. Okkur leist
svo vel á þetta að við ákváðum að prófa.
Halldóra játar að það sé mikil
vinna við þessa þætti en að það sé
allt í lagi af því að hún og Sverrir séu
bæði góð í að vinna undir miklu
álagi.
Umkringd FM hnökkum
HaJldóra og Björn
sáu að þau yrðu að
flytja til borgarinnar
núna um áramótin
enda er hann í
Háskólanum líka.
Halldóra stefndi
líka á að fara í lög-
fræði í haust
en er búin að
setja allt slíkt á pásu í
bili. „Ég tel að maður
eigi ekki að flýta sér neitt
með h'fið. Ég sé bara
til hvernig þáttur-
inn gengur og
allt annað
kemur bara í
ljós. Mér
finnst mjög
fínt að
búa í
Reykjavík, við búum eiginlega bara á
Laugaveginum þannig að ég fæ
menninguna beint í æð,“ segir
Halldóra og hlær.
„Það er rosalega gaman að vinna
á Popptíví og það eru mjög margir
karlar héma. Þetta er eiginlega bara
karlaveldi. En þetta er mjög fínt,
mikið glens og mikið gam-
an hérna. Svo er FM komið
hérna við hliðina á
okloir. Ég er eigin-
lega bara umkringd
Fm hnökkum,"
segir Halldóra og
hlær.
Halldóru finnst mjög gaman
aö búa í miðbænum Hún flutti
frá Hverageröi til Reykjavfkur til
þess að fara í háskólann.
Fegurðardrottningin Halldóra Rut
Bjarnadóttir úr Hveragerði ákvað að
hætta í lögfræði í Háskólanum til þess
að byrja með sjónvarpsþætti á Popptíví
með tónlistarmanninum Sverrir Berg-
mann. Þátturinn sem byrjar á mánudag-
inn hefur hlotið nafnið Fríða og dýrið.