Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2005, Side 54
54 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005
Helgarblað DV
Keflavíkurstöðin - snemmbúin minningargrein
Mikið var að Halldór Ásgrímsson
viðurkenndi í viðtali í vikunni að
ákvörðunin um að styðja Íraksstríð-
ið hefði tengst viðleitni til að halda
varnarliðinu hér á landi - þetta hefði
hann mátt segja fyrir löngu. En líkt
og Halldór sagði, það kom ekki að
miklu gagni. Stuttu seinna var farið
að tala um brottför orrustuþotanna
frá Keflavík. Nú skilst manni helst að
- varnarliðið sé hér enn vegna vináttu
Davíðs Oddssonar við Bushíjöl-
skylduna. Varnarsamstarfið byggir
sem sagt á persónulegri greiðasemi.
Það er ekki minni maður en sjálfur
Styrmir Gunnarsson sem heldur
fram þessari kenningu.
Öryggissamfélag í upplausn
Frekar eru þetta nú þunnar
ástæður fyrir veru herliðs. Eða hvað
gerist þegar Davíð hverfur af vett-
vangi stjórnmálanna? Maður skyldi
Kka ætla að þetta geti breyst býsna
hratt ef nýir menn komast til vafda í
Bandaríkjunum. Halldór skýrir frá
því að Donald Rumsfeld og liðið í
Pentagon hafí reiðst þegar íslend-
ingar sneru sér beint til forsetans.
5 Vamarmálaráðuneytið vill herstöð-
ina feiga. Kannsld er von okkar
fólgin í því að Davíð verði eilífur - og
að Jeb, bróðir Georges W. Bush,
komist í Hvíta húsið á eftir honum.
Um daginn hlýddi ég á fýrirlestur
hjá Val Ingimundarsyni, helsta
fræðimanni okkar á sviði varnar-
mála. Valur orðaði það svo að örygg-
issamfélag íslands og Bandaríkj-
anna sem stofnað var til í kalda
stríðinu sé á upplausnarstigi. Þá var
það byggt á gagnkvæmum áhuga og
hagsmunum. Nú er öldin önnur.
Umræður um tilgang herstöðvar-
innar enda yfirleitt í flækju ásakana
sem eru eins og bergmál úr fortfð-
inni. Þetta er pólitík í þáskildagatíð.
Hverju þarf að verjast?
Hverju þarf að verjast? Er það
innrás eins og í skáldsögunni Red
Egill Helgason
veltir fyrir sér máiefnum
herstöðvarinnar í Keflavlk
Laugardagskjallari
Storm Rising eftir Tom Clancy þar
sem Sovétmenn gera leifturárás á ís-
land - og ein söguhetja bókarinnar,
Vigdís, þarf að flýja vestur í Dali?
Hverjir eiga þá að gera innrásina -
Grænlendingar? Norðmenn?
Eða óttast menn áhlaup hryðju-
verkasveita sem myndu leggja undir
sig illa varið stjórnkerfi? Ríkisútvarp-
ið? Nútíma Jörund hundadagakon-
ung? Eða árás á eitthvert sendiráð
sem hér er staðsett? Herlið búið rat-
sjá og orrustuþotum myndi ekki
vera mikil vörn gegn því. Helsti
möguleikinn á því að eitthvað óvænt
gerist er kannski í tengslum við flug
- að flugvél verði rænt hér á landi
eða flogið hér um. Afskekkt lega
landsins gerir þetta þó frekar ólík-
legt.
Mikill samdráttur í Keflavík
Hemaðarlegt gagn af herstöðinni
er sama og ekkert - það er eins gott
að viðurkenna það. Aðmírálhnn á
Vellinum er farinn og kominn
ofursti í staðinn. Við heymrn nú
undir Evrópuherstjómina í Stuttgart
í Þýskalandi, ekki amerísku her-
stjórnina í Norfolk. Sjálfir berjast
Þjóðverjar raunar upp á líf og dauða
gegn brottflutningi bandarískra her-
manna - það skiptir máli í landi þar
sem er mikið atvinnuleysi.
Samdrátturinn í Keflavík hefur
verið rosalegur. Þegar mest var taldi
vamarliðið hátt í 5000 manns, nú
em þama 1700 hræður.
Flugvélaflotinn er að mestu leyti
horfinn. AWACS-ratsjárflugvélamar
em ekki þarna lengur. Orion-kaf-
bátaleitarflugvélarnar sem kröfðust
fjölmennra áhafna hurfu fyrir
skömmu. Ormstuflugvélunum sem
eitt sinn vom tuttugu og fjórar tals-
ins hefur fækkað stórlega - fslensk
stjórnvöld leggja ofuráherslu á að
halda í fjórar þotur. Þó hefur verið
sýnt fram á - í óþökk íslensku stjórn-
arinnar - að þær em óvopnaðar og
hafa langan viðbragðstíma. Þær geta
ekki flogið gegn hugsanlegum
óvinaflugvélum nema með löngum
fýrirvara. Ef ísland yrði fyrir árás yrði
ekki stuðst við það lið sem er í Kefla-
vík, heldur yrðu mannafli og her-
gögn send annars staðar frá.
Leikurinn mikli í Mið-Asíu
Heimsmyndin hefur gjörbreyst.
Lfldega hefur ekki verið friðsamlegra
á norðurslóðum síðan fýrir fýrri
heimstyrjöld. Umhverfisógnin er
mesta hættan sem steðjar að í norð-
urálfu - ekki stríð eða hryðjuverk.
Það er nokkuð skotheld kenning að
lýðræðisrfld fari ekki í styrjaldir við
önnur lýðræðisrfld. Þungi hernaðar-
umsvifa Bandaríkjanna er kominn
til Mið-Asíu þar sem þeir sáldra
niður herstöðvum í því skyni að
halda í skefjum íslamstrúarrflcjum -
og ekki síður til að umkringja Kína.
Bak við þetta er græðgisleg sókn eftir
meiri olíu til að knýja áfram neyslu-
brjálæðið í Bandaríkjunum. Það er
jafhvel talað um að Leikurinn mikli
sé byrjaður aftur í Mið-Asíu - „The
Great Garne" sem Kipling skrifaði
um í sögu sinni um Kim.
Þokast nær Evrópu
Valur Ingimundarson hefur orð-
að það svo að við séum að færast
meir og meir inn í öryggissamfélag
með Evrópu. Þetta hefur gerst þrátt
fyrir vináttu núverandi stjórnar við
Bandaríkin og án þess að um það
hafi verið teknar einhverjar meiri-
háttar ákvarðanir. Þetta er einfald-
lega þróunin - við þokumst nær Evr-
ópu. Til marks um þetta nefnir Valur
þátttöku okkar í friðargæslu og upp-
byggingarstarfi eftir stríðátök; þar
höfum við fyrir þrýsting frá Nató
farið að taka þátt í verkefnum sem
Evrópubúar sjá yfirleitt um en
Bandaríkjamenn hafa ekki áhuga á.
Ennfremur má nefna öryggissam-
starfið sem felst í Schengen-samn-
ingnum.
Kannski þarf kynslóðaskipti
í hvað erum við þá að halda með
stuðningnum við Bandaríkin sem
ræddur var í viðtalinu við Halldór
Ásgrímsson? Annars vegar eru menn
bundnir í gamla hefð; vera varnar-
liðsins var lengi kjölfesta í stjórn-
rriálastarfi, þetta var aðalmál Sjálf-
stæðisflokksins. Það er erfitt að
horfast í augu við að tímabil sé á
enda. Kannski þarf algjör kynslóða-
skipti til - fólk sem man ekki eftir
kalda stríðinu.
Svo eru það auðvitað öll störfin á
Suðurnesjum, þótt ráðamenn vilji
helst ekki viðurkenna það. Það yrði
of harkalegt ef þau töpuðust öll í
einu - betra að láta þetta fjara út
smátt og smátt. Þetta er í samræmi
við þá tísku í íslenskum stjómmál-
um að tala ekki af hreinskilni heldur
vera með látalæti og imdanbrögð.
Þáttur með Ólafi og Einari
Þá að fortíðinni. Ég var að
ímynda mér um daginn ef ég hefði
verið með umræðuþátt sirka 1957
og maður hefði haft karla eins og
Einar Olgeirsson, Ólaf Thors og
Jónas frá Hriflu. Þá hefði Keflavflcur-
stöðin verið heitasta mnræðuefriið
þátt eftir þátt, ár eftir ár. Raðirnar af
varðbergsmönnum og herstöðva-
andstæðingum hefðu runnið gegn-
um þáttinn. En svona er með sum
deiluefríi, þau barasta gufa upp. Það
er ekki hægt að fá neinn til að æsa
sig yfir herstöðinni lengur nema-
kannski verkalýðsforingja á Suður-
nesjum og fáeinar hræður sem eftir
em í Samtökum herstöðvaandstæð-
inga.
íslendingar á Moskvits
Deilurnar um herstöðina eitruðu
íslenska pólitflc ártun saman - það
var eiginlega ekki hægt að komast til
að ræða neitt almennilegt. Til
dæmis hvernig samfélagi þjóðin
vildi lifa í. Það hefur verið talað um
vígh'nuna í gegnum hjörtu þjóðar-
innar. Einn sérkennilegasti kaflinn í
þessari sögu em sovétviðskiptin
sem sósíalistar stóðu fyrir. íslend-
ingar vom eina þjóðin í Vestur-Evr-
ópu sem ók um á Moskvits, Volgu og
Rússajeppum og dældi rússneskri
oh'u á bflana sína. Á móti seldum við
þangað ullarteppi og sfld; svonefrid
sfldarútvegsnefnd bjó hálfu og heilu
árin í Moskvu. Þetta hafði auðvitað
efnahagslegt gildi - hvert ár biðu
menn í ofvæni eftir að sovétsamn-
ingarnir næðust - en vinstri menn
töldu þetta lflca nauðsynlegt til að
vega upp á móti áhrifum Bandaríkj-
anna, hernámi hugarfarsins - kóka-
kóla, jórtmleðri og Elvis Presley.
Mikið af vondum kveðskap
Þetta var menningarbarátta. Hún
lifir í ókjömm af vondum kveðskap -
ofhlöðnum myndlfldngum um fjall-
konuna, hulduna í dalnum, tröll,
finngálkn í vestri. Maður fer dálítið
hjá sér þegar maður les margt af
þessu. „They won the war but we
won the songs", segir í frægum texta
Toms Lehrer um Spánarstríðið.
Vissulega vom flest skáldin á
móú hernum en það er ekki hægt að
segja að herstöðvabaráttan hafi lað-
að fram það besta í þeim. Ef farið er
út í bókmenntalegu hliðina væri
maður eigirflega til í að taka sér
stöðu með Garðabæjarskrflnum
sem henti moldarkögglum í Kefla-
vflcurgöngumar.
Kúgun hins veika
Önnur hhð á þessu er hvemig
smáþjóð notaði aðstöðu sína til að
kúga stórþjóðir í krafú hemaðarlegs
mikilvægis. Guðni Th. Jóhannesson
sagnfræðingur gerði þessu skil í
þætti hjá mér í haust - vildi jafrivel
nota hugtakið „íslandiseringu" í
þessu sambandi. Því þótt aronska
(sú hugmynd að kreista sem mest út
úr Kananum, kennd við Aron í
Kauphöllinni) væri bannorð í betri
kreðsum, reyndu íslendingar að fá
eins mikið fýrir herstöðina og þeir
gátu.
Það var stofnað fyrirtæki um
hermangið sem var í eigu manna úr
Sjálfstæðisflokki og Framsóknar-
flokki. Flestir íslenskir stjórnmála-
menn vom réttu megin í baráttunni
við kommúnismann, en um leið
grasseraði hér grímulaus tækifæris-
hyggja. Það hefur jafrível verið talað
um „blackmaiT í þessu sambandi -
íslendingar gernýttu sérstöðu sína
til að fá lán og efnahagsaðstoð.
Guðni vitnar í orð bresks embættis-
manns sem sagði: „Þeir em greini-
lega mjög ótraustir bandamenn og
græðgi þeirra á sér engin takmörk."
Bíltúrar á Völlinn
Um daginn riíjaði ég upp í grein
hvernig farið var með varnarliðs-
mennina hér. Þeir fengu ekki að vera
úti á kvöldin, lfldega var aðallega
verið að vemda íslenskt kvenfólk.
Framan af máttu ekki heldur vera
svertingjar hér. En Völlurinn laðaði
og lokkaði með ýmsu freistandi
góssi; dósagosi, hamborgumm, bjór
og poppmúsflc. Ég man að sumir
vinir mínir fóm þangað í bfltúra til
að ná í eitthvað af þessu. Upp úr því
fór íslenskt samfélag að breytast svo
að það var eiginlega ekkert að sækja
á Völlinn lengur - frekar að maður
sæi varnarhðsmenn ráfa um í
Kringlunni, of blanka til að kaupa
neitt.
Tungan á vinnuhæli
Þegar farið verður að skrifa minn-
ingagreinar um herstöðina verður
langur kafli um þátt hennar í að rjúfa
einangrun landsins. í merkhegri bók
sem heitir Úr fjötrum lýsir Herdís
Helgadóttir því hvemig koma er-
lendra hermanna hingað var að
vissu leyti frelsun frá mörlandanum,
iha siðuðum íslenskum karlmönn-
um, svona lflct og heimurinn væri að
opnast. Þá var bmgðist við með því
að setja stúlkur sem höfðu samneyti
við útlenda hermenn á vinnuhæh án
dóms og laga. Síðar varð frægt þegar
hundrað menningarvitar stigu fram
og létu loka Keflavflcursjónvarpinu.
Þá má kannski segja að rímgan hafi
hka verið sett á vinnuhæli.
GITARINN EHF.
www.gttarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: S52 2125 i*™ m@gjtarinn.is
- Trommusett með öllu, •
t
*
*
*
*
*
*
*
*
★
*
*
•I
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*-X
*
ásamt kennslu
myndbandi og
æflngaptöttum
aitt settið.
Rétt verð
73.900. -
Tiiboðsverð
54.900. -
á
ÞIÓÐLAGAGÍTAR: KR- 14.900,-
KLASSÍSKUR GÍTAR
FRÁ
KR. 10.900.-
Opið virka daga frá kl. 10-18
Qpið iaugardaga frá kl. 11-16
RAFMAGNSSETT: KR- 27.900.-
AFMACNSCitAR ■ MACMASI - POW ■ KENNSLUBOK
snuiruuTA - riTAHNeauR oc j snúrur'H!)
í
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
•*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
JW
Hernaðarlegt gagn af herstöðinni er sama og
ekkert - það er eins gott að viðurkenna það.
Aðmírállinn á VeUinum er farinn og kominn
ofursti / staðinn. Við heyrum nú undir Evrópu-
herstjórnina í Stuttgart í Þýskalandi, ekki
amerísku herstjórnina í Norfolk.