Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2005, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2005, Page 54
54 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005 Helgarblað DV Keflavíkurstöðin - snemmbúin minningargrein Mikið var að Halldór Ásgrímsson viðurkenndi í viðtali í vikunni að ákvörðunin um að styðja Íraksstríð- ið hefði tengst viðleitni til að halda varnarliðinu hér á landi - þetta hefði hann mátt segja fyrir löngu. En líkt og Halldór sagði, það kom ekki að miklu gagni. Stuttu seinna var farið að tala um brottför orrustuþotanna frá Keflavík. Nú skilst manni helst að - varnarliðið sé hér enn vegna vináttu Davíðs Oddssonar við Bushíjöl- skylduna. Varnarsamstarfið byggir sem sagt á persónulegri greiðasemi. Það er ekki minni maður en sjálfur Styrmir Gunnarsson sem heldur fram þessari kenningu. Öryggissamfélag í upplausn Frekar eru þetta nú þunnar ástæður fyrir veru herliðs. Eða hvað gerist þegar Davíð hverfur af vett- vangi stjórnmálanna? Maður skyldi Kka ætla að þetta geti breyst býsna hratt ef nýir menn komast til vafda í Bandaríkjunum. Halldór skýrir frá því að Donald Rumsfeld og liðið í Pentagon hafí reiðst þegar íslend- ingar sneru sér beint til forsetans. 5 Vamarmálaráðuneytið vill herstöð- ina feiga. Kannsld er von okkar fólgin í því að Davíð verði eilífur - og að Jeb, bróðir Georges W. Bush, komist í Hvíta húsið á eftir honum. Um daginn hlýddi ég á fýrirlestur hjá Val Ingimundarsyni, helsta fræðimanni okkar á sviði varnar- mála. Valur orðaði það svo að örygg- issamfélag íslands og Bandaríkj- anna sem stofnað var til í kalda stríðinu sé á upplausnarstigi. Þá var það byggt á gagnkvæmum áhuga og hagsmunum. Nú er öldin önnur. Umræður um tilgang herstöðvar- innar enda yfirleitt í flækju ásakana sem eru eins og bergmál úr fortfð- inni. Þetta er pólitík í þáskildagatíð. Hverju þarf að verjast? Hverju þarf að verjast? Er það innrás eins og í skáldsögunni Red Egill Helgason veltir fyrir sér máiefnum herstöðvarinnar í Keflavlk Laugardagskjallari Storm Rising eftir Tom Clancy þar sem Sovétmenn gera leifturárás á ís- land - og ein söguhetja bókarinnar, Vigdís, þarf að flýja vestur í Dali? Hverjir eiga þá að gera innrásina - Grænlendingar? Norðmenn? Eða óttast menn áhlaup hryðju- verkasveita sem myndu leggja undir sig illa varið stjórnkerfi? Ríkisútvarp- ið? Nútíma Jörund hundadagakon- ung? Eða árás á eitthvert sendiráð sem hér er staðsett? Herlið búið rat- sjá og orrustuþotum myndi ekki vera mikil vörn gegn því. Helsti möguleikinn á því að eitthvað óvænt gerist er kannski í tengslum við flug - að flugvél verði rænt hér á landi eða flogið hér um. Afskekkt lega landsins gerir þetta þó frekar ólík- legt. Mikill samdráttur í Keflavík Hemaðarlegt gagn af herstöðinni er sama og ekkert - það er eins gott að viðurkenna það. Aðmírálhnn á Vellinum er farinn og kominn ofursti í staðinn. Við heymrn nú undir Evrópuherstjómina í Stuttgart í Þýskalandi, ekki amerísku her- stjórnina í Norfolk. Sjálfir berjast Þjóðverjar raunar upp á líf og dauða gegn brottflutningi bandarískra her- manna - það skiptir máli í landi þar sem er mikið atvinnuleysi. Samdrátturinn í Keflavík hefur verið rosalegur. Þegar mest var taldi vamarliðið hátt í 5000 manns, nú em þama 1700 hræður. Flugvélaflotinn er að mestu leyti horfinn. AWACS-ratsjárflugvélamar em ekki þarna lengur. Orion-kaf- bátaleitarflugvélarnar sem kröfðust fjölmennra áhafna hurfu fyrir skömmu. Ormstuflugvélunum sem eitt sinn vom tuttugu og fjórar tals- ins hefur fækkað stórlega - fslensk stjórnvöld leggja ofuráherslu á að halda í fjórar þotur. Þó hefur verið sýnt fram á - í óþökk íslensku stjórn- arinnar - að þær em óvopnaðar og hafa langan viðbragðstíma. Þær geta ekki flogið gegn hugsanlegum óvinaflugvélum nema með löngum fýrirvara. Ef ísland yrði fyrir árás yrði ekki stuðst við það lið sem er í Kefla- vík, heldur yrðu mannafli og her- gögn send annars staðar frá. Leikurinn mikli í Mið-Asíu Heimsmyndin hefur gjörbreyst. Lfldega hefur ekki verið friðsamlegra á norðurslóðum síðan fýrir fýrri heimstyrjöld. Umhverfisógnin er mesta hættan sem steðjar að í norð- urálfu - ekki stríð eða hryðjuverk. Það er nokkuð skotheld kenning að lýðræðisrfld fari ekki í styrjaldir við önnur lýðræðisrfld. Þungi hernaðar- umsvifa Bandaríkjanna er kominn til Mið-Asíu þar sem þeir sáldra niður herstöðvum í því skyni að halda í skefjum íslamstrúarrflcjum - og ekki síður til að umkringja Kína. Bak við þetta er græðgisleg sókn eftir meiri olíu til að knýja áfram neyslu- brjálæðið í Bandaríkjunum. Það er jafhvel talað um að Leikurinn mikli sé byrjaður aftur í Mið-Asíu - „The Great Garne" sem Kipling skrifaði um í sögu sinni um Kim. Þokast nær Evrópu Valur Ingimundarson hefur orð- að það svo að við séum að færast meir og meir inn í öryggissamfélag með Evrópu. Þetta hefur gerst þrátt fyrir vináttu núverandi stjórnar við Bandaríkin og án þess að um það hafi verið teknar einhverjar meiri- háttar ákvarðanir. Þetta er einfald- lega þróunin - við þokumst nær Evr- ópu. Til marks um þetta nefnir Valur þátttöku okkar í friðargæslu og upp- byggingarstarfi eftir stríðátök; þar höfum við fyrir þrýsting frá Nató farið að taka þátt í verkefnum sem Evrópubúar sjá yfirleitt um en Bandaríkjamenn hafa ekki áhuga á. Ennfremur má nefna öryggissam- starfið sem felst í Schengen-samn- ingnum. Kannski þarf kynslóðaskipti í hvað erum við þá að halda með stuðningnum við Bandaríkin sem ræddur var í viðtalinu við Halldór Ásgrímsson? Annars vegar eru menn bundnir í gamla hefð; vera varnar- liðsins var lengi kjölfesta í stjórn- rriálastarfi, þetta var aðalmál Sjálf- stæðisflokksins. Það er erfitt að horfast í augu við að tímabil sé á enda. Kannski þarf algjör kynslóða- skipti til - fólk sem man ekki eftir kalda stríðinu. Svo eru það auðvitað öll störfin á Suðurnesjum, þótt ráðamenn vilji helst ekki viðurkenna það. Það yrði of harkalegt ef þau töpuðust öll í einu - betra að láta þetta fjara út smátt og smátt. Þetta er í samræmi við þá tísku í íslenskum stjómmál- um að tala ekki af hreinskilni heldur vera með látalæti og imdanbrögð. Þáttur með Ólafi og Einari Þá að fortíðinni. Ég var að ímynda mér um daginn ef ég hefði verið með umræðuþátt sirka 1957 og maður hefði haft karla eins og Einar Olgeirsson, Ólaf Thors og Jónas frá Hriflu. Þá hefði Keflavflcur- stöðin verið heitasta mnræðuefriið þátt eftir þátt, ár eftir ár. Raðirnar af varðbergsmönnum og herstöðva- andstæðingum hefðu runnið gegn- um þáttinn. En svona er með sum deiluefríi, þau barasta gufa upp. Það er ekki hægt að fá neinn til að æsa sig yfir herstöðinni lengur nema- kannski verkalýðsforingja á Suður- nesjum og fáeinar hræður sem eftir em í Samtökum herstöðvaandstæð- inga. íslendingar á Moskvits Deilurnar um herstöðina eitruðu íslenska pólitflc ártun saman - það var eiginlega ekki hægt að komast til að ræða neitt almennilegt. Til dæmis hvernig samfélagi þjóðin vildi lifa í. Það hefur verið talað um vígh'nuna í gegnum hjörtu þjóðar- innar. Einn sérkennilegasti kaflinn í þessari sögu em sovétviðskiptin sem sósíalistar stóðu fyrir. íslend- ingar vom eina þjóðin í Vestur-Evr- ópu sem ók um á Moskvits, Volgu og Rússajeppum og dældi rússneskri oh'u á bflana sína. Á móti seldum við þangað ullarteppi og sfld; svonefrid sfldarútvegsnefnd bjó hálfu og heilu árin í Moskvu. Þetta hafði auðvitað efnahagslegt gildi - hvert ár biðu menn í ofvæni eftir að sovétsamn- ingarnir næðust - en vinstri menn töldu þetta lflca nauðsynlegt til að vega upp á móti áhrifum Bandaríkj- anna, hernámi hugarfarsins - kóka- kóla, jórtmleðri og Elvis Presley. Mikið af vondum kveðskap Þetta var menningarbarátta. Hún lifir í ókjömm af vondum kveðskap - ofhlöðnum myndlfldngum um fjall- konuna, hulduna í dalnum, tröll, finngálkn í vestri. Maður fer dálítið hjá sér þegar maður les margt af þessu. „They won the war but we won the songs", segir í frægum texta Toms Lehrer um Spánarstríðið. Vissulega vom flest skáldin á móú hernum en það er ekki hægt að segja að herstöðvabaráttan hafi lað- að fram það besta í þeim. Ef farið er út í bókmenntalegu hliðina væri maður eigirflega til í að taka sér stöðu með Garðabæjarskrflnum sem henti moldarkögglum í Kefla- vflcurgöngumar. Kúgun hins veika Önnur hhð á þessu er hvemig smáþjóð notaði aðstöðu sína til að kúga stórþjóðir í krafú hemaðarlegs mikilvægis. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur gerði þessu skil í þætti hjá mér í haust - vildi jafrivel nota hugtakið „íslandiseringu" í þessu sambandi. Því þótt aronska (sú hugmynd að kreista sem mest út úr Kananum, kennd við Aron í Kauphöllinni) væri bannorð í betri kreðsum, reyndu íslendingar að fá eins mikið fýrir herstöðina og þeir gátu. Það var stofnað fyrirtæki um hermangið sem var í eigu manna úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknar- flokki. Flestir íslenskir stjórnmála- menn vom réttu megin í baráttunni við kommúnismann, en um leið grasseraði hér grímulaus tækifæris- hyggja. Það hefur jafrível verið talað um „blackmaiT í þessu sambandi - íslendingar gernýttu sérstöðu sína til að fá lán og efnahagsaðstoð. Guðni vitnar í orð bresks embættis- manns sem sagði: „Þeir em greini- lega mjög ótraustir bandamenn og græðgi þeirra á sér engin takmörk." Bíltúrar á Völlinn Um daginn riíjaði ég upp í grein hvernig farið var með varnarliðs- mennina hér. Þeir fengu ekki að vera úti á kvöldin, lfldega var aðallega verið að vemda íslenskt kvenfólk. Framan af máttu ekki heldur vera svertingjar hér. En Völlurinn laðaði og lokkaði með ýmsu freistandi góssi; dósagosi, hamborgumm, bjór og poppmúsflc. Ég man að sumir vinir mínir fóm þangað í bfltúra til að ná í eitthvað af þessu. Upp úr því fór íslenskt samfélag að breytast svo að það var eiginlega ekkert að sækja á Völlinn lengur - frekar að maður sæi varnarhðsmenn ráfa um í Kringlunni, of blanka til að kaupa neitt. Tungan á vinnuhæli Þegar farið verður að skrifa minn- ingagreinar um herstöðina verður langur kafli um þátt hennar í að rjúfa einangrun landsins. í merkhegri bók sem heitir Úr fjötrum lýsir Herdís Helgadóttir því hvemig koma er- lendra hermanna hingað var að vissu leyti frelsun frá mörlandanum, iha siðuðum íslenskum karlmönn- um, svona lflct og heimurinn væri að opnast. Þá var bmgðist við með því að setja stúlkur sem höfðu samneyti við útlenda hermenn á vinnuhæh án dóms og laga. Síðar varð frægt þegar hundrað menningarvitar stigu fram og létu loka Keflavflcursjónvarpinu. Þá má kannski segja að rímgan hafi hka verið sett á vinnuhæli. GITARINN EHF. www.gttarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: S52 2125 i*™ m@gjtarinn.is - Trommusett með öllu, • t * * * * * * * * ★ * * •I * * * * * * * * * * * * * *-X * ásamt kennslu myndbandi og æflngaptöttum aitt settið. Rétt verð 73.900. - Tiiboðsverð 54.900. - á ÞIÓÐLAGAGÍTAR: KR- 14.900,- KLASSÍSKUR GÍTAR FRÁ KR. 10.900.- Opið virka daga frá kl. 10-18 Qpið iaugardaga frá kl. 11-16 RAFMAGNSSETT: KR- 27.900.- AFMACNSCitAR ■ MACMASI - POW ■ KENNSLUBOK snuiruuTA - riTAHNeauR oc j snúrur'H!) í * * * * * * * * * * * * * •* * * * * * * * * * * * JW Hernaðarlegt gagn af herstöðinni er sama og ekkert - það er eins gott að viðurkenna það. Aðmírállinn á VeUinum er farinn og kominn ofursti / staðinn. Við heyrum nú undir Evrópu- herstjórnina í Stuttgart í Þýskalandi, ekki amerísku herstjórnina í Norfolk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.