Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2005, Blaðsíða 55
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005 55
Játarfimm
rán
Karlmaður á fertugsaldri
hefur játað á sig ránin tvö í
Grafarvogi og Mjódd á
fimmtudag. Lögregla hand-
tók manninn í íyrrakvöld
og við leit í bil hans fundust
vopn og lambhúshetta sem
notuð var við ránin. Mað-
urinn hefur ennfremur ját-
að aðild að þremur ránum
sem öll voru framin í síð-
ustu viku. Hann hefur ekki
komið við sögu lögreglu
áður en maðurinn tjáði
starfsfólki í þeim verslun-
um sem hann rændi að
hann væri örvæntingarfull-
ur og vantaði peninga.
Meðvitundar-
laus maður
Meðvitundarlaus maður
lá inni á skemmtistaðnum
Traffic í Keflavík klukkan 4 í
fyrrinótt. Hann hafði verið
sleginn niður. Lögregla og
sjúkrabíll voru kölluð til og
var maðurinn fluttur á
HeObrigðisstofnun Suður-
nesja. Hann reyndist nef-
brotinn. Maðurinn sem sló
hann var handtekinn en
honum var sleppt nokkru
síðar.
Natalía vill
skilnað
Natah'a Wiium vill skilja
við Ástþór Magnússon for-
setaframbjóðanda. Mála-
ferli milli þeirra hjóna
standa nú yfir í Héraðs-
dómi Reykjaness vegna
þessa. Málið var tekið fyrir í
vikunni. HjónadeilaÁst-
þórs og Natalíu rataði á síð-
ur blaðanna þegar Natalía
lýsti á opinskáan hátt sam-
bandi þeirra í viðtali við
DV. Þar sagði hún til dæm-
is: „Hann [Ástþór] varð
mjög reiður þegar ég sagði
honum að ég vildi skilja.
Ástþór viil vera sá sem ræð-
ur. Sá sem hefur valdið."
Nýrfram-
kvæmdastjóri
áHöfn
Bæjarráð hefur sam-
þykkt ráðningu Guðrúnar
Júlíu Jónsdóttur sem fram-
kvæmdastjóra við Heil-
brigðisstofnun HSSA á
Höfn í Hornafirði, en frá
þessu er greint á horna-
fjordur.is. Guðrún hefur
starfað við stofnunina í
fimmtán ár og hefur verið
hjúkrunarforstjóri um
skeið, en hún tók níu mán-
aða frí á meðan hún stund-
aði nám í stjórnun og
rekstri í heilbrigðis-
þjónustu. Stofhunin
hefur verið í fram-
kvæmdastjóra-
laus í nokkra
mánuði þrátt
fyrir að staðan
hafi tvívegis
verið auglýst.
..v. /
Ifcl
Maður sem í gær var dæmdur í héraðsdómi í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir
áralanga misnotkun á stjúpdóttur sinni, ætlar að áfrýja dómnum til Hæstaréttar og
vonast til að rétturinn telji brotin fyrnd eins og í málinu í fyrradag. Hann gengdi
trúnaðarstörfum fyrir trúfélag og þrýstingur frá því varð til þess að hann bjó
áfram inni á heimilinu hjá stúlkunni.
Treystir á að Htestiréttur
biargi sér eins og feita
Fertugur maður sem gegndi trúnaðarstörfum hjá trúfélagi var í
gær dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að misnota stjúp-
dóttur sína kynferðislega. Misnotkunin stóð í fimm ár og var
stúlkan átta ára gömul þegar maðurinn leitaði fyrst á hana. Mað-
urinn neitaði að hafa leitað á stjúpdóttur sína og sagði hana
alltaf hafa haft upptökin að samræði þeirra. Stuttu eftir að móð-
irin og stjúpinn skildu sagði hann móðirinni frá kynferðisofbeld-
inu. Þau tóku hins vegar saman aftur vegna þrýstings frá trúfé-
lagi sem þau voru félagar í og stjúpanum því gert kleift að mis-
nota stúlkuna áfram.
„Að sjálfsögðu áfrýja ég,“ segir
maðurinn sem var dæmdur í gær.
„Mér finnst þetta furðulegt allt
saman.“ Hann segist hafa kynnt sér
dóm Hæstaréttar frá í fyrradag þar
sem barnaníðingur var sýknaður af
brotum sínum vegna fyrningar.
„Mitt mál er ennþá meira fyrnt," seg-
ir hann. Hann stendur í þeirri trú að
samfélagið leggi hann í einelti.
„Ég fer aldrei á Litla-
Hraun. Það hljóta að
vera til aðrar leiðir."
„Þetta er ekki mannlegt."
Maðurinn var stunginn illa fýrir
rúmu ári síðan og sá sem það gerði
var dæmdur í þriggja ára fangelsi.
Staðfesti Hæstiréttur dóminn frá í
gær, munu þeir Júttast á Litla-
Hrauni. „Ég fer aldrei á Litla-Hraun.
Það hljóta að vera til aðrar leiðir,"
segir hann.
Styrkur og einbeittur brota-
vilji
í dómnum segir að brot manns-
ins beri vott um sterkan og einbeitt-
an brotavilja. Hann hafi fullkomlega
brugðist því trausti sem stúlkan bar
til hans. í dómnum segir einnig að
brot mannsins hafi verið bæði mörg
og svívirðileg og til þess fallin að hafa
í för með sér alvarlegar afleiðingar
fýrir stúlkuna.
Dómurinn segir einnig að maður-
inn eigi sér engar málsbætur vegna
þessara brota. Maðurinn var sýkn-
aður fyrir að hafa brotið kynferðis-
lega á bróður stúlkunar. Héraðs-
dómur segir að þrátt fyrir trúverðug-
an framburð og vitnisburð sálfræð-
ings séu ekki nægar sannanir fyrir
hendi til að sakfella hann.
Byrjaði þegar hún var átta ára
Stúlkan sagði frá því að maðurinn
hefði byrjað að leita á sig stuttu eftir
að hann flutti inn til fjölskyldu henn-
ar í júní 1989. Hann bjó þar til ársins
1994. í fyrstu gerði hún sér ekki grein
fyrir að eitthvað væri athugavert við
athæfi stjúpa síns en eftir því sem
árin liðu hafi athafhir hans gagnvart
henni orðið grófari. Stjúpi hennar ít-
rekaði sífellt við hana að hún ætti
frumkvæði af kynferðisofbeldinu og
því mundi ekkert stoða fyrir hana að
kæra málið.
Stjúpinn hefur haldið því ffam við
Litla-Hraun Maðurinn sem vardæmdurí
gær í þriggja og hálfs árs fangelsi segist
aldreiætla á Litla-Hraun.
lögreglu og fyrir dómi að stúlkan hafi
leitað á sig síðan hún var átta ára
gömul.
Sagði kynlífið betra með
stjúpdóttur sinni
Málið er heild-sinni afar óhugna-
legt. Stjúpinn skrifar til dæmis í bréfi
til móður stúlkunnar að kynlífið sem
hann stundaði með stjúpdóttur
sinni hafi verið betra en það sem
hann stundaði með móðurinni en
stúlkan var 11 ára gömul á þeim
tíma. Stjúpinn sýndi stúlkunni bréfið
og sagðist hún þá ætla að kæra hann.
Stjúpinn brást þá illa við og sagði að
engin mundi trúa henni. Hún hefði
líka alltaf átt upptökin að samræði
þeirra. Dómurinn segir þessa full-
yrðingar fráleitar. Dóttirin segir fyrir
dómi að eitt sinn hefði móðir sín
verið brjáluð út í sig, sagði hana vera
sífellt að leita kynferðislega á stjúpa
sinn.
andri@dv.is
kgb@dv.is
Hæstiréttur Dæmdur níðingur treystir á að Hæstiréttur bjargi sér.
r -i
Jón Egilsson tók feilspor fyrir rétti
Ruglingsleg kröfu-
gerð í Hæstarétti
Máli sem Jón Egilsson hæstarétt-
arlögmaður flutti nýlega í Hæstarétti
hefur verið vísað frá á þeim forsend-
um að hún sé ruglingsleg og í henni
gæti innbyrðis ósamræmis.
Málið sem Jón rak var skaðabóta-
mál á hendur manni sem var fund-
inn sekur um líkamsárás á skjól-
stæðing Jóns.
Hæstiréttur komst að þeirri nið-
urstöðu að framsetning kröfugerðar
Jóns hafi verið svo ruglingsleg og í
innbyrðis ósamræmi að hún sam-
ræmdist ekki fyrirmælum laga.
Taldi Hæstiréttur einnig að Jón
hafi ekki náð að skýra nægilega þau
atriði er lúta að lykilatriðum skaða-
bótakröfunnar. Hæstiréttur sagði
auk þess að vegna þessa annmarka á
málatilbúnaði Jóns yrði ekki komist
Kvenkyns mörgæsir fluttar frá Svíþjóð
Tekst ekki að snúa
hommamörgæsum
Nýjasta útspil stjórnenda dýra-
garðsins í Bermerhaven í Þýskalandi
til að snúa mörgæsum þar frá sam-
kynhneigð hefur runnið út í sand-
inn. Sex karlkyns mörgæsir hafa
búið saman í dýragarðinum og allar
hneigst til eigin kyns. Stjórnendur
dýragarðsins brugðu á það ráð að
flytja i dýragarðinn nokkrar mör-
gæsir frá Svíþjóð, gagngert í þeim
tilgangi að fá mörgæsirnar til að
sækja í kvenkynið og æxlast. En
mörgæsirnar fúlsuðu við kvenkyn-
inu og héldu sig við hverja aðra.
„Samband þeirra virðist of
sterkt," sagði Heike Kúck, forstöðu-
maður dýragarðsins. Humboldt-
mörgæsirnar eru flokkaðar sem
dýrategund í útrýmingarhættu. Ekki
síst vegna þess hefur það angrað
Mörgæsir Hommamörgæsirnar I Þýska-
landi fúlsuðu við sænskum kvenmörgæsum.
dýravini að karlkyns mörgæsirnar
skyldu bindast svo föstum böndum,
og jafnvel tekið sér grjót til að sitja á,
líkt og um egg væri að ræða.
Önnur tilraun til að snúa ^
hommamörgæsunum verður gerð
vorið 2006.
hjá að vísa málinu af sjálfsdáðum frá
héraðsdómi. Niðurstaðan þykir
vandræðaleg fyrir Jón Egilsson en
hann er annars þekktur fyrir sköru-
legan málflutning
í ofbeldismál-
um og
þykir góð-
ur verj-
andi.
andri@dv.is
Jón Egilsson
Niðurstaðan
þykir vandræða
leg fyrirJón.