Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 2. JÚNl2005
Fréttir DV
Kveikt í bifreið
Lögreglu á Reykjanesi
var í fyrradag tiliynnt um
reyk sem lagði frá Miðnes-
heiði. Þegar laganna verðir
mættu á staðinn blasti við
þeim bifreið sem augljós-
lega hafði verið kveikt í. Bif-
reiðin var á heiðinni milli
Garðs og Sandgerðis. Ekk-
ert meira er vitað um málið
að svo stöddu og er málið í
rannsókn. Þá höfðu
skemmdir verið unnar á
leigubíl sem lagt var fyrir
utan skemmtistað við
Haftiargötu. Bfllinn var
dældaður og rispaður.
Vöxtur á Vest-
fjörðum
Svonefndur vaxtar-
samningur Vestfjarða var
undirritaður á ísafirði í gær.
Samningnum er ædað að
styrkja hagvöxt á svæðinu
með nýstárlegum aðferð-
um sem byggjast á því að
styrkja hagvöxt svæðisins
innan svokallaðra klasa.
Verður svæðinu skipt upp í
sjávarútvegs- og matvæla-
klasa, mennta- og rann-
sóknarklasa og menningar-
og ferðaþjónustuklasa. Að-
ild að samningnum eiga
rfki, sveitarstjórnir, fyrir-
tæki og stofnanir. Við-
skiptaráherra og bæjar-
stjórar voru viðstaddir.
Er tími
KR liðinn?
Búi Bendtsen útvarpsmaöur
„Það eru einhverjar breytingar
í gangi núna. Þær taka smá
tima en ég bið og vona eftir
þvl aö ungu strákarnir fái að
spreyta sig. Ég gefþessu tvö,
þrjú ár. Þá verðum við meistar-
ar. Góðir hlutir gerast hægt. “
Hann segir / Hún segir
„Ég hef trú á þeim. Þeir eiga
eftir að rlsa upp úr lægðinni.
Ég bý IVesturbænum en veit
voðalega litið um fótbolta. Afi
var samt rosalegur fótbolta-
kappi og markmaður með ÍBV.
Ég held með Eyjamönnum.“
Sigríöur Lund útvarpskona.
Yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Frederikstad, Björn Moum, telur að Sigurður H. Björns-
son, starfsmaður Landspítala, hafi smitast af hermannaveiki heima á íslandi. Þrátt
fyrir það sitja íslensk heilbrigðisyfirvöld fast við sinn keip og halda því fram að
smitið hafi átt sé stað erlendis. Aðstoðarlandlæknir segir fullum fetum að engin
rannsókn muni fara fram. Norðmenn segja að ef starfsmaður
hjá þeim myndi smitast færi fram opinber rannsókn.
Yflrgnæfandi líkur
að hermannaveihin
hafl smtasla
Smitaðist á íslandi Norskurtæknir telur Sigurð
H. Björnsson hafa smitast af hermannaveiki
heima á íslandi en ekki erlendis eins og íslensk
Iheilbrigðisyfirvöld hafa haldið fram,
„Þetta er mikil fjölgun
á smitum milli ára,
óeðlilega mikil að
mínu mati
„Það þarf enga rannsókn," sagði Matthías HaUdórsson aðstoð-
arlandlæknir er blaðamaður DV bar undir hann álit norsks sér-
fræðings, Björns Moum, yfirlæknis á sjúkrahúsinu í Fredriksstad
í Noregi, sem hvetur yfirvöld á fslandi til að láta fara fram opin-
bera rannsókn á því hvar Sigurður H. Björnsson, starfsmaður
Landspítala - háskólasjúkrahúss, smitaðist af hermannaveiki.
Allar lflcur eru á því að smitið hafi átt sér stað hér á landi.
Björn Moum er einn þeirra lækna
hefur fariö fyrir þeim hópi sem ann-
ast umönnun þeirra sem veikst hafa
af hermannaveiki í Noregi en und-
anfarið hafa sex manns látist af völd-
um sjúkdómsins. Björn þekkir sjúk-
dóminn vel og er ósammála
Matthíasi Halldórssyni um að ekki
þurfi að fara fram opinber rannsókn:
„Það eru yfirgnæfandi lflcur á að
sjúklingurinn sem um ræðir, starfs-
maður Landspítala, hafi smitast af
hermannaveiki áður en hann fór til
Ítalíu," segir Björn en blaðamaður
skýrði út fyrir honum ferðalagið og
þá staðreynd að hann veikist á þriðja
degi ferðarinnar. Hermannaveiki
smitast yfirleitt á sjúkrahúsum.
„Tíminn sem líður frá því fólk
smitast þar til það verður alvarlega
veikt er yfirleitt þrír til tíu dagar. Hér
í Noregi eru hins vegar sterkar vís-
bendingar um að margir sjúkling-
anna hafi borið sjúkdóminn í allt að
tvær vikur áður en þeir veiktust,"
segir Björn.
Smitaðist á íslandi
Eins og DV hefur þegar greint frá
hélt Sigurður utan 12. maí og veiktist
alvarlega þann 15. maí. Til þess að
útiloka smit á íslandi hefði hann því
þurft að smitast strax á fyrsta degi
úti á Ítalíu. Það er fræðilega mögu-
legt en Bjöm telur það mjög ólfldegt:
„Þar sem 120 manns vom með
þessum manni í ferðinni hefði ég
talið að fleiri farþegar hefðu smitast.
Þar sem það gerðist ekki og með til-
liti til þess hvenær hann varð veikur
tel ég yfirgnæfandi líkur á að hann
hafi smitast á fslandi," segir Bjöm.
Forstjórinn veit ekkert
Helgi Már Arthúrsson, upplýs-
ingafulltrúi heilbrigðisráðuneytis-
ins, sagðist í samtali við DV ekkert
vita um málið og að Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra væri í útlöndum
og hefði því ekkert um það að segja.
Hann benti blaðamanni DV hins-
vegar á Magnús Pétursson, forstjóra
Landspítala - háskólasjúkrahúss.
„Ég er ekki rétti maðurinn til þess
að ræða þessi mál þar sem ég er hag-
fræðingur," sagði Magnús og benti á
læknana sína.
Ólafur Guðlaugsson, smitsjúk-
dómalæknir á Landspítalanum, vildi
Fleiri smitast í ár en í fyrra
Hermannaveiki er bráður
lungnasjúkdómur sem einkennist af
lungnabólgu og oft vefjabreytingum
í lifur, nýmm og miðtaugakerfi. Um
er að ræða bakteríu sem þrffst með-
al annars í vatnslögnum í nuddpott-
um og sturtuhausum og loftræsti-
kerfum bygginga og dreifist þaðan.
Veikin berst ekki manna á rnilli, en
getur þó orðið að farsótt eins og
dæmi hafa sýnt, það nýjasta í Noregi
þar sem sex hafa látist og hundruðir
smitast, sumir mjög illa haldnir.
Undanfarin ár hafa aðeins tvö til
þrjú tilvik af hermannaveiki komið
upp á ári á íslandi en fyrstu fimm
mánuði þessa árs hafa fimm tilvik
hermannaveiki komið upp sam-
kvæmt Landlæknisembættinu.
„Þetta er mikil fjölgun á smitum
milli ára, óeðlilega mikil að mínu
mati," segir Björn, yfirlæknirinn í
Noregi. „Ef ég myndi stjóma aðgerð-
um á íslandi myndi ég strax fara
fram á rannsókn og athuga mjög
gaumgæfilega hvort þetta fólk hefur
verið á sama stað á svipuðum tíma
því þetta gæti verið faraldur," segir
Björn.
Vill rannsókn Björn Moum, yfirlæknir i Nor-
egi (t.v.), telur íslensk heilbrigðisyfirvöld ekki
bregöast rétt við.
Uppruni smitsins
enn ókunnur
Björn Moum, yfirlæknir á
sjúkrahúsinu í Fredriksstad, hef-
ur sinnt mörgum sjúklingum
með hermannaveiki í tengslum
við faraldurinn í suðurhluta Nor-
egs. Hann segir aö enn séu marg-
ir illa haldnir af veikinni og að
óvíst sé með hvort þeir nái sér.
Þrátt fyrir rannsókn hefur heil-
brigðisyfirvöldum ekki enn tekist
að komast að því hvar uppruna
veikinnar er að finna og em
menn mjög uggandi yfir því.
ekkert tjá sig um hvort opinber
rannsókn færi ffam og benti á Har-
ald Briem, sóttvamalækni
landlæknisembættisins.
Haraldur var ekki til við-
tals í gær en DV reyndi .
ítrekað að ná í hann. f
Skildi meðal annars eftir \
skilaboð hjá Landlæknis- j
embættinu en fékk ekkert 'j
svar. Haraldur er ekki með ’
skráðan GSM-síma.
IJón Kristjánsson heilbrlgðis-
ráðherra í útlöndum og svarar
enguum hermannaveiki á Islandi.
johann@dv.is
sigtryggur@dv.is
Haraldur Briem sótt-
varnalæknir DVhringdif
ftrekað I Harald og skildi
eftir skilaboð á skrifstofu
hans. Hann svaraði þeim
ekki f gær og er ekki með
skráðan GSM-sfma.
Jónína Benediktsdóttir er gjaldþrota en hefur það samt gott.
Leigir 100 milljóna króna hús í Stigahlíðinni
Athcifhakonan Jónína Benedikts-
dóttir er gjaldþrota. Það kemur samt
ekki í veg fyrir að hún geti leigt 295
fm einbýlishús í Stigahlíðinni þar
sem hún býr ásamt þremur börnum
sínum. Eigandi hússins, sem metið
er á 100 milljónir, er húsasmíða-
meistarinn Skúli Magnússon. Hann
byggði húsið sjálfur en sagðist aldrei
hafa búið þar.
Skúli sagðist hafa ákveðið að
hjálpa Jónínu þegar hún átti í erfið-
leikum og því veitt henni húsaskjól.
Hann sagði aðspurður að markaðs-
verð hússins á leigumarkaði væri
um 300 þúsund krónur en að Jónína
fengi einhvern afslátt. „Hún er góð-
ur leigjandi sem stendur alltaf í skil-
um. Eg veit ekki hvernig hún fer að
því að borga leiguna en hún kemur
um hver mánaðarmót. Ætli Jóhann-
es sé ekki að hjálpa henni," sagði
Skúli en Jóhannes og Jónína komu
að skoða húsið með kaup í huga
þegar þau voru saman.
„Ég held að hún hafi fallið fyrir
húsinu enda er það ágætt í alla
staði. Það er stórt en samt á
einni hæð og garðurinn er
afskaplega skjólgóður. Ég
veit ekki betur en að
henni lfki afar
þama," sagði Skúli
sem býst þó við að
selja húsið á næstu
mánuðum.
„Ég veit ekki hvort
Jónína vill kaupa hús-
ið, það verður bara að
koma í ljós," sagði
Skúli.------------------
Jónína Ben Býr eins og
drottning í 100 milljóna króna
húsi f Stigahlfðinni
■
■