Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 2. JÚNl2005 Allar verslanir eru fullar af hinum ýmsu tegundum orku- og próteinstanga. Gera þær eitthvert gagn? Margar tegundir fæðubótar- og próteinstanga eru nú í almennri sölu í íslenskum verslunum. Fullyrt er að stangirnar geti komið í staðinn fyrir máltíðir í megrun og aðhaldi, eða séu góður millibiti fyrir þá sem vilja hugsa um heilsuna. En sitt sýnist hverjum. borðaðar snemma dags. Það er oft- ast svo mikill sykur ( þessu. Ég mæli aldrei með gerviefnum ( stað nátt- úrulegra efna, en menn eru að redda sér á þessum stöngum. Það er mikil orka ( þeim og svo eru þær auðvitað góðar á bragðið. Þetta er auðvitað bara sælgæti með réttum efnum og ég mæli auðvitað frekar með þessu en að fólk hámi í sig súkkulaði. Low-carb-stangir eru svo fyrir þá sem vilja létta sig og þar gildir sama reglan. Low Carb þýðir bara meira unnið og ónáttúrlegra og ég mæli frekar með því sem er náttúrulegt." því sem er náttúrulegra „Sumir halda að það sé bara nóg að borða þessar stangir og þá séu þeir bara ( góðum málum," segir Sigurpáll Hólmar Jóhannesson ein- kaþjálfari, „en það er nú samt ekki alveg málið, heldur þetta klassíska; að hreyfa sig meira og borða minna og rétt". Sigurpáll segist ekki vera sérfróður um málið og segir að stangirnar sé vissulega margar og misjafnar og flestar góðar fyrir marga parta. „Próteinstangir eru ágætar fyrir þá sem eru í stöðugum æfingum og þá helst ef þær eru „Peningasóunsegir iandlæknir Sigurður Guðmundsson skefur ekkert utan af þv( ( pistli sem hann skrifar á vef sinn:„Hægt er að fullyrða að engar vís- indalegar upplýsingar liggja fýrir um að efni af þessu tagi bæti heilsu hjá hraustu fólki. Fæðubótarefni geta verið til gagns hjá fólki með alvarlega sjúkdóma á borð við alnæmi og krabba- mein og ýmsa þarmasjúkdóma og hugsanlega hjá fólki sem leggur stund á mjög miklar og erfiðar keppnisíþróttir. Fullyrða má að gildi fæðubótarefna fyrir alla aðra er 01 ekkert. í venjulegri fæðu, hvort sem hún ■k öll þau fæðuefni sem við þurfum. A Fæðubótarefni eru yfirleitt mjög dýr. (flestum tilvikum er fólk að borga fýrir vörur sem í besta falli < ' Mnf gagnast þeim ekki og ( versta v 1 falli skiljast óbreyttar út um ýmis Wp Fæðubótarefni sem eru hér á ■r markaði eru ekki skaðleg. Hins vegar hefut borið á smyglvarningi með ýmiss konar örvandi efnum á borð við efedrín. Þau eru ólögleg hér og geta verið mjög skaðleg.Gildi þeirra til hreysti.árangurs og betra l(fs er jafnlítið og hinna. Mikil ástæða er til að ítreka enn og aftur að leið til bættrar heilsu er ekki vörðuð fæðubótarefnum, þau eru einfaldlega gagnslaus í því skyni. Nær væri að menn tækju höndum sam- an um að efla umræðu um nauðsyn almennrar hreyfingar og bætts, reglubundins mataræðis. Það virkar og fæðubótarefni hafa þar engu við að bæta." Geta raskað jafnvæginu „Neytendum er auðvitað frjálst i ,. að kaupa það sem þeir vilja," seg- A ir Jóhanna Torfadóttir, næringar- fræðingur hjá Umhverfisstofnun, M „en þess ber að geta að það er til I ' fullt af venjulegum matvælum \ sem eru allt eins góð og þessar wSaBL stangir og oftast mun ódýrari.Þetta v er kannski sniðugt fyrir fólk sem er að flýta sér og hefur ekki tlma til að snæða (rólegheitum eða sem millimáltíð svona af og til. En það getur verið varasamt að borða of mikið af þessu enda eru viðbætt vítamín og steinefni í flestum stöngunum.Sé of mikils magns neytt er hætta á að inn- taka vítamína og steinefna fari yfir efri mörk og ef það gerist yfir langt tímabil getur það beinlínis verið hættulegt. Of mikil neysla á A-v(tamíni eykir t.d. líkurnar á beinþynningu og lifrarskemmd- um. Þessar stangir geta því raskað jafnvægi milli næringarefna sem er til staðar í venjulegum mat." Jóhanna bendir á hina gullnu meðalreglu;að allt sé best I hófi.„Þótt appelsínur séu góð- ar og hollar er auðvitað ekki hollt að borða ekkert nema appels- (nur allan daginn." Þótt verslanir séu fullar af hinum ýmsu stöng- um segir Jóhanna magnið og úrvalið ekkert hafa að segja um gæðin og hollustuna.Og ekki heldur þótt einhver mæli með ein- hverri tegund, þv( viðkomandi hefur auðvitað fengið borgað fyr- ir það.„Neytendur verða að treysta á eigin dómgreind í þessu máli og fá réttar upplýsingar, til dæmis hjá okkur í Umhverfis- stofnun eða hjá Lýðheilsustöð." Harðfiskur betri „Þetta er mikið markaðssett og gefið í skin að þetta komi (staðinn fyrir máltíðir en það er náttúrlega augljóst að fólk lifir ekki á þessu einu og sér," segir Gauji litli.„Ég mæli ekkert sérstaklega með þessum 5 leytið nær sykurfall- '"'■'Sklll ið hámarki og þá er þetta mun betra en að hellast út í einhverja óholl- ustu. En ég hef enga trú á þessu sem megrun- arfæði. Það er mikil flóra af þessu og maður getur orðið ringlaður. Harðfiskurinn er samt besti skyndibitinn ef maður notar ekki kafsmjör á hann. Döðlur, gráftkjur og rúsínur eru f(nar l(ka til að vinna á sykurfallinu og eng- in aukaefni ( þeim. Ég held að þvl minna sem matvaran sé unnin því betri sé hún." Samviskan friðuð með „hollu“ sælgæti M.nscfn fALL r.nKm.mrlccnn mshiula^Ainn ___ Magasín fékk Guðmund Guðmundsson matvælafræðing^ hjá Iðntæknistofnun til að klkja á fimm stangir sem valdar voru af handahófi í verslunum Hagkaupa. Þetta eru niðurstöður Guðmundar. 1. Það er erfitt að setja þessar stangir undir einn og sama hatt þvf þær eru mjög ólfkar að samsetningu. Sumar inni- halda mikinn sykur en aðrar ekki. Fjórar þeirra innihalda við- bætt vltamln og þrjár þeirra steinefni að auki. 2. Margar af þessum stöngum eru markaðssettar með það ( huga að þær komi (stað máltíða. Það finnst mér fráleitt þv( þarna vantar ótal þætti sem einkenna heilsusamlegt matar- æði. Einnig hefur það gildi (sjálfu sér að setjast niður og borða f rólegheitum. J8QW$& S'°' MESO-TECH - COOKIES & CREAM 85 g / Verð: 299 kr / Hitaeiningar: 320 Fita: 8 g / Kolvetni: 38 g, þar af sykur 31 g / Prótein: 25 g / Inniheldur við- bætt vitamín og steinefni. 1 3. Þrjár stanganna innihalda mikinn sykur og minna helst á v(tam(nbætt sælgæti. Markhópurinn er sjálf- sagt margskiptur, en trúlega langar einhverja í sæt- indi en friða samviskuna með því að borða„hollt" sælgæti. Svo eru það þeir sem hafa ekki tfma fyrir matartilbúning eða venjulega máltíð og vilja e-ð fljótlegt sem (ofanálag bragðast eins og sæl- gæti. 4. Margar stanganna eru seldar sem megrunar- fæði eða sem nasl fyrir íþróttamenn. Ég hef ekki mikla trú á þv( að það skili árangri (baráttunni við kflóin að borða þessar stangir. Einhvern veg- inn virðast vörur sem innihalda fáar hitaeiningar ekki skila sér (minni líkamsþyngd neytendanna. Það er eins og neytendur bæti þeim við aðra ne- yslu eða jafnvel noti þær sem afsökun fyrir þv( að borða orkuríkan mat. PROMAX - ROCKY ROAD 75 g / Verð: 199 kr / Hitaeiningar: 290 / Fita: 4 g / Kolvetni: 42 g, þar af sykur 35 g / Prótein: 20 g / Inniheldur við- bætt vitamín. DOCTOR'S CARBRITE DIET - BANANA NUT iill 56,7 g / Verð:269 kr / Hitaeiningar: 190/ Fita: 4 g / Kolvetni: 22 g, þar af sykur 2 g / Protein: 21 g / Inniheldur hvorki viðbætt vítamín né steinefni. y ADVANT EDGE CARB CONTROL 60 g / Verð:279 kr / Hitaeiningar: 210 / Fita: 7 g / Kolvetni: 23 g, þar af sykur 2 g / Prótein: 21 g / Inniheldur við- bætt vítamín og steinefni. í JilintF*5* chocclteh S SLIM-FAST - CHOCOLATE CRUNCH 60 g / Verð: 329 kr / Hitaeiningar: 215 / Fita: 6,2 g / Kolvetni: 28,7 g, þar af sykur 15,8 g / Prótein: 14 g / Inniheld- ur viðbætt vítamín og steinefni. HARÐFISKUR OG SKYR TIL SAMANBURÐAR ’ Harðfiskur - ýsa / 100 g / Verð: 300 kr / Hitaeiningar: 330 / Fita: 2,5 g / Kolvetni: 0 g, þar af sykur 0 g / Prótein: 76 g.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.