Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 2. JÚNl2005 Fréttir DV Framrúðu- klukkur í stað stöðumæla Á bæjarstjórnar- fundi á Akureyri lagði bæjarstjórinn, Krist- ján Þór Júlíusson, fram tillögu um að breyta fyrirkomulagi Bifreiðasjóðs þannig að í stað stöðumæla og fjöl- mæla verði teknar upp svo- kallaðar framrúðuklukkur. en bæjarráð hafði vísað til- lögunni til afgreiðslu bæj- arstjórnar. Tillaga bæjar- stjórans var samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum og bæjarráði falið að vinna að málinu. Forval hjá VG í borginni Stjóm Vinstri hreyf- ingarinnar-Græns fram- boðs hefur ákveðið að halda forval til að velja sex efstu frambjóðendur flokksins f næstu borgar- stjórnarkosningum. A fundi hjá VG í Reykjavík sfðastliðinn sunnudag var ákveðið að fresta kosningu um forvalsregl- ur vegna kosninganna og hvatt til frekari um- ræðna. Tilfögur stjórnar gera ráð fyrir póstkosn- ingu meðal félagsmanna sem á að vera lokið 30. september. Fimm manna kjörstjóm mun svo skipa í önnur sæti listans. Ný brú byggð yfir Hornafjarð- arfljót Undir- búningur að nýrri brú yfir Homa- fjarðarfljót og færslu þjóðvegar eitt hefst í sumar. Eftir er að gera um- hverfismat og velja brúarstæði, en þrír staðir koma til greina. Frá þessu er greint á homafjordur.is. Haft er eftir Reyni Gunn- arssyni hjá Vegagerðinni að brýnasta verkefrúð í vega- málum á Suðausturlandinu séu hins vegar úrbætur á veginum um Hvalnes og Þvottárskriður en að það sé bæði kostnaðarsamt og erfitt verkefni, en skriðurn- ar em á vegaáætlun fyrir árið 2007. „ruu ei uiii uu yeiusi, auiiiiu sumar og sól og túristinn er farinn aö láta sjá sig,“segir leikarinn og athafnamaðurinn Elfar Logi Hannesson frá Isa- firði.„Svo er ég þessa dagana að leikstýra leikfélaginu á Suð- ureyrimÆ&mMMM Landsíminn upp Ronju Ræningjadóttur og verður frum-sýningin í byrjun júll en þá er haldin hin árlega Sælu- helgi á Suðureyri. Þá er ég einnig á fullu aö undirbúa ieikiistahátíöina Act alone sem ég hélt í fyrsta sinn I fyrra en þarna er á ferðinni hátíð einleiksins, þar sem tlu ein- ieikssýningar eru settar upp ásamt gestasýningu frá Króa- tíu." Ung stúlka á leið heim úr vinnu var fórnarlamb brjálaðs ökuníðings sem reyndi að þröngva henni út af veginum. Lögreglan segist ekkert geta gert til að finna ökuníð- inginn, sem er ljóshærður maður á þrítugsaldri. Eyrún Helga Guðmunds- dóttir Nýkomin með bílpróf og ísjokki eftir að ökuniðingur reyndi aö þvinga hana útaf. 'v V aV Vv-r v % i ognar lífi veglarenda Brjálaður ökuníðingur reyndi að hrekja Eyrúnu Helgu Guð- mundsdóttur út af Vesturlandsvegi á mánudag. Hann klessti inn í hliðina á henni og sikksakkaði svo í burtu. Lögreglan segist ekk- ert geta gert til að finna ökuníðinginn sem ógnaði lífi fjölda veg- farenda. „Hann flautaði á mig á fullu, keyrði síðan upp að hliðinni á mér og klessti á mig og reyndi að þröngva mér út af veginum," segir Eyrún Helga Guðmundsdóttir 17 ára Mosfellsbæjarsnót sem lenti í brjál- uðum ökuníðingi á leið heim úr vinnu á mánudag. Fjöldi vitna er að atburðinum sem gerðist milli fimm og sex á Vesturlandsvegi, þegar um- ferðin er sem mest. Engin vitni hafa þó enn gefið sig ffam. Stakk af „Bíllinn fór aðeins út af veginum og inn á bannsvæði. Á meðan ég var að koma mér aftur á veginn skaust bíllinn ffarn úr mér og bílnum fyrir framan og sikksakkaði svo í burtu, líklega svo ég sæi ekki númerið hans. Hann beygði svo upp í Grafar- holt," segir Eyrún inn ökuníðinginn sem hún lýsir sem ljóshærðum manni á þrítugsaldri. „Ég náði hluta af númerinu" Sem betur fer varð Eyrún ekki fyrir neinum líkamlegum áverkum en er skiljanlega í miklu sjokki yfir atvikinu. Náði hluta af númerinu „Ég náði hluta af númerinu, það var OY og síðan sýndist mér fyrsti tölustafurinn vera 6. Bíllinn var blá- grænn og ég er nokkuð viss um að þetta hafi verið Nissan Almera. Bíll- inn hans hlýtur að vera skemmdur eftir þetta.“ Eyrún segist jafnframt telja líklegt að ökuníðingurinn hafi klesst á fleiri bíla, „allavega finnst mér það líklegt miðað við aksturslag hans.“ Löggan gerir ekkert „Þegar ég kom heim hringdi ég í lögregluna í Mosfellsbæ og hún kom og skoðaði aðeins bílinn en þeir tóku engar myndir. Þeir sögðust fá h'tinn tíma til að vinna í svona mál- um og sögðu að ég og vinir mínir yrðum bara að hafa opin augun fyrir þessum bíl og láta þá vita ef við sæj- um hann." Eyrún, sem fékk bílprófið sitt 4. maí, skorar á vitni að gefa sig fram og aðstoða hana við að finna öku- níðinginn. johann@dv.i$ llla farinn Bíll Eyrúnar Helgu Guðmundsdóttur er illafarinneftirdrekstur við ökunlðing á Vesturlandsvegi. Lögfræðingastríð um Laxnessbók Hannes slæst um „Stefndi er sannfærður um að málinu verði vísað frá,“ sagði Heimir Örn Herbertsson, verjandi Hannesar Hólmsteins Gissurarson þegar höfundarréttarmálið vegna bókar hans, Halldór, var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavficur í gær- morgun. Auður Sveinsdóttir, ekkja Hall- dórs Laxness, stefnir Hannesi vegna 120 tilvika um brot á höf- undarrétti. „Það dylst engum skyn- sömum manni hvert sakarefnið er,“ sagði Halldór Helgi Backman sækjandi Laxnessættarinnar, nafni Nóbelsskáldsins, um frávísunartil- löguna og athugasemdir Heimis vegna kærunnar. Hannes Hólm- steinn sat svartklæddur og brúna- þungur við hlið lögmanns síns og hripaði niður á blað. Auður gerir fimm milljóna kröfu á Hannes, sem hann segir út í blá- inn. Sanna verði að hann hafi haft ávinning af brotinu. Nær væri að kæra útgefendurna, þeir hafi frekar grætt en hann. Lögmaður Lax- nessættarinnar tók ekki vel í þau rök: „Ég trúi því ekki að það eigi að setja útgefanda undir sama hatt og rithöfund í fyrsta skipti í íslenskri sögu. Þá verða allir hræddir við út- gáfu," sagði hann og vitnaði í síð- ustu setningu eftirmála bókarinn- ar: „Öll ábyrgð á því sem hér miður kann að fara er þó mín,“ stendur þar. Lögmaður Hannesar sagði höf- Halldór í héraði undarréttarbrotið ekkert í málinu. Hannes hafi vitað nákvæmlega hvar hann fékk efni í bókina og vís- að til heimilda þess efnis. Lögmennirnir luku fljótt máli sínu og lögðu málið þar með í hendur Allans V. Magnússonar héraðsdómara, sem sagðist úr- skurða um frávísun fyrir 14. júní, rétt áður en hann barði hamrinum sínum í borðið. Hannes Hólmsteinn. Segir Laxnessættina frekar eiga að kæra út- gefendurna en sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.