Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Síða 13
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ2005 13
Skammvinnt
hjónaband
Lækna þurfti til
að stía í sundur
króatískri brúði
og svaramanni
brúðguma
hennar eftir að
gengið hafði
verið inn á þau
í eldheitum
ástarleik. Brúð-
urin fékk krampa
þegar vinur brúðgumans
kom að þeim á klósettinu.
Eftir það var engin leið fyr-
ir þau að slíta sig í sundur
og þurftu þau að þola að
gestir í veislunni virtu þau
fyrir sér áður en læknar
komu á staðinn og létu
flytja þau á nærliggjandi
spítala. Veislan hélt þó
áfram þar sem brúðgum-
inn tilkynnti hana haldna í
tilefni skilnaðar síns í stað
brúðkaups.
Eftirsótt
fórnarlamb
Þýskur maður lenti í
því að vera rændur
þrisvar sinnum sama
kvöldið. Reiner Hamer
var að skemmta sér á
næturklúbbi í heimabæ
sínum Oberhausen þeg-
ar þrír menn réðust á
hann og rændu veski
hans og farsíma. Reiner
hringdi í lögregluna úr
síma vinar síns. Meðan
hann beið réðust svo
aðrir þrír á hann og
stálu úrinu og sígarett-
unum. Þegar Reiner var
að jafna sig á annarri
árásinni kom svo fimm
óþokkar til viðbótar og
rændu jakka Reiners og
skiptimynt hans.
Freudísk
Argentínskur
dómari var í vik-
unni rekinn eftir
að dómstóll hafði
komist að þeirri
niðurstöðu að
hann væri latur.
Dómarinn, Nestor
Narizano, var fundinn sek-
ur fyrir þessar sakir eftir að
upp komst að hann sótti
kúrs í sálfræði í nálægum
háskóla á vinnutíma.
Nestor segist því hafa verið
rekinn fyrir að eyða tveim-
ur tímum á dag í að lesa
Freud. Hann segist ein-
ungis hafa gert þetta til að
skilja betur hugarfar
glæpamanna. Nestor þykir
þetta ekki sanngjarnt og
segir þetta setja blett á
argentínskt réttarfar.
uppsögn
Gift í 80 ár
Bresk hjón komust í
heimsmetabók Guinness
í gær fyrir að vera í
lengsta skráða hjóna-
bandi sögunnar. Percy
og Florence Arrowsmith,
hann 105 ára og hún 100
ára, létu pússa sig saman
1. júní 1925, og hafa því
verið gift í áttatíu ár. Frú
Arrowsmith segir leynd-
armálið á bak við vel
heppnað hjónaband
þeirra vera að þau rífist
sjaldan og fari aldrei
ósátt að sofa. „Ef þið
lendið í rifrildi þá sættist
þið. Aldrei vera hrædd
við að biðjast afsökun-
ar,“ sagði frú Arrow-
smith.
Bílaframleiðandinn Ford er nú orðinn skotspónn hægri samtaka kristinna í Banda-
ríkjunum. Bandarísku f}ölskyldusamtökin hafa hvatt meðlimi sina til að kaupa
ekki vörur stórfyrirtækisins.
Fopd gagnrýntfyrir að
styðia samkynhneigða
Bandarísku fjölskyldusamtökin, AFA (American Family Associ-
ation), hægrisinnuð samtök kristinna, hrundu af stað herferð á
þriðjudaginn þar sem bandarískur almenningur er hvattur til að
sniðganga vörur frá bflaframleiðandanum Ford vegna stuðnings
við samkynhneigða.
Formaður AFA, Donald Wild-
mon, sagði í yfirlýsingu sem sam-
tökin sendu frá sér að Ford fyrir-
tækið, sem er annar stærsti bfla-
framleiðandi Bandaríkjanna, væri
leiðandi meðal bandarískra fyrir-
tækja sem vinna leynt og ljóst að
því að breyta ímynd fjölskyldunnar
og styðja hjónabönd samkyn-
hneigðra. Þá er Ford snuprað fyrir
að veita tugmilljóna króna styrld til
félagasamtaka samkynhneigðra og
stefnumála þeirra, auk þess að
senda yfirmenn og stjórnendur
innan fyrirtækisins á námskeið þar
sem samkynhneigð er sögð eðlileg.
Ótakmörkuð virðing
Varaforseti starfsmannasviðs
Ford, Joe Laymon, svaraði fyrir
Ford og sagði að fyrirtækið mæti
alla jafnt, burt séð frá kynþætti,
trú, kyni, kynhneigð, menningu
eða líkamlegum burðum, að fyrir-
tækið bæri virðingu fýrir viðskipta-
vinum sínum og starfsmönnum.
Ford var á meðal 56 bandarískra
fyrirtækja sem í fyrra fengu viður-
kenningu frá Human Rights
Campaign, baráttusamtökum
„Ford er að gera
nokkuð sem það hef-
ur neitaðað gera fyrir
aðra/'
samkynhneigðra, fyrir að bjóða
upp á tryggingar fynir maka sam-
kynhneigðra starfsmanna, styrkja
baráttusamtök samkynhneigðra
og markaðssetja vörur sínar fyrir
samkynhneigða.
Mismunun
AFA sendi áskorunina í tölvu-
pósti til meðlima sinna, sem telja
2,2 milljónir manna, og sagði tals-
maður átaksins, Randy Sharp, að
síðdegis á þriðjudag hefðu þá þeg-
ar 55 þúsund manns skráð sig sem
stuðningsmenn átaksins. Sharp
segir markaðssetningu Ford á bfl-
um sínum í fjölmiðlum sem ein-
beita sér að málefnum samkyn-
hneigðra angra sig. Til dæmis sú
staðreynd að Ford gefi rúmar 60
þúsund krónur af sölu hvers Jagú-
ars eða Land Rovers í sjóð ákveð-
inna samtaka samkynhneigðra.
Frjálslyndi Ákveðinn
hluti afsölu hvers Jagúars
rennur til baráttusam-
taka samkynhneigðra.
I DV-myndir Gettylmages
One Man +
One Woman
19:4-6
Jesús sagöi: Hjónaband =
einn maður + ein kona. Við
það styðst fjölskyldufólk I
Bandarlkjunum sem gagnrýnir
bílaframleiðandann Ford.
„Ford er að gera nokkuð sem það
hefur neitað að gera fyrir aðra,“
sagði Sharp.
Talsmaður Ford neitar þessu og
segir fyrirtækið hafa gefið um
fimm milljarða króna til ýmissa
mála í fyrra. Langstærstur hluti af
því hafi farið til menntunarmála.
Misheppnað gegn Disney
AFA batt nýverið enda á níu ára
langt átak gegn Disney-samsteyp-
unni þar sem meðlimir samtak-
anna og aðrir Bandaríkjamenn vom
hvattir til að sniðganga vömr og
þjónustu fyrirtækisins þar sem það
efndi til uppákoma sem tengdar
væru samkynhneigð í skemmti-
görðum sínum og byði mökum
samkynheigðra starfsmanna trygg-
ingar. Átakið virtist litlu skila þar
sem hagnaður jókst, sem og gesta-
flöldi £ skemmtigörðunum.
Heimild: FoxNews.com
ísraelska lögreglan í vandræðum
Sérkennilegt átak japanskra stjórnvalda
Enqin löq qeqn nýnasistum
ísraelska lögreglan veit ekki í
hvom fótinn hún á að stlga eftir að
flett var ofan af hópi nýnasista í land-
nemabyggðinni Ariel á Vesturbakk-
anum. Engin sérstök lög em til í land-
inu sem banna fólki að aðhyllast
kenningar nasista.
Eftir því sem ísraelska dagblaðið
Maariv greinir frá uppgötvaðist hóp-
urinn, um mttugu ungir innflytjendur
frá lýðveldum Sovétríkjanna sálugu,
eftir að lögreglan handtók einn
þeirra, tvítugan hermann, vegna
gruns um fíkniefhamisnotkun. Her-
maðurinn reyndist hafa hakakross
tattúeraðan á handlegginn og mikið
af niðurhlöðnu efrú um nasistahreyf-
inguna í tölvunni sinni. Frekari rann-
sókn tengdi hermanninn við hina
nýnasistana og em þeir grunaðir um
að halda nasistaathafriir og taka þátt í
spjaUrásum gegn gyðingum.
Talsmaður lögreglunnar segir
Gyðingahatur Nýnasistum hefur á undan-
förnum árum vaxið fiskur um hrygg og finn-
ast nú í landi þeirra sem þeir hata.
DV-Mynd Getty Images
máhð hið óhugnanlegasta, að íbúar í
ísrael ræði á jákvæðum nótum um
útrýmingu gyðinga. í landi sem
hundmð þúsunda gyðinga sem lifðu
ofsóknir nasista af fluttu til. Engin
viðbrögð hafa fengist frá ísraelskum
yfirvöldum.
Jakkafötin auka loft-
mengun
Japönsk yfirvöld hafa hleypt af
stokkunum herferð þar sem starfsfólk
er hvatt til þess að varpa hefðbundn-
um klæðnaði, svo sem jakkafötum og
bindum, fyrir róða og klæðast léttari
sumarfamaði. Herferðin er Jfluti af
átaki japanskra yfirvalda til að draga
úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda.
Lofflflti og raki er mikill í stórborg-
um Japans á sumrin. Til að vinna á
móti því em loftræstingar keyrðar á
fullu á vinnustöðum borgarinnar.
Fólk í viðskiptalífinu hefur hingað til
klæðst hefðbundnum famaði yfir
sumarmánuðina en nú er það hvatt
til að klæðast léttum sumarklæðum
svo hægt sé að draga úr notkun loft-
kælikerfa og minnka þannig útblástur
gróðurhúsalofttegunda.
Junichiro Koizumi Forsætisráðherra Jap-
ans setti fordæmi í léttum klæðnaði þegar
herferðin fór opinberlega afstað ígærdag.
Þetta hefur leitt til þess að fyrir
stuttu sást einn ráðherra japönsku
ríkisstjómarinnar í skærlitri havaí-
skyitu. Þá hefur þmgmönnum jap-
anska þmgsms verið sagt að við flest
tækifæri megi þeir sleppa jökkum og
skyrtum.