Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ2005
Sport DV
Ragnar
Sigurðsson (2)
Óli Stefán
Flóventsson
Atli Sveinn
Þórarinsson
Dennis Silm
Sinisa Keklc
Helgi Valur
Daníelsson
Slgþór
Júlfusson (2)
Guðmundur Benediktsson (2)
Björgólfur Takefúsa
- , \
mikið þegar ég kom heim, það er
miklu erfiðara að komast í
landsliðið þegar maður spilar
héma heima. Svo skil ég það alveg
að ég hafi ekki verið valinn fyrr, ég
var bara ekkert að spila nægilega
vel. Ég veit ekki hvort ég fæ
tækifæri til að spila núna eða ekki
en ég hef mikinn metnað fyrir því
að leika með landsliðinu og halda
mér inni í myndinni.“
Fylkismenn sýndu glimrandi spilamennsku 1 4.umferð
Landsbankadeildar karla og tóku Skagamenn í kennslustund
á þeirra heimavelli. Besti maður vallarins var Helgi Valur
Daníelsson sem lék á miðjunni í leiknum eftir að hafa byrjað
mótið sem bakvörður, daginn eftir leikinn var síðan tilkynnt
að Helgi hefði verið valinn í íslenska landsliðshópinn.
Huaurinn leitar út
Z
„Það hefur verið góður stígandi
í minni spilamennsku, ég vissi að
ég gæti gert betur eftir tvo fyrstu
leikina og svo fann ég mig vel eftir
það. Ég er líka í betra formi en oft
áður, mér finnst ég til að mynda í
miklu betra formi í ár heldur en í
fyrra. Ég var þyngri þá en hef
unnið vel í vetur." sagði Helgi
Valur þegar DV-Sport tilkynnti
honum í gær að hann hefði verið
valinn leikmaður umferðarinnar.
Við spurðum hann að því hvort
honum þætti betra að spila á
miðjunni eða sem bakvörður.
„Miðjan er mín upphaflega
staða, spilaði hana þegar ég var
yngri. Ég kann mjög vel við mig á
miðjunni þótt mér finnist kannski
ekkert endilega betra að spila þar.
Mér finnst bara alltaf gaman að
vera mikið með í spilinu og fá að
vera í boltanum, hvort sem það er
á miðjunni eða í bakverði. Ég kann
miðjuna betur en það er erfitt að
gera upp á milli."
Ættum að hafa fleiri stig
Helgi segist ekki hafa verið
sáttur við sína spilamennsku í
fyrra og var ákveðinn í að bæta úr
því.
„Við erum með nægilega
sterkan hóp og gott lið til að geta
nartað í þessi lið sem hafa skorið
sig úr í deildinni. Við verðum þó
að fara að vinna okkar leiki á
heimavelli, við erum fullir af
sjálfstrausti eftir síðasta leik. Við
höfum spilað betur núna heldur
en í býrjun síðasta tímabils og
ættum með réttu að vera með fleiri
stig, það var mjög svekkjandi að fá
ekkert út úr leiknum gegn KR en
síðan lékum við vel gegn Þrótti í
leiknum þar á eftir. En við höfum
alveg það sem þarf til að vera að
berjast á toppnum."
Vil halda mér í myndinni
Hjálmar Jónsson dró sig út úr
landsliðshópnum sem leikur gegn
Ungverjalandi og Möltu í undan-
keppni HM. Helgi Valur var
kallaður inn í hópinn í hans stað.
„Ég kem inn fyrir vinstri
bakvörð en það kemur sér samt vel
að ég hef spilað margar stöður,
þægilegt fyrir þjálfarana að vita að
ég get leyst ýmsar stöður á
vellinum." sagði Helgi en neitar
því að hann hafi beinlínis verið að
bíða eftir að fá sæti í landsliðinu.
„Það breyttist náttúrulega
ið 2000 var Helgi valinn
efnilegasti leikmaður efstu deildar
hér heima og eftir það fór hann út
til Peterborough á Englandi sem
lék í 2.deild. Helgi setur stefnuna á
að komast aftur út í atvinnu-
mennskuna.
„Það var ágætt þarna úti í
Englandi til að byrja með en svo
fékk ég leið á þessu og vildi komast
aftur heim. Fótboltinn hjá liðinu
var ekki að mínu skapi og ég naut
mín ekki mikið, mikill kraftabolti í
gangi og ég vildi prófa eitthvað
annað." sagði Helgi Valur
„Ég væri mikið til í að fá að
reyna fyrir mér á einhverjum
öðrum stað ef sá möguleiki býðst.
Síðustu ár hef ég þrisvar farið út til
Svíþjóðar til reynslu og mér líkaði
mjög vel þar, hjá AIK og
Norrköping. Það kom ekkert út úr
því en ég er opinn fyrir nánast öllu,
þar á meðal að fara aftur í enska
boltann. Samningur minn hjá
Fylki rennur út eftir þetta ár og ég
verð bara að skoða möguleika
mína eftir það. Annars er ég ekkert
að stressa mig á þessu, ég var að
byrja í Háskólanum í haust og mér
líður vel í Árbænum. Það er alveg á
hreinu að Fylkir er eina liðið fyrir
mig hér á íslandi."
elvar@dv.is
■V..J
Fylkismenn fara ótroðnar slóðir
Fylkismenn hafa átt 63 skot að marki í
(4 fyrstu fjórum umferðunum, 17 skotum
^ fleira en næsta lið (FH) og 40 skotum
fleira en mótherjar þeirra. Fylkismenn
hafa auk þessa fengið 37 af45 hornum sem hafa
komiö íleikjum þeirra til þessa ísumar.
f ~s Fylkismenn fara í sumar ótroðnar slóðir
ÞQ ý I sögu sinni í efstu deild. Fylkismenn hafa
^ þahnig aldrei unniö tvo fyrstu útileiki
sína og að sama skapi aldrei tapaö
tveimur fyrstu heimaleikjum sínum. Fylkisliðið er nú
með 0 stig og markatöluna 2-4 á heimavelli en 6
stig og markatöluna 5-1 á útivelli.
Valsmenn hafa verið sérstaklega sterkir í fyrri
f hálfleikjum leikja sinna í Lands-
bankadeildinni í sumar. Hllðar-
endapiltar hafa markatöluna 8-1
út úr fyrri hálfleikjum fyrstu fjög-
urra umferðanna en hafa á móti aöeins skorað
tvö mörk gegn einu I seinni hálfleik. Annað
þeirra er sigurmark Matthlasar Guðmundsson-
ar á Fylkisvellinum í þriðju umferð. Það erþvl Ijóst
að það borgar sig aö mæta snemma á leiki
Valsliðsins.
Valsmenn hafa ekki unnið fjóra fyrstu leiki sína á
Islandsmóti í27 ár eða síðan liðið vann
sextán fyrstu leiki sína sumarið 1978. Sið-
^ an þá höföu Valsmenn unnið þrjá fyrstu
leiki sína 1980 og 1991 en bæði árin töpuöu þeir
fjórða leiknum sínum, 0-1 á útivelli fyrirFram 1980
og svo 0-3 á heimavelli gegn KR 1991. Valsmenn
unnu Fram hinsvegar örugglega 3-0 í fjórða leikn-
um í ár.
s- Tryggva Guðmundssyni mistókst að
A skora í tfunda leiknum í röö þegar hann
skoraði ekki í 1 -0 sigri FH á KR-vellinum og
um leið er Ijóst að met Arnars Gunnlaugs-
sonar frá 1992-95 stendur en Arnar skoraði þáí 11
deildarleikjum í röð. Tryggvi hafði skoraö Isex síð-
ustu leikjum sínum með ÍBV1997 og þeim þremur
fyrstu með FH-liðinu I sumar.