Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Page 23
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ2005 23
DV
fyrir góöar fyrirmyndir nú á dög-
um. Alma er sannfærð um það. „Al-
gjörlega! Við vonum að við í Nylon
séum góðar fyrirmyndir og það er
ómetanlegt þegar foreldrar koma
upp að manni og segja að svo sé.
Annars á þetta við öll börn, bæði
stúlkur og drengi. Allir þarfnast í
uppvextinum góðra fyrirmynda af
báðum kynjum,“ segir Alma og
Steinunn er henni hjartanlega
sammála og bætir við: „Það má
heldur ekki gleyma að minna ungt
fólk á að setja sér skýr markmið og
vera vakandi yfir því að ekkert
verður úr engu. Fólk þarf að sækja
það sem það dreymir um og vinna
stöðugt í áttina að því sem það þrá-
ir. Enginn keinur og bankar uppá
hjá því og býður því að syngja í
stelpubandi.Við vorum bara mjög
heppnar að fá tækifæri til að syngja
saman. Byrjuðum ævintýrið frá
grunni út af áhuga okkur á söngn-
um. Raddirnar eru jú hljóðfærin
okkar og við leggjum okkur fram
við að hugsa vel um það sem við
störfum við, að syngja! Engin okkar
reykir til dæmis," segir Steinunn
ákveðin. „Það er líka þannig með
allt í lífinu, maður þarf að leggja sig
allan fram, æfa sig, hugsa vel um
heilsuna og gefast aldrei upp,“ seg-
ir hún. Tíminn líður hratt yfir holl-
um morgunverðinum og innileg-
um samræðum.
Rækta líkama og sál
Allar eru þær meðvitaðar um
heilsuna og reyna að borða hollan
mat á hverjum degi og Ellý bendir á
mikilvægi þess að rækta bæði lfk-
ama og sál. „Ég líki heilsunni stund-
um við blóm en það er hlutverk
okkar að búa í haginn fyrir okkur
sjálf með því að rækta líkamann af
kostgæfni og gera honum kleift að
þroskast, eflast og blómstra. Þar er
hreyfing mikilvæg og ekki má
gleyma innsta kjarnanum líka,"
segir hún og Alma tekur undir það.
„Þetta helst náttúruiega allt saman í
hendur bæði líkamleg vellíðan og
andlega hliðin. Ég æfi líkamsrækt
og nýt þess að hreyfa mig og huga
að mataræði svo ég geti gefið sem
mest af mér. Svo eru andleg málefni
mjög ofarlega á listanum." Stein-
unn segir að hún hafa haft lítinn
tíma til þess að fara í ræktina upp á
síðkastið en stefnir að því að bæta
það upp í sumar. „Þegar ég var
yngri æfði ég dans en núna er ég
ekki nógu skipulögð til að fara í
ræktina. Ég er alltaf á þeytingi og á
alltaf eftir að skipuleggja mig nógu
vel til að koma öÚu fyrir en ég stefni
að því að synda mikið í sumar í sól-
inni. Ég er alltaf nartandi og algjör
sælkeri," segir hún og brosir stríðn-
islega.
Gera nýtt myndband
„Þaö er eitt afþvl sem okkur þykir alveg
svakalega skemmtllegt að vinna aö.
Upptökurnar taka svona tvo til þrjá
daga fyrir vinnsluna og svo er líka svo
margt gott fólk sem kemuraö vinnsl-
unni með okkur viö myndbandið. Þá er
mikil gleöi, “ segja þær og tilhlökkunin
leynir sér ekki iaugum þeirra.
Helmingur Nylon-hopsins Steinunn Þora Camilla Sigurðardottir
og Alma Guðmundsdóttir ásamt Ellý Ármanns sjónvarpsþulu
mæltu sér mót á Salatbarnum yfir litríku og hollu grænmeti og
nýkreistum ávaxtasafa. Þær ræddu um lífsins gæði og ekki síst
gildi fjölskyldunnar sem er þeim mikilvægari en allt annað.
kjúklingasalat
frá Ingvari
UPPSKRIFTIN ER FYRIR 6 MANNS
• 2 kjúklingabringur (steiktar í ofni)
• 1 msk dijonsinnep
• 4 radísur (skornar (sneiðar)
• 1 tsk sojasósa
• 1 gulrót (rifin)
• 1 tsk púðursykur
• 1 msk ristuð sesamfræ
• 2 mskjógúrt (hreint)
• 1 laukur (smátt saxaður)
salt og pipar
► Kryddið kjúklingabringurnar með salti
og pipar og ofnsteikið við
170 -C íca.12-15 mín.
► Kælið.
► Skerið kjúklingabringurnar í þunnar
sneiðar og setjið (skál ásamt
radísunum, gulrótunum
og lauknum.
► Blandið saman í Iftilli skál:jógúrtinu,
sinnepinu, sojasósunni og
púðursykrinum.
► Hellið dressingunni yfir kjúklingabring-
urnar.
► Blandið varlega saman.
► Rífið jöklasalat niður og látið liggja í
köldu vatni í ca. 30 mín.
► Sigtið salatið og skiptið því jafnt á 6
diska.
► Skiptið kjúklingabringunum á diskana
og setjið yfir salatið .
► Stráið að lokum sesamfræjunum yfir.