Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttk
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 11
f
f
„Dottir mm var notuð sem
blóraböggull í þessu smygl-
máli vegna þess að lögreglan
hér vann ekki vinnuna sma
Domhúsið í London Kvið
dómendur grétu þegar þeir
sáu fögnuð Rebekku.
ju/fiuff ui uu i/i/n/u i yct/ ui
að fagna frelsi Rebekku.
Segir bróður sinn ekki hafa truflað lögreglu eftir að ekið var á frænda þeirra
Voru vitstola af skelfingu
„Það eru allir í fjölskyldunni að
glíma við taugaáfall því þetta var
hræðilegt," segir Rakel Guðmunds-
dóttir, frænka Fannars Levy Bene-
diktssonar sem varð fyrir bíl í miðbæ
Reykjavíkur aðfara-nótt laugardags.
Stuttu áður en bílinn ók á hann
hafði Fannar lent í átökum á Hverfis-
götunni. Eftir hnefahögg sem Fannari
var veitt datt hann út á götu þar sem
hann varð fyrir bíl. Gífurleg ringulreið
skapaðist á vettvangi og þurfti lög-
regla að skakka leikinn þar sem aðilar
á staðnum trufluðu störf sjúkraflum-
ingamanna.
Rakel er afar ósátt við yfirlýsingar
lögregiu um málið en í þeim kom
fram að fjölskylda Fannars hafi fengið
áfallahjálp eftir atvikið:
„Við fengum enga áfalfahjálp og
það var þess vegna sem allt var í upp-
námi þama. Bróðir minn Hrannar var
ekkert að trufla sjúkraflutningamenn.
Hann var bara vitstola af skelfingu því
hann vissi ekkert hvort frændi hans
væri lífs eða liðinn. Hann er ekkert
einhver bijálæðingur sem var að
trufla lögguna, það var meira að segja
hann sem hringdi í lögguna."
Rakel er heitt í hamsi þegar hún
riflar upp atburði síðusm helgar. Hún
segir frænda sinn ekki muna eftir at-
vikinu og tekur það fram að málið hafi
verið rannsakað sem slys. „Hann er
kominn af sjúkrahúsi. Læknamir
sögðu að þetta hafi ekki verið jafn al-
varlegt og það leit út fyrir í fyrstu," seg-
irhún.
Að sögn Rakelar var erfitt að horfa
upp á harmleik fjölskyldunnar á sjón-
varpsskjánum. Hún vill þó umfram
allt að fjölskyldan fái tíma til að jafna
sig: „Nú viljum við í fjölskyldunni fá
frið." atH@dv.is
Rakel Guðmundsdóttir Var viðstödd hörmulegt slys á Hverfisgötu.
Eðlileg
hreyfigeta
Siv Friðleifsdóttir alþingismaður
er óðum að ná fullum fyrri styrk eft-
ir aðgerð sem hún gekkst undir á
hné. „Nú em sex mánuðir liðnir frá
krossbandsaðgerðinni á vinstra
hnénu. Hreyfigetan er orðin eðlileg,
en enn vantar upp á styrkinn í fæt-
inum," skrifar Siv á samnefnda vef-
síðu sína. Siv er enn í sjúkraþjálfun
í Orkuhúsinu. Annars er það af Siv
að frétta að hún komst ekki í fyrra-