Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2005, Blaðsíða 24
;i;o
24 MIÐVIKUDAGUR 7 9. OKTÓBER 2005
Sálin dv
Björn Harðarson og Eygló Guðmundsdóttir eru
sérfræðingar DV i málefnum sálarinnar. Þú getur
sentþeim bréfá kaerisali@dv.is
Óstjórnleg reiði er hættuleg heilsu
þinni. Adrenalínið rýkur upp og
blóðþrýstingurinn fer yfir eðlileg
mörk. Enn verra er að þú endar
með að særa einhvern og munt lík-
lega sjá eftir því síðar. Afleiðingar
reiðinnar sjást daglega í fréttunum.
Ekki láta reiðina stjórna lífi þínu.
Náöu
stjóm á
skapinu
Lterðu úð slaka á
Róaöu þig niður og dragöu djúpt inn and-
ann. Imyndaðu þér aðþú blásir reiðinni út
úr þér um leið ogþú kemur þér fyrir á
ímynduðum„bamingjustað“ I huganum.
Fáðu útrdt fyrlrrelðlna
Þú lendir i rifrildi við félaga þinn. Hann
sveik traustþitt. Þú ert brjálaður við hann
og vilt hefna þln. I guðanna bænum forö-
aðu þér áður en þú gerir eitthvað sem þú
munt sjá eftir það sem eftir erævi þinnar. I
rauninni viltu ekki meiða neinn, reiöin
hefur einungis náð stjórn á heila þínum.
Fáðu þér boxgræjur og kýldu reiðina I
burtu. Ekki Imynda þér að þú sért að kýla
vininn. Finndu þér stað þar sem enginn
heyrir I þér og öskraðu.
Fyrlrgefðu og gleymdu
Ekkert er betra fyrir sálina en að fyrirgefa
* einhverjum sem særði þig I fortíðinni. Það
er mjög óheilbrigt að burðast með hatrið í
gegnum ævina. Ekki láta þann sem sveik
þig eyðiieggja lífþitt.
Þjálfaðu llkamann
Erfið en skemmtiieg æfing getur gert
kraftaverk fyrir skapið i þér. Finndu þér
einhverja hreyfingu sem þú hefurgaman
af.
Hlttuvlnlþtna
Hafðu alltafeinhvern til að ræða við þeg-
ar þér llður illa. Þér mun líða betur eftir að
hafa létt á hjarta þlnu við einhvern sem
þú treystir.
V
Hlustaðu d róandl tónllst
Leggstu niður og hiustaðu á rólega og
þægilega tónlistl tæpan hálftlma.
Dragðu djúpt inn andann. Passaðu þig að
velja rétta tónlist þvlsum lögin geta reitt
þig tilreiði.
Blddu bmnlr
Biddu um hjálp. Biddu um leiðsögn.
*■ Reynduaðfínnaþinninnrifrið.
Haltu þir frd relðu fólkl
Margir halda þvl fram aðþú getir smitast
afreiðu fólki. Þú smitast ailavega afham-
ingjusömu fólki. Haltu þig hjá þvl.
*ættu sjálfstraustið
Samvlskan heimtar
Margir eyða miklum tíma í að tala
um það sem þeir „ættu" að vera
að gera. „Ég ætti að fara í
göngutúr. Ég ætti að hætta að
reykja." Þessar staðhæfingar
minnka sjálfstraust þitt. Reyndu
að taka sjálfum þér eins og þú
ert.
Engan samanburð
í staðinn fyrir að bera þig stans-
laust við aðra skaltu reyna að
taka eftir muninum. Og mundu
að þú ert einstakur.
L&it&QU í jákvmúnl
Finndu þér jákvæða og hressa
vini og kunningja. Þú verður jafn-
vel að losa þig við nokkra fýlu-
Sæll
Ég hef verið
að velta fyrir
mér hvemig ég
get unnið mig
úr erfiðum tilfinningum. Einu
sinni skrifaði ég dagbók og
tel að ég hafi getað þrosk-
að mig smávegis þar.
Getur það hjálpað
manni að skrifa
dagbók eða bara
skrifa? Mér finnst
nefnilega svo gott
að skrifa.
Takk
Sæll vertu.
Það hefur lengi verið vitað, að það
að skrifa getur verið hjálplegt til að
skilja tilfinningar sínar og komast í
gegnum áföll og erfiðar aðstæður í
lífinu. Það eru nokkrir hlutir sem
eru mikilvægir varðandi skrif og
get ég rakið þá lítillega hér. Það
sem fyrst ber að nefna eru áföll og
erfiðir atburðir. Skrif hafa reynst
dýrmætt hjálpartæki í vinnu með
áföll og sorgir þar sem fólk í raun
„skrifar sig“ í gegnum áföllin eða
sorgina. Með skrifunum getur fólk
reynt að púsla saman atburðum
betur. Oft er um atburði að ræða
sem fólk hefur ekkert eða lítið tal-
að um og forðast að rifja upp.
Skrifin hjálpa fólki að átta sig betur
á aðstæðunum og atburðarásinni.
Það er talið mjög mikilvægt í þessu
samhengi að skrifa um tilfinningar
sínar því oft nær fólk þannig að
losa sig við erfiðar tilfinningar og
sætta sig við erfiða atburði. Skrifin
gera fólki síðan jafnvel kleift að tjá
þessar tilfinningar betur með orð-
um síðar. í áföllum og sorg þar
sem fólk hefur misst einhvern
kærkominn, skrifar fólk oft beint
til þess sem látinn er og nær auk
þess oft að kveðja með skrifunum.
Meiri einbeitni
Skrif geta auk þessa reynst fólki
þroskandi án þess að það sé beint
að vinna með ákveðna atburði eða
tilfinningar. Rannsóknir benda til
þess að þeir sem skrifa reglulega
(jafnvel um alveg hlutlausa hluti)
þroski með sér betri eiginleika til
að tjá sig um hluti í öðrum, raun-
verulegum samskiptum. Möguleg
IDagbókarskrif
Hafa hjálpaö mörg
um til að skilja til-
finningar slnar.
Skrifad ígegnum sorgina
ástæða þess getur verið að í skrif-
um lærum við að skoða hluti í ólíku
samhengi og auk þess gera skrifin
hug okkar frjórri.
Reynsla sálfræðinga í starfi er að
skrif geta hjálpað við mismuftandi
vandamál í mörgum mismunandi
meðferðarformum. Hér áður
minntist ég á gagnsemi þess í sorg-
armeðferð. Auk þess hefur reynst
vel að skrifa í tengslum við vinnu
með aðrar tilfinningar eins og t.d
reiði. Skrif reynast auk þess vel við
að hjálpa fólki að átta sig á aðstæð-
um sínum, þar sem það stendur á
ákveðnum tímamótum. Þegar fólk
fer frá því að hugsa um hlutina yfir
í að skrifa um þá, virðist fólk oft
einbeita sér betur að því sem það er
að velta fyrir sér og hugmyndir þess
verða meðvitaðri og meira ljóslif-
andi. Enn eitt dæmið sem hægt er
að nefna til að átta sig á hvernig
skrif geta hjálpað fólki í gegnum
erfiðleika er dagbókarskráning í
hugrænni atferlismeðferð. Hugræn
atferlismeðferð er ein árangursrík-
asta meðferðin sem sálfræðingar
beita í dag. Einn mikilvægasti hluti
meðferðarinnar er heimaverkefni
sem að miklu leyti byggist á því að
skrá niður hjá sér reglulega að-
stæður sem koma upp, tilfinning-
arnar sem unnið er með og hugs-
anirnar sem kvikna og viðhalda erf-
iðu tilfinningunum. Með því að
vinna með þessar hugsanir í
ákveðnu dagbókarformi er hægt að
yfirvinna flest þau tilfinninga-
vandamál sem fólk er að glíma við.
Reynslan er að stundum getur ver-
ið erfitt að virkja þessa skráningar-
vinnu hjá fólki, en á sama tíma
virðist reynslan sýna að þeir sem
vanir eru að skrifa á einhvern hátt
eins og að halda dagbók eiga oft
auðveldara með að tileinka sér
þennan hluta meðferðarinnar.
Gangi þér vel!
Bjöm Haröarson
sálíræbingur.
9 reglup w& samMíð með þunglymllssJÉIiial
1. Taktu þér tíma og lærðu um
þunglyndi. Það eru ótrúlega
margir sem misskilja
þunglyndi og enn aðrir
sem afneita tilvist sjúk-
dómsins.
2. Þeir sem þjást af þung-
lyndi geta ekíd rifið sig upp
úr því. Mundu að um sjúkdóm
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
er að ræða. Þeir sem eru með
krabbamein geta ekki ákveð-
ið að rífa sig upp úr því.
Ekki sýna pirring eða reiði
en mundu samt eftir eigin
tilfinningum. Þú getur
prófað að segja „ég veit að
þú getur ekki að þessu gert
W en ég er orðinn svekktur."
Reyndu iflca að benda á björtu
hliðarnar.
3. Spurðu um líðanina og hvemig
bamæsku félagi þinn átti. Reyndu
að fá hann til að ræða um tilfinning-
ar sínar. Hlustaðu án þess að
dæma.
4. Viðurkenndu van-
kunnáttu þína. Margir
halda að þeir geti lækn-
að ástvini sína einfald-
lega með ástinni. Ekki
fyllast sektarkennd yfir að
geta ekki hjálpað. Þetta er
ekki þér að kenna og þú getur ekki
læknað makann þinn sjálfur.
Leitaðu aðstoðar geðlæknis,
spyrðu hvað þú getur gert.
5. Ekki ætía að bjarga. Þú
berð ekki ábyrgð á sjúk-
dómnum. Láttu fagaðila
um að lækna sjúklinginn.
6. Ekki búa til afeakanir fýrir
þunglyndissjúkling. Ekki ganga í lið
með afneituninni. Ekki ljúga fyrir
þunglyndissjúkling. Með þessu ertu
aðeins að fresta batanum.
7. Hvettu sjúklinginn að leita
sérhjálpar. Margir sem þjást
af þunglyndi afneita sjúk-
dómnum eða reyna að
lækna sig sjálfa með
áfengi, vinnu eða peninga-
eyðslu. Allt em þetta gervi-
leiðir sem veita stutta fróun.
8. Hugsaðu um sjálfan þig. Gerðu
þér grein fyrir því ef þú leitar í
þunglyndið. Hefurðu verið í
sambúð með mörgum
þunglyndissjúklingum?
Af hverju? Líður þér betur
í vondu skapi ef þú ert
ekki sá versti á heimilinu?
Pantaðu þér viðtal hjá sál-
fræðingi.
9. Segðu maka þínum hvers þú
þarfnast. Hann er veikur en þú stól-
ar samt á hann. Reynið að ganga
milliveginn. Ef þú ert ekki heiðar-
legur mun honum
líða enn verr.
Ekki lofa upp
í ermina á
þér og
stattu við
þaðsemþú
hefur lofað.
I