Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.03.1939, Blaðsíða 9

Símablaðið - 01.03.1939, Blaðsíða 9
bí&dld Útgefandi: Félag íslenskra símamanna. Reykjavík 1939 2.-3. tbl. Sl nrlí«mn 11 iui regiu i*mi i* og1 stiiii]Mlkliikkmuálið. Forsagct málsins. Félag isl. símamanna er eitt elsta stéttarfélag hér á landi. A næsta vori á það 25 ára afmæli. Það hefir haft víðtækari félagsstarfsemi en nokknrt annað félag opinberra starfsmanna, og hefir öll þessi ár átt þvi láni að fagna, undantekningarlitið, að geta unnið að hagsmunamálum stéttarinn- ar, i samráði og samvinnu við stjórn símans. Launakjör stéttarinnar hafa lengst af verið mjög bágborin, og eru það enn i ýmsum deildum stofnunar- innar. Þó hefir hún oftar fengið launa- bætur en nokkur önnur stétt opinberra starfsmanna, og hefir hún þar notið þess, að hún hefir jafnan átt vinsæld- um að fagna meðal allra ráðandi flokka og einstaklinga í landinu, þeg- ar frá eru skyldar nokkrar hjáróma raddir, sem jafnan hafa notað þau tækifæri, sem gefist hafa, til að senda henni kveðjur í götustrákatón. Starfs- kjörin voru einnig lengi vel mjög bág- borin. Húsakynnin víða langt fyrir neðan þáð, er læknar töldu forsvaran- legt (og eru þess dæmi enn). Vetrar- fri frá þreytandi innistarfi í þröngum híbýlum, þar sem fólki var þjappað saman eins og síld í tunnu, þektust ekki. Unnið var jafnt lielgidaga sem virka daga — án sérstakrar þóknunar —, maturinn var snæddur á hlaupum og' félagsréttindi voru engin o. s. frv. Með fullum skilningi á því, hverju liér var ábótavant, var smám saman hætt hér úr, eftir því, sem ástæður leyfðu og þróun stofnunarinnar. Og það var í livert skifti árangur af góðu sam- starfi félagsins og símastjórnarinnar. Og svo var komið, upp úr árinu 1930, að í raun og veru voru starfskjör síma- stéttarinnar komin i fastar skorður, líkt og erlendis, þótt starfsmannaregl- ur væru ekki skráðar í heild. En nú- verandi forstjóri stofnunarinnar tók sér fyrir hendur, nokkru eftir að hann tók við emhætti, að færa þær í sama

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.