Símablaðið - 01.03.1939, Qupperneq 11
S í M A B L A Ð 1 Ð
11
liafði til að leysa það verk af liendi.
Það var kæruleysi i garð þeirra, að
demba þessu frumvarpsuppkasti inn í
þingið, án þess að leitað væri umsagn-
ar liinna ýmsu forstjóra ríkisstofnana,
eða stéttafélaganna, og' sýnir, að sá
hugsunarháttur er ríkjandi á æðstu
stöðum, að hæg't sé að bjóða opinber-
um starfsmönnum alt.
Auk þess varð það ljóst, að höf.
þessa frumvarps liafði farið mjög dult
með það, og varð það ekki skilið öðru-
vísi en að hann væri sér þess með-
vitandi, að með því var hann að vega
að þeirri stétt, sem hann hafði nána
umgengni við.
Það liefði mátt ætla, að hann hefði
einhverntíma haft tækifæri til þess,
að sýna póst- og símamálastjóra frum-
varpið og ræða það itarlega við hann,
hefði honum verið umhugað að vanda
það verk. Það hefði lika mátt ætla,
að hann hefði vikið að þvi einu orði
við þá menn, er sömdu starfsmanna-
reglur símans og mesta reynslu höfðu
um framkvæmd þeirra, enda hefir
hann í þær reglur sótt sitt litla vit á
þessum málum, þó án þeirrar þekk-
ingar, sem reynslan ein fær veitt. Og
loks hefði mátt ætla, að hann hefði
getað „orðið við“ þeirri heiðni fyrv.
form. F. í. S., að lána honum frum-
varpsuppkastið til lesturs. En það gai
liann ekki.
Þegar stjórn félagsins siðan tókst að
kynna sér efni frumvarpsins fyrir vel-
vild þingmanna, þá varð henni ljóst,
að þessi vinnuaðferð höf. var eðlileg.
Honum hlaut að vera það ljóst, að
hann var að leggja drög að því, að
brjóta fjöregg félagssamtaka siina-
mannastéttarinnar og leggja í rústir
árangurinn af 25 ára samstarfi þessa
stéttarfélags og símastjórnarinnar. —
Honum hlaut að skiljast það, að um-
ræður um þetta fóstur lians, á byrj-
andastigi, hlutu að leiða til þess, að
það sæi aldrei Ijós Alþingis skína yf-
ir sér, en yrði með góðlátlegu brosi
stungið niður í pappírskörfu stjórnar-
ráðsins.
Það mun íeitun á því fyrirhrigði
meðal lýðræðisþjóða, að hið opinhera
heimti aftur þau réttindi, er það hef-
ir veitt starfsmönnum sínum, eða færi
starfskjör þeirra til hins verra, nenia
alveg' sérstök þjóðarnauðsyn krefji. En
einsdæmi mun liann vera, sá hugsun-
arháttur, meðal manna í láglauna-
stétt, er herjast fyrir lífi sínu, sem
liggur á bak við þann verknað, að eiga
upptök að svo víðtækum skerðingum
á þessu sviði, sem hér eru í upp-
siglingu á hendur annari láglaunastétl.
Eggert Kristjánsson & Co.
REYKJAVÍK
Umboðs- og heildverslun
Sími 1400 (3 línur). Simnefni: Eggert