Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.03.1939, Qupperneq 13

Símablaðið - 01.03.1939, Qupperneq 13
S í M /1 B L A fí I fí 13 sem bak við frumvarpsuppkastið ligg- ur. En sem betur fer, mun mega treysta því, að flestir þeir, sem um það eiga að fjalla, sé réttsýnni í þess- um málum, en þessi fulltrúi láglauna- stéttanna. Það hefði mátt vera undar- lega skapi farið fólk, sem ekki hefði „þykknað í“, er vegið var svo mjög að kjörum þess og félagssamtök- um, og það því fremur, sem það aldrei liafði gert ráð fyrir um liöfund frumvarpsins, að ættjörðin frelsaðist þar. En fremur skoðað liann sein eitt af þessum nýju „gen- íum“, sem talsvert ber orðið á í opin- beru lífi — i „nefndum“ og „ráðum“ — og eru eins konar vörtur á ásjón- um hinna pólitísku flokka. Mótmælin. Að því hefir oft verið spurt, hvers vegna símafólkið hafi valið þá leið til mótmæla, að hætta að nota stimpil- klukkurnar. Til þess liggja þessi drög: Félagið taldi rétt að mótmæla þeim réttarskerðingum, sem frumvarpsupp- kastið fól í sér. En jafnframt taldi það viðeigandi, að gera það á þann hátt, að í þeim fælist einnig hend- ing um afstöðu símafólksins til höf- undar frumvarpsins, og þess fyrir- hrigðis, sem hefur fleytt honum til ó- venjulegra mannvirðinga. En hin ersú, að það telur það móðgun við sig, að þessi maður skulivera setturtil að liafa eftirlit með stundvísi þess, veikindum og annari fjarveru. Ekki einungis fyr- ir það, hvernig hann hefir unnið að smíði frumvarpsins. Hvernig hann lief- ir á mjög áberandi hátt stefnt vitandi vits að því, að skerða réttindi þess, gera starfskjör þess verri, rífa niður áratuga viðkvæmt félagsstarf, samtím- is því að liann umgengst þetta fólk með bros á vör, þiggur laun af þeirri stofn- un, sem það starfar við, og sem gef- ið liefir því þessi réttindi og starfs- kjör. En ekki síst fyrir það, að slíkan bitling er ekki hægt að fá fyrir aug- liti svo margra manna, að það valdi ekki hneyksli. Og símafólkið hneyksl- aðist þá líka á því, eins og góðir borg- arar, þegar þessi formaður rekstrar- ráðs símans, sem þangað var settur til að gæta sparnaðar í stofnuninni, og auka á siðgæði starfsmanna, — fékk launað starf við þetta eftirlit, sem áð- ur var hægt að inna af hendi á skrif- stofum símans, og er hægt enn. Með hliðsjón af þessu, var ákveðið að hætta að nota stimpilklukkur sím- ans i 20 daga. Eitt blaðið hefur nefnt þessi mót- mæli uppreisn. Það er tæplega svara- By §*§iiig*a vörur! Linoleumdúkar, Gaseldavélar o. s. frv. Allar vörur til húsgagnabólstrunar. Margar tegundir áklæða. O. V. JÓHANNSSON & CO. Umboð' & Heildverslun. Reykjavík. Sími: 2363, Símnefni: „Heimir“. —

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.