Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.03.1939, Qupperneq 17

Símablaðið - 01.03.1939, Qupperneq 17
S í M A I! L A fí I fí 17 ar héfir gert það, sem unt er á þessu stigi málsins. Jafnframt lýsir fundurinn ánægju sinni yfir því, hve félagarnir hafa staðið einhuga í þessum mótmælum, og sýnt hversu sterk samtök félagsins eru, þegar á reynir.“ Bréf F.Í.S. til Póst- og símamála- stjóra 8. maí 1939: Hérmeð leyfum við okkur að tilkynna yð- ur, herra póst- og símamálastjóri, að hér í Reykjavík hefir farið fram leynileg atkvæða- greiðsla meðal meðlima F.Í.S., um aðgerðir í mótmælaskyni við uppkast það að frum- varpi til laga um starfsmenn opinberra stofnana, — sem vitað er að ríkisstjórnin hefir sent Alþingi, og undirbúningi þess máls. Það er vitað, að frumvarp þetta, ef að lög- um yrði, myndi nema úr gikli starfsmanna- reglur þær, er þér og þáverandi atvinnu- málaráðherra færðu símastéttinni að gjöf á 20 ára afmæli F.Í.S., og sem er ávöxtur af 25 ára félagsstarfsemi símastéttarinnar, og skilningi símastjórnarinnar á því, hversu saman fer hagur stéttarinnar og stofnunar- innar. Ennfremur eru í lagafrumvarpi þessu bein- línis skerð tvö hinna þýðingarmestu rétt- inda, sem starfsmannareglurnar veita, auk ])ess, sem önnur myndu algjörlega niður falla. Þegar svo þýðingarmikið spor er stigið, þá vill félagið mótmæla þeirri aðferð, sem við hefir verið höfð, að senda uppkast þetta i frumvarpsformi tii Alþingis, án þess að for- stjórum opinberra stofnana eða stéttarfélög- um opinberra starfsmanna gæfist kostur á að fá það til umsagnar, einkum þeim aðil- um, sem nú hafa starfsmannareglur til að fara eftir. Þá vill félagið með þeirri samþykt, sem það hefir gert, lýsa megnri vanþóknun á því, að frumvarp þetta skuli hafa verið samið af manni, sem fyrir aðstöðu sina hefir hlotið launað eftirlitsstarf við símann á mjög ó- viðeigandi hátt, en sem starfsfólk símans hefir þó til ])essa látið afskiftalaust. Og þar sem frumvarpi þessu virðist einkum beint að skerðingu þeirra réttinda, sem starfs- mannareglur Landssimans veita símamanna- stéttinni, getur félagsbundið starfsfólk þess- arar stofnunar ekki felt sig við það, að eft- irlit með stundvísi þess, veikindum og fjar- veru, heyri undir höfund frumvarpsins. Af þessum ástæðum hefir verið samþykt, að félagar hér í Reykjavík hætti að nota stimpilklukkur stofnunarinnar, frá og með fimtudeginum 11. maí, þ. á., þar til ástæða þykir til að nema þá samþykt úr gildi. Fln jafnframt tilkynnist yður það, herra póst- og símamálastjóri, að ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að eftirlit fari fram um stund- visi fólksins, af trúnaðarmönnum félagsins, sem eru í eftirlitsstöðum hjá stofnuninni. Afrit af samþykt félagsins fylgir hér með. En hana samþyktu við leynilega atkvæða- greiðslu hér í Reykjavík 106 féiagar af 107, sem á kjörskrá eru, eða allir sem greiddu atkvæði. I stjórn F.Í.S. Th. Lilliendahl, Magnús Magnússon, Ingólfur Einarsson, Kristján Snorrason, Maríus Helgason. RÍKISPRENTSMIÐJAN GUTENBERG Rvk.. Þingholtsstrseti 6, Pósthólf 164. Simar (3 línur) 2583, 3071, 3471. PRENTUN. BÓKBAND. PAPPÍR. Greið viðskifti. Vönduð vinna.

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.