Símablaðið - 01.03.1939, Side 18
18
S / M /1 B L A fí I fí
Sl;i4>r<k.\ ii«lii‘ii;ii‘ §tang:;is(.
í „Tímanum" 23. maí s.l. stendur
þetla m. a.:
„í öllum mannmörgum stórfyrirtækjum
um víða veröld, er fastur siður að hafa
nokkurskonar „tímavél“, sem segir glögt ti!
um það, hvenær hver stafsmaður kemur eða
fer. Með vísindalegri nákvæmni kemur fram
í þessu áhaldi örugg mynd af stundvísi oa
reglusemi starfsmannanna.
Þeir sem koma of seint og fara of snemma,
]jeir sem svíkjast um að vinna fyrir sínu
kaupi, standi í þessari vél afhjúpaðir í allri
sinni nekt. Tímavélin eykur hróður hinna
góðu og skylduræknu starfsmanna, og hún
ákærir vægðarlaust hinn svikula löglýð, sem
venjulega er talsvert fjölmennur í mann-
mörgum fyrirtækjum." (Leturbr. Símabl.).
Einn af flokksmönnum höf. þessar
ar klausu lýsir hinu sama þannig í
einu blaði Framsóknarflokksins:
„Þar sem framkvæmdarstjórn er réttlát og
sterk, þarf enga stimpilklukku. Hennar var
heldur ekki þörf hér (í Síldarverksmiðju
ríkisins, á Siglufirði) meðan dugandi og rétt-
látir menn fóru með framkvæmdarstjórnina.
Það fer ekki illa á því, að núverandi fram-
kvæmdarstjóri auglýsi vanmátt sinn, með
því að taka sér til þessa útlendu hnútasvipu,
sem kostar of fjár.“
(Einherji, blað Framsóknarmanna á
Siglufirði, 20. tbl. 1937).
Þess má geta líka, að þegar hinn
röggsami núverandi forstjóri síldar-
verksmiðj anna, Jón Gunnarsson, tók
við þeim störfum, var það eitt lians
fyrsta verk, að treysta á þegnskap
fólksins og örfa það til trúmensku,
með þvi að losa stofnunina við þessa
útlendu hnútasvipu, og' bitlinginn, sem
henni fylgdi.
í Tímanum 6. júni síðastl., eru eins
og endranær um þessar mundir,
nokkrar sannleiksfjólur um síma-
stofnunina, og starfsfólk hennar. Þar
er þessi klausa:
„Verkfalli eða uppreisn kommúnista i
Landssimahúsinu er nú lokið. Urðu enda-
lok þess þau, að stjórn stofnunarinnar fyr-
irskipaði öllu starfsfólki símans að nota
stimpilklukkurnar frá 1. þ. m., en áður höfðu
ýmsir þeirra, sem hærra voru settir, ekki
þurft að fullnægja þeirri skyldu. Töldu upp-
reisnarforkólfarnir þann kost vænstan, að
beygja sig fyrir þessum fyrirmælum. Voru
þeir sumir í hópi þeirra, sem ekki höfðu
þurft að stimpla áður. Má því ségja, að fyrir
þá hafi verið betur heima setið en af stað
farið. Hefir stjórn Landssímans tekið þann-
ig á þessu máli, að hún á skilið þakkir fyr-
ir, og munu kommúnistar tæplega fyrst um
sinn byrja aftur á slíkum leik við stofn-
anir ríkisins."
ALLSKONAR
Utgerðarvörur. Málningarvörur. Vélþéttingar. Verkfæri. Verkamannafatn-
aður. Sjómannafatnaður. Regnkápur.
Rest og jafnan ódýrast hjá
VERSL. O. ELLINGSEN H. F.
Símn.: Ellingsen. Reykjavík.