Símablaðið - 01.03.1939, Qupperneq 22
22
S 1 M A B L A Ð 1 Ð
með — að nokkru leyti, — en grund-
vallareinkenni þjóðaroí/ þaðmannlega
breytist ekki. Á heimilunum gildir á-
fram sama óhagganlega reglan; hún
gildir áfram i félögum og stofnunum,
hvort sem stærri eru eða smærri: Þar
sem góðir menn stjórna, menn, sem
eru vinir, félagar og samverkamenn
hjúa sinna, þar þróast hið 'þesta i
fari verkamannsins. Þeir sýna öðrum
traust og' tiltrú og þeim er auðsýnt
hið sama á móti. Hjá þeim er gott
að vinna og þar er hægt að vinna vel
og' gera fult gag'n. Þessir stjórnend-
ur ráðgast um verkin við hjúin og
láta þau um að vinna sin verk eins
og þau sjálf sjá og vita best. Þetta
hefir um allar aldir reynst affara-
sælast. Traustið eykur ábyrgðartil-
finninguna og tiltrúin eflir vinnu-
gleðina. Reynist ráðsmaðurinn ekki
starfi sínu vaxinn, lætur húsbóndinn
hann fara eða setur liann í annað
starf, þar sem hann fær fremur sýnt
með eigin starfi, en ekki annara,
vinnudug sinn og manndáð. Illi hús-
hóndinn fer þveröfugt að. Hann set-
ur út njósnara til að þefa bæði um
ráðsmanninn og hjúin, og reynir að
pina hvorutveggju til að starfa af
þrælsótta. Oft reynast slíkir þefarar
hvorugum hollir, en hugsa um að mata
eigin krók.
Slík „ráð“ og hér hafa verið gerð
að umtalsefni, geta aðeins gert þetta:
Þvælst fyrir eðlilegri þróun stofnan-
anna, gert „tillögur“ bygðar á van-
þekkingu, niðurlægt forstjóra stofnan-
anna í augum manna þeirra, þá, sem
taka þau alvarlega, og skapað undir-
lægjuhátt, sem er fjarri eðli íslend-
inga.
En íslenska þjóðin mun hrinda
þessum ófögnuði af liöndum sér, og
öllum þeirra „vísindalegu“ vinnu-
hrögðum.
Gamall samherji.
Elliðahvammur.
Á aðalfundi F.l.S. í vetur, var kos-
in nefnd til að athuga, á hvern hátt
væri hægt að lækka reksturskostnað
hússins í Elliðahvammi. Þessi nefnd
vinnur nú að því, að gera þær athug-
anir, með hliðsjón af reynslu undan-
farinna ára. Sökum þess, hve liúsið
hefir lítið verið notað á veturna, telja
margir liyggilegast, að loka því yfir
vetrarmánuðina. Myndi að því verða
mikill sparnaður, — en óvist nema
viðhaldskostnaður vkist að sama
skapi.
Á siðasta ári var eig'nin öll endur-
bætt mikið, — húsið gert liæft til vetr-
Af hverju ert þú kominn úr öllum skuldum? — Af því að eg hefi undan-
farin ár verslað við
SIG. Þ. SKJALDBERG
og næstu ár ætla eg að versla við hann. Þá verð eg orðinn ríkur! —
Verslið því við
SIG. Þ. SKJALDBERG
Smásala, heildsala og umboðsversun.
Sími 1491, 3 línur.