Símablaðið - 01.01.1972, Blaðsíða 3
1. tbl. 1972
LVIII. árg.
£ítna(flaiii
Ritstj.: Vilhjálmur B. Vilhjálmsson - Meðritstj.: Helgi Hallsson, JónTómasson - Félagsprentsm.
Ssiittitrbíiftir sínniittítnnu
Félag íslenzkra símamanna heíur á undanförnum árum unnið
mjög gott starf með byggingu sumarbúða austur við Apavatn; hef-
ur allt starf félagsins á því sviði verið til fyrirmyndar, og munu
símamenn á komandi árum í æ ríkari mæli njóta sumardvalar i
húsum félagsins víðs vegar um landið, Jjó einkum við Apavatn.
Þar eru nú risin af grunni fjögur hús til viðbótar, en eins og
mönnum er kunnugt, þá er þegar fullbyggð þar myndarleg bygging,
sem skýrt hefur verið frá hér í hlaðinu. Það er einnig ánægjulegt,
að önnur sumarhús félagsins hafa verið endurnýjuð, og aðstaða öll
stórhætt þannig, að möguleikar á að nýta húsin hafa verið auknir.
Er þessi þróun afar vinsæl og er ástæða til að hvetja félagsmenn til
að notfæra sér þá góðu aðstöðu, sem skapast hefur til ódýrrar
dvalar á friðsælum stöðum.
Símablaðið færir þeim mönnum, sem að undirbúningi og fram-
kvæmdum hafa staðið, beztu þakkir og leyfir sér að fullyrða, að
simamenn allir taka undir þau orð.