Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Síða 6
6 MANUDAGUR 19. DESEMBER 2005 Fréttir DV Baltasar í 100 spænsk bíó Mynd Baltasars Kor- máks, A Little Trip To Heaven, verður sýnd í að minnsta kostí 100 kvik- myndahúsum á Spáni og í Portúgal. Milljónum verður eytt í kynningu og mark- aðssetningu á kvikmynd- inni. Um þetta var samið á laugardag við dreifingarris- ann Eurocine Films. Þessi velgengni þykir eðlilegt framhald á því að myndin hafi komist á Sundance kvikmyndahátíðina, en hún er ein sú virtasta í heimin- um. A Little Trip To Hea- ven verður frumsýnd hér á landi þann 26. desember. Ekið á mann á hjóli Lögreglan í Keflavík fékk tílkynningu um þrjúleytið á föstudag að bifreið hefði verið ekið á hjólreiðamann þar sem hann var að hjóla við Stekk á Njarðarbraut. Hjólreiðamaðurinn kvart- aði við björgunarmenn undan eymslum í öxl og mjöðm. Maðurinn var flutt- ur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til skoðunar eftir slysið og kom í ljós að hann hafði tognað. Eru íslendingar neyslufíklar? Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. „Við erum það bara lundantekn- ingartilvikum en vissulega spenn- um við bogann oft ansi mikið. Skuldir heimitanna eru að mestu vegna þess aö hver og einn þarf að koma þaki yfir höfuðiö. Það er áhyggjuefni effólk eyðir um efni fram og vissulega faiia sumir I þá gryfju, þvl miður. Ég treysti þvl að flestir kunni fótum slnum forráð, Freistingarnar eru þó ótrúlega margar og er hart sótt aö neyt- endum.“ Hann segir / Hún segir „Benda ekki allar tölur til þess að við séum neysluflklar? Ég tek sjálf skorpur Iþessu en get veriö voða- lega nægjusöm. Ég heid að þaö eigi við okkur flest en þó erum við ekkert að steypa okkur I glötun. Ég heid að við þekkjum flest okkar takmörk en auðvitaö þurfa allir að gæta sín á að eyða ekki um efni fram. Skuldir heimilanna eru mikl- ar og það er áhyggjuefni.“ Katrín Júlfusdóttir alþingiskona. Daði Geir Sverrrisson var á föstudaginn í Héraðsdómi Reykja- víkur dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisafbrot gegn tólf ára stúlku og að borga henni sex hundruð þúsund krónur í skaðabætur. Hann neyddi stúlkuna til munnmaka í bfl með tveimur vinum sínum á meðan annar vinur hans á að hafa tekið kynferðisafbrotið upp á myndavél. Myndbandið ekki fundið „Hvað á ég að gera ég vil ekki vera hjá honum!! Nennuru að hringja ég er ad snappa," er síð- asta sms-ið sem fómarlambið sendi til vinkonu sinnar úr bílnum með Daða áður en hann framdi ódæðið. í kjölfar kynferðisafbrotsins fékk fórnarlambið áfallahjálp. Móðir hennar sagði í viðtali við DV að dóttir hennar hafi setið langtímum saman við internetíð í leit að myndbandinu sem átti að hafa verið tekið upp í bílnum. Myndbandið fannst aldrei. Á mörkum geðlægðar Stúlkan sendi'sms-boð tíl Daða Geirs og spurði af hverju hann hefði gert henni þetta. Fyrir hér- aðsdómi sagðist hún vera hrædd við Daða Geir og vini hans. Enn- fremur að henni hafi þótt óþægi- legt að fara út á meðal fólks eftir þennan hryllilega atburð. Sál- ftæðingur hjá Barnahúsi sagði i fyrir dóminum að stúlkan væri á ’ > mörkum geðlægðar en að líkur væru á því að hún myndi ná sér eftir atburðinn. vaiur@dv.is „Hæ, fokk ég er í bíl með Daða og er að deyja,“ er fyrsta sms-ið sem fórnarlamb Daða sendi vin- konu sinni úr bílnum. DV fjallaði um málið í byrjun desember. Þá hélt Daði því fram að hann hafi ekki vitað um aldur stúlkunnar og að munnmökin hafi átt sér stað með hennar samþykki. Daði, sem er sonur Sverris „tattú" Einarssonar, segir að hann hafi ekki vitað aldur stúlkunnar. Fyrir dómi fullyrti fórnalambið að stjúpfaðir hennar hafi gert Daða fyllilega grein fýrir aldri sínum. Daði Geir Sverrisson Dæmdur f skilorðsbundið fangelsi. Sverrir tattú Ein arsson Viðriðinn morðiö á Vegas. Búiö er að dæma Daða Geir Sverrisson í fimm mánaöa skilorðsbundiö fangelsi og til að borga stúlkunni sex hundruö þúsund krónur í skaðabætur. Stúlkan er enn í sárum eftir atburðinn og segir sálfræðingur hjá Barnahúsi að hún sé á barmi geðlægðar. Líkur á hvítum jólum sunnan heiða fara minnkandi segja einhuga veðurfræðingar Fólk ætti að búa sig undir rauð jól „Það stefnir allt í þokkaleg hlý- indi, hitastigið verður á einhverju flökti til jóla, en það virðist ætla að verða sæmilega milt meginhluta landsins," segir Sigurður Þ. Ragn- arsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, um veðrið um jólin. Þó svo að margur íslendingur- inn vilji helst fá að sleppa við snjó- þunga vetursins eru hvít jól á óska- lista flestra, enda þykir snjór í kringum jólin krydda örlítið upp á hátíðarandann. „Ég held að það verði rautt hérna syðra," segir Sigurður en bætir við að norðanmenn gætu átt von á einhverjum gráma og slyddu. „Við erum að tala um suð- lægar áttir og frostlaust á landinu, hiti verður um þrjú til sex stig . Það gæti rignt hérna syðra á aðfanga- dag," segir Sigurður um jólaveðrið ennfremur. Haraldur Eiríksson veðurfræð- ingur hjá Veðurstofu íslands er sammála Sigurði um spána en tek- ur fram að aðeins sé um spá að ræða og því ekkert víst eða öruggt. Þróun í loftslagi undanfarin ár hefur verið í þá átt að það vérður alltaf hlýrra um jólin og því verður jólasnjór æ sjaldgæfari. „Líkurnar á hvítum jólum fara minnkandi, þó svo að það sé alls ekki útilokað. Fólk ætti því ekki að vera bjartsýnt um hvít jól heldur búa sig frekar undir rauð," segir Stormurinn að lokum. dori@dv.is Sigurður Þ. Ragnarsson Segir aðjólin verði hlý, mild og snjólaus.„Fólk ætti því ekki að vera bjartsýnt um hvít jól," segir Siggi stormur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.