Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 Fréttir DV Sandkorn Óskar Hrafn Þorvaldsson • Halldór Ásgrímsson forsætísráðherra hef- ur tekið að sér nýtt verkefni í jólafríi þing- manna. Halldór hefur fundið sér farveg í prófkjörsslag Fram- sóknarflokksins og stendur þar með aðstoðarmanni sín- um, Bimi Inga Hrafns- syni, sem stefnir á efsta sætí flokksins í Reykja- vík fyrir sveitastjómar- kosningamar næsta vor. Frestur tif að skila inn framboði í próf- kjörið rennur út um áramótin en eins staðan er hafa tveir einstakiingar, téður Bjöm Ingi og Anna Kristinsdóttir ákveðið að stefna á fyrsta sætið... • Bjöm Ingi Hrafhsson stendur í smölun þessa dagana og hringir í góða og gilda framsóknarmenn til að leita eftir þeirra stuðningi. Bjöm Ingi hringdi í einn slíkan um daginn og vildi sá ekki veita von- arstjömu flokksins sinn stuðning fyrr en ljóst væri hvort fleiri aðilar myndu blanda sér í baráttuna um efsta sætið. Daginn eftir fékk framsóknar- maðurinn símtal frá engum öðrum en HalldóriÁsgrímssyni sem bað hann um að styðja Bjöm Inga í próf- kjörinu. Ber er hver að baki nema sér formann eigi... • Meðlimir stúlkna- sveitarinnar Nylon, hafa, líkt og DV greindi ffá fyrir skömmu, ákveðið að flytja til London á næstunni í leit sinni að heims- ffægð. Einar Bárðarson, faðir sveitar- innar, hefur samkvæmt sögusögnum leitað liðsinnis Sölva Blöndal, forsprakka Quarashi sálugu, og á Sölvi að semja og út- setja lög Nylon-flokks- ins á erlendri gmnd. Sölvi ætti að kunna það enda var Quarashi afar vinsæl þegar best lét, sérstaklega í Japan... • Eggert Magnússon, formaður Knattspymusambands íslands, og fé- lagar hans em með böggum hildar þessa dagana. Það virðist nefnilega allt stefna í að íslenska landsliðið muni ekki hafa efni á því í framtíðinni að stilla upp sínum besm leikmönnum. Ef stóm félögin í Evrópu fá sfnu framgengt munu landsliðin þurfa að reiða fram háar trygg- ingar til að fá bestu leikmenn sína í landsleiki í stað þess að þeir komi fn'tt líkt og raunin er nú... • Þetta hefur kannski ekki mikil áhrif á bestu landslið heims, sem hafa úr nægum fjármunum að spila, en þetta gæti haft mikil áhrif á minni landslið líkt og ísland. Við gæt- um þurft að horfa upp á það að leikmenn eins og Eiður Smári Guð- johnsen og Hermann Hreiðarsson spili ein- faldlega ekki með landsliðinu á næsm árum þar sem KSÍ mun varla hafa efni á að tryggja þá fyrir hvem einasta leik fyrir upp- hæð sem hleypur á milljónum... Allir helstu foringjar Sjálfstæöisflokksins mættu til að fagna með Hannesi Hólm- steini Gissurarsyni útgáfu síðasta bindis í verki hans um Halldór Laxness. Fátt var um Samfylkingarmenn. Hanns býst ekki við látum vegna þessa bindis og segist aldrei hafa verið leiðinlegur í garð gamla mannsins. Hannes Hólmsteinn I útgáfupartíi var bók- menntaumræöunni lyft á örlítið hærra plan með ráðherraliði og menntalýð. Fulltrúar Samfylkingarinnar Eirlkur Bergmann og Kolbrún B. voru eina Samfylkingarfólkið á staðnum. „Já, þetta tókst mjög vel. Þetta var hundrað og fimmtíu manna veisla... Já, já, Davíð var, nei, enginn hélt ræðu, en vel veitt í létt- um drykkjum og meðlæti og var haidið heima hjá mér milli sex og átta," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Hann hefur nú lokið sínu mikla og umdeilda verki um Halldór Laxness og hélt mikið útgáfuhóf í tilefni þess. Hannes segist hafa tekið fyrir öll ræðuhöld enda sé hann ekki mikið fyrir slíkt. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra var í útgáfuveislu Hannesar Hólmsteins. Björn segir á síðu sinni að Hannes hafi fagnað með glæsi- brag: „Elja Hannesar er með ólíkind- um og saga hans um Laxness mun standa af sér allar árásir samtíma- manna, enda byggjast þær á öðru en virðingu fyrir því, að Hannes Hólm- steinn skuli hafa tekið sér þetta mikla verk fyrir hendur." Ráðherrar mættu Fleiri ráðherrar voru í veislunni: Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- „Ég skrifaði þessa bók eins og ósýnilegi maðurinn sem gengur við hlið Laxness í gegnum lífið ráðherra og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra. Geir Haarde var fjarri góðu gamni en hann er nú staddur í Hong Kong og Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri flokksins var úti á landi eftir því sem heimildir blaðsins herma að ættar- óðali sínu á Rauðasandi. Eina samfylkingarfólkið í veisl- unni voru Kolbrún Bergþórsdóttir og Eiríkur Bergmann. Annars voru þarna fræðimenn og samkennarar Hannesar við háskólann, meðal annars þeir sem sóttu um stöðu gegn Hannesi þegar aUt varð vitlaust árið 1998 þegar Hannesi var veitt staðan. Og vitanlega voru svo ýmsir innstu koppar úr búri Sjálfstæðis- flokksins. Til dæmis Gísli Marteinn Baldursson og Sigurður Kári Krist- jánsson alþingismaður. Laxness skemmtilegur Hannes segist aðspurður ekki hafa nokkra trú á að eins mikill styr standi um þetta bindi og hið fyrsta en erfingjar Laxness sóttu Hannes til saka fyrir höfundarstuld og fyrir að hafa ekki farið rétt með heimildir. Það mál er enn til umfjöllunar í kerf- inu. Hannes segir ákveðinn létti að þetta mikla verk hans sé nú að baki. En samt segir hann það svo vera að hann sé langt í frá búinn að fá „leið á gamla Laxnesi, hann var svo fyndinn og skemmtilegur". En Hannes veit ekki hvað mun nú taka við. Ekki leiðinlegur í garð gamla mannsins „Athyglisvert er að enginn hefur haldið því fram að ég hafi verið leið- inlegur í garð gamla mannsins. Ástæðan er sú að ég skrifaði þessa bók eins og ósýnilegi maðurinn sem gengur við hlið Laxness í gegnum líf- ið. Og svo læt ég lesandanum eftir að dæma hann. Er ekkert að reka ofan í kokið einhveija skoðun," segir Hannes. Hannes dregur þó enga dul á að í þessu þriggja binda verki sé engin fjöður dregin yfir það hversu kald- riflaður Halldór Laxness gat verið auk þess að vera eitursnjall. „Hann átti sér ekki sinn líka hvað snilld og elju varðar." jakob@dv.is Öryrkjum á íslandi íjölgar Aukin sókn geðsjúkra ívelferðarkerfið „Ein af ástæðunum fyrir fjölgun öryrkja á íslandi undanfarin ár er aukin sókn geðsjúkra í velferðar- kerfið því það hefur verið meiri vakning hjá geðsjúku fólki að sækja sinn rétt til bóta,‘‘ segir Stef- án Ólafsson prófessor við Háskóla íslands. Stefán segir að ísland sé 10 árum á eftir hinum Norðurlöndun- um hvað sókn geðsjúkra í heil- brigðiskerfið varðar. Stjórnvöld haldi því fram að ísland sé í meðal- lagi hjá Norðurlöndunum hvað varðar tekjur öryrkja í samanburði við tekjur annarra en sú staðhæf- ing sé röng: „ísland greiðir til öryrkja hlut- fallslega 65 prósent af tekjum ann- arra þjóðfélagsþegna. Meðaltal OECD-ríkjanna er 78 prósent hlut- fall og það land sem borgar mest er Svíþjóð með 95 prósent hlutfall," segir Stefán í skýrslu Tryggva Þórs Herbertssonar hagfræðings sem hann vann fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytið og ber heitið: „Fjölgun öryrkja á ís- landi: Orsakir og afleið- ingar", segir orðrétt: „Til að halda samfé- lagslegri bjögun í lág- marki ríður á að gaum- gæfa hvort ekki megi hverfa af þeirri braut sem mörkuð er af síauknum fjárhagslegum stuðningi við öryrkja." Stefán, sem nýlega Segirað Island sé langt undir meðallagi Vestur-Evrópulanda i greiðslum til örvrkfa. gaf út skýrslu um öryrkja og velferð á ís- landi, segir að f skýrslu Tryggva Þórs komi hann með tillögu til stjórnvalda um að rýra kjör öryrkja til að draga úr fjölgun þeirra. Tryggvi Þór segir að verið sé að draga orð hans úr samhengi. Það sem hann sé að benda á sé að til að hefta fjölgun öryrkja á ís- landi þurfi að endur- skoða gildandi örorku- mat. „Ef fjölgun öryrkja verður eins mikil og hún hefur verið undanfarin ár munu kjör þeirra versna l og það má ekki gerast aðl kjör öryrkja versni því þau verða| að batna," segir Tryggvi Þór. I Tryggvi Þór Herberts- I son hagfræðingur Segir I að stjórnvöid eigi að hætta I siauknum fjárhagslegum I stuðningi við öryrkja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.